Schäferdeild hrfí
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir

28.12.2014

Schäferganga á mánudagskvöld


Picture
Nú er komið að síðustu göngu ársins hjá Schäferdeildinni og verður hún annað kvöld 29. des. klukkan 19:30.

Hist verður við Hafnarfjarðarkirkju og gengið léttan spöl. Göngutúr sem ætti að henta öllum, ungum sem öldnum. Sjáumst á morgun í jólaskapi.
18.12.2014

Jólakveðja og deildarganga


Stjórn Schäferdeildarinnar óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við sendum okkar bestu þakkir til þeirra sem veittu stuðning eða styrktu deildina með einhverju móti. Okkur langar til að þakka Royal Canin sérstaklega fyrir stuðninginn sem gaf alla verðlaunagripi á öllum sýningum ársins.

Við þurftum því miður að fresta göngunni sem var fyrirhuguð í kvöld en hún verður í staðinn mánudagskvöldið 29. des. Hittumst við kirkjuna í Hafnarfirði kl. 19:30 og göngum hæfilegan hring við Strandgötuna.
09.12.2014

Jólagleði Schäferdeildarinnar


Jólagleði Schäferdeildarinnar var haldin sunnudaginn síðasta á skrifstofu HRFÍ. Þar voru heiðraðir stigahæstu hundar í vinnu og á sýningum ásamt stigahæsta ræktanda deildarinnar. Nokkrir styrktaraðilar stóðu við bakið á deildinni og þökkum við þeim kærlega fyrir. Royal Canin gaf alla verðlaunagripi. Belcando gaf veglegar gjafakörfur. Pet Head gaf hundasjampó. Pedigree gaf gjafapakka með nagbeinum og hundanammi. Alls voru veittar 17 viðurkenningar og voru því margir sem nutu góðs frá þessum frábæru bakhjörlum. Bestu þakkir fyrir okkur.
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
07.12.2014

Vinnupróf árið 2014


Picture
Nýr íslenskur sporameistari IsTrCh Ice Tindra Aragon
Nýlega luku Ice Tindra Aragon og eigandi hans Kristjana Bergsteinsdóttir Spori III. Ice Tindra Aragon hefur nú lokið spori I, spori II og spori III með 1. einkunn og hlýtur hann því nafnbótina IsTrCh eða íslenskur sporameistari (icelandic tracking champion). Það eru aðeins tveir hundar á Íslandi sem hafa náð þessum glæsilega árangri og báðir eru þeir schäferhundar.

Fjölmargir schäferhundar þreyttu vinnupróf á þessu ári og sumir þeirra luku fleiri en einu prófi. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þá sem luku prófi á þessu ári.

Hlýðni brons
Vonziu´s Asynja 173 stig
Ólafs Ræktun Aria 171,5 stig
Gjósku Frostrós 171 stig
Kolgrímu Genius Of All TimeHólm 155,5 stig
Gjósku Rispa 144,5 stig

Spor I
Kolgrímu Fligh HighHólm 90 stig

Hlýðni 1
Gjósku Frostrós 172,5 stig
Kolgrímu Genius Of All TimeHólm 145 stig
Ólafs Ræktun Aria 142 stig



Spor III
Ice Tindra Aragon 92 stig

Umsagnir og úrslit


Umsagnir hunda og nánari úrslit frá síðustu sýningu eru komnar inn á heimasíðuna. Umsagnir allra hunda má finna hér og úrslitin eru hér.

Minnum einnig á jólakaffi deildarinnar næsta sunnudag kl. 16:30.


27.11.2014

Jólakaffi Schäferdeildarinnar


Schäferdeildin verður með árlegt jólakaffi í desember en þá eru stigahæstu hundar í vinnu og sýningum heiðraðir ásamt stigahæsta ræktanda deildarinnar. Jólakaffið verður haldið sunnudaginn 7. desember kl. 16:30 á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla 15. Kaffi og léttar veitingar verða í boði fyrir gesti. Vonumst til að sjá sem flesta, allir velkomnir.
18.11.2014

Schäferganga á laugardaginn


Picture
Á laugardaginn næsta verðum við með schäfergöngu í Reykjavík. Við munum hittast á bílaplaninu við Grafarvogskirkju kl. 13 og ganga saman hringinn í hringum voginn. Gangan er um 3,5 km að lengd og ætti að henta flestum vel. Hlökkum til að sjá ykkur. Allir velkomnir.
13.11.2014

Nóvembersýning HRFÍ 8.-9. nóvember 2014


Picture
Kolgrímu For Your Eyes OnlyHólm. Ljósmynd Ágúst Ágústson.
8. nóvember síðastliðinn fór fram síðasta sýning HRFÍ árið 2014. Schäferinn var sýndur undir hinni dönsku Marianne Baden. Skráðir voru til leiks 43 snögghærðir hundar og 11 síðhærðir.

Í snögghærðu hundunum voru það ISShCh Kolgrímu For Your Eyes OnlyHólm (eig. Sirrý Halla Stefánsdóttir) og ISShCh Gunnarsholts Whoopy (eig. Hjördís H. Ágústsdóttir) sem voru hlutskörpust. ISShCh Kolgrímu For Your Eyes OnlyHólm endaði í 3. sæti í tegundarhóp 1. 

Hvolpunum gekk einnig mjög vel. Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða var Svarthamars Högna (eig. Eva Kristinsdóttir / Guðmundur Rafn Ásgeirsson) og endaði hún sem 2. besti hvolpur dagsins.
Besti hvolpur tegundar í flokki 6-9 mánaða var Kolgrímu Impossible (eig. Lísa María Karlsdóttir) og stóð hann svo uppi sem sigurvegari í besti hvolpur dagsins.

CIB ISCh Easy von Santamar (eig. Arna Rúnarsdóttir) varð besti öldungur tegundar og mætti hún svo til leiks í besta öldung sýningar þar sem hún stóð uppi sem sigurvegari.

Besta afkvæmahóp tegundar átti Eldeyjar Hugi (eig. Theodór Bjarnason / Íris Hlín Bjarnadóttir) og endaði hann ásamt afkvæmum sínum sem 2. besti afkvæmahópur dagsins. Besta ræktunarhóp tegundar átti Kolgrímuræktun í eigu Sirrýjar Höllu Stefánsdóttur.

Í síðhærðu hundunum voru það RW-14 ISShCh Svarthamars Garpur (eig. Davíð Ingvason) og Kolgrímu Gypsy WomanHólm (eig. Guðlaugur Ottesen Karlsson) sem voru talin standa uppúr að mati dómara og var það
RW-14 ISShCh Svarthamars Garpur sem hafði betur sem besti hundur tegundar. Kolgrímu Gypsy WomanHólm fékk sitt síðasta íslenska meistarastig og bíður nú staðfestingar á titlinum ISShCh. Óskum við eiganda hennar innilega til hamingju með hana. Besta ræktunarhóp tegundar átti Gjósku ræktun í eigu Örnu Rúnarsdóttur og Rúnu Helgadóttur.

(Gagnagrunnur hvolpanna er í vinnslu svo ekki er hægt að tengja þá eins og eldri hundana, en er væntanlegt á síðuna)

Allir verðlaunagripir hjá tegundinni voru í boði Royal Canin. Bestu þakkir til þeirra fyrir stuðninginn.

Picture
07.11.2014

Alþjóðleg sýning HRFÍ um helgina


Picture
Schäferinn verður í hring 6 í Víðidalnum á morgun. Tegundin hefst kl. 10, fyrst verða stutthærðir dæmdir og síðan síðhærðir. Alls eru 54 hundar skráðir til leiks. Úrslit dagsins hefjast um kl. 15.
02.11.2014

Breytingar í stjórn Schäferdeildarinnar


Þrír meðlimir sögðu af sér stjórnarsetu í lok síðasta mánaðar. Það voru Þórður Bogason, Guðmundur Rafn Ásgeirsson og Haukur Birgisson. Við þökkum þeim samstarfið og óskum þeim alls hins besta.
28.10.2014

Sýningaþjálfun deildarinnar og nóv. sýning HRFÍ


Við minnum á síðustu sýningaþjálfun deildarinnar sem verður haldin næsta laugardag kl. 15:00 í húsnæði Gæludýr.is í Korputorgi. Þátttaka kostar 500 kr og rennur beint til deildarinnar. Munið eftir sýningakeðju, taum og dóti eða nammi fyrir hundinn.

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ verður haldin helgina 8. - 9. nóvember. Schäferinn verður sýndur á laugardeginum í hring 6 og mun Marianne Baden dæma tegundina. Stutthærðir (43) fara fyrstir í hring kl. 10 og síðhærðir (11) þar á eftir eða um kl. 12:52.
17.10.2014

Sýningaþjálfun Schäferdeildarinnar alla laugardaga


Schäferdeildin ætlar að bjóða upp á sýningaþjálfun alla laugardaga fram að sýningu. Sýningaþjálfunin verður haldin í húsnæði Gæludýr.is í Korpukoti og hefst kl. 15. Fyrsta skiptið verður á morgun, 18. okt. og næstu þar á eftir verða 25. okt. og 1. nóv.

Gengið er í gegnum verslunina og verðum við í stóru rými þar fyrir innan. Skiptið kostar 500 kr og rennur beint til deildarinnar. Munið eftir sýningakeðju, taum og dóti eða nammi fyrir hundinn.


08.10.2014

Schäferganga á sunnudaginn


Schäferdeildin verður með göngu næsta sunnudag, þann 12. október. Ætlum að hittast kl. 13 á bílaplaninu við BSÍ og ganga þaðan hringinn í kringum tjörnina.

Minnum á síðasta skráningardag á nóvembersýningu HRFÍ, en skráningu líkur á föstudaginn.


29.09.2014

Stórhundadagar í Garðheimum


Þökkum frábærar viðtökur við básverunni en í þetta skipti mættu 10 hundar á öllum aldri. Það er gríðarlega mikilvægt að fá þessa aðstoð því þarna er t.d. gott tækifæri til að kynna tegundina opinberlega á jákvæðan hátt, kynna deildina og starfsemi hennar ásamt því að hundarnir fá góða umhverfisþjálfun. Eftirfarandi hundar ásamt eigendum eða umráðamönnum létu ljós sitt skína og gáfu tíma sinn til þess að vinna fyrir deildina:
Gjósku Mylla
Gjósku Olli
Gjósku Salka-Valka

Eldeyjar Hugi
Kötlu Snjalla
Vonzlu’s Asynja
Kolgrímu Genius Of All Time Hólm
Kolgrímu Gipsy Woman Hólm
Kolgrímu Irresistible

Ljósmyndir: Guðmundur Ívar Eggertsson


22.09.2014

Tegundabásar í Garðheimum


Stórhundadagar verða haldnir í Garðheimum um helgina. Þá gefst gestum kostur á að skoða fjölbreyttar tegundir og þar á meðal verða schäferhundar. Við óskum því eftir aðstoð ykkar við að kynna okkar frábæru tegund. Þetta felst aðallega í að sýna sig og sjá aðra og leyfa gestum að klappa hundunum.

Hundakynningarnar fara fram milli kl. 13 og 17, hæfilegur tími á hund er ca klst til einn og hálfur tími. Endilega skráið ykkur hér eða í emaili og tilgreinið tímana sem þið getið verið. Það er velkomið að vera báða daga ef áhugi er fyrir því. Ekki gleyma að skrá email og/eða símanúmer svo við getum haft samband og staðfest tímasetninguna.

    Ég vil taka þátt og vera á schäferbás í Garðheimum um næstu helgi:

Senda
14.09.2014

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ


Picture
Besti hundur tegundar:
Gunnarsholts Whoopy
Ljósmynd: Ágúst Ágústsson.

Þann 6. september síðastliðinn var alþjóðleg hundasýning HRFÍ haldin í reiðhöllinn í Víðidal. Skráðir voru 44 snögghærðir og 8 síðhærðir schäferhundar í þetta sinn. Tegundina dæmdi Saija Juutilainen frá Finnlandi.

Í snögghærðu hundunum voru það RW-14 RW-13 ISCh CIB Welincha’s Yasko og Gunnarsholts Whoopy sem voru hlutskörpust. Gunnarsholts Whoopy var besti hundur tegundar og fékk hún sitt 3. meistarastig og bíður hún nú staðfestingar á titlinum ISShCh eða Íslenskur sýningameistari, óskum við eiganda hennar og ræktanda Hjördísi Helgu Ágústsdóttir innilega til hamingju. Gunnarsholts Whoopy endaði svo í 2. sæti í tegundarhópi 1. Þar sem Yasko er fullcertaður rann íslenska meistarastigið hjá rökkunum niður til Gjósku Olla sem fékk sitt þriðja og síðasta íslenska meistarastig. Hann mun því einnig fá nafnbótina ISShCh eða íslenskur sýningameistari. Við óskum eiganda hans, Ragnari Björnssyni, til hamingju með árangurinn.
Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða var Kolgrímu Invisible og endaði hún sem 3. besti hvolpur dagsins, besti hvolpur tegundar af gagnstæðu kyni var Kolgrímu Impossible. Í eldri hvolpaflokki 6-9 mánaða var það innflutt tík, Vonzlu’s Asynja, sem stóð upp úr að mati dómara og endaði hún sem 4. besti hvolpur dagsins. Besti öldungur tegundar var ISCh CIB Easy von Santamar og endaði hún sem annar besti öldungur sýningar.

Kolgrímuræktun átti besta ræktunarhóp tegundar og var það Eldeyjar Hugi sem átti besta afkvæmahóp tegundar. Eldeyjar Hugi og afkvæmi voru svo valin 3. besti afkvæmahópur dagsins.

Í síðhærðu hundunum voru það systkinin Gjósku Ráðhildur og Gjósku Rosi Loki sem voru bestu hundar tegundar, bæði með íslenskt og alþjóðlegt meistarastig. Gjósku Ráðhildur hafði þó betur en fékk ekki sæti í tegundarhópi 1 að þessu sinni. Besti hvolpur tegundar 4-6 mán var Hlíðarenda Askó. Besta ræktunarhóp tegundar átti Gjóskuræktun.

(Gagnagrunnur hvolpanna er í vinnslu svo ekki er hægt að tengja þá eins og eldri hundana, en er væntanlegt á síðuna)

Allir verðlaunagripir hjá tegundinni voru í boði Royal Canin. Bestu þakkir til þeirra fyrir stuðninginn.


Picture
09.09.2014

Schäferganga og deildarfundur


Picture
Næsta ganga verður haldin á sunnudaginn kl. 13. Við ætlum að hittast á bílaplaninu við Knarrarvog 2 þar sem Nýja sendibílastöðin, ÓB og fleiri fyrirtæki eru. Ætlum að ganga ca 2 km hring við Elliðaárnar og fá okkur svo kaffi saman og með því í húsnæði Nýju sendibílastöðvarinnar. Áætlað er að hafa deildarfund í leiðinni. Þar gefst deildarmeðlimum kostur á að hafa áhrif á deildarstarfið, koma með hugmyndir, fyrirspurnir og fleira. Hlökkum til að sjá sem flesta.


31.08.2014

Óskum eftir sjálfboðaliðum


Enn vantar okkur fólk til þess að aðstoða vegna undirbúnings og frágangs sýningarinnar en Schäferdeildin er ein af þeim deildum sem þarf að manna stöður í þetta skiptið.

Óskað er eftir sjálfboðaliðum sem geta aðstoðað á miðvikudagskvöldi við undirbúning (2-3 klst), á sunnudegi á sýningunni sjálfri og svo við frágang að henni lokinni (2-3 klst). Sjá nánar hér:

Miðvikudagur 3. sept. kl. 18:
- Teppalögn í Víðidal (vantar 5 aðila)
- Sólheimakot, bera dót í bílinn og tæma bílinn í Víðidal (vantar 2 aðila)
- Í boði eru pizzur og gos um kvöldmatarleitið ásamt frímiða á sýninguna.

Sunnudagur 7. sept. kl. 9-16:
- Víðidalur, dyravarsla, þrif ofl. (vantar 3 aðila)
- í boði er hádegisverður fyrir þá sem vinna 4 klst og lengur

Sunnudagur 7. sept. kl. 17-19.
- frágangur, þrif (vantar 5 aðila, þar af 2 til að fara með bílnum í Sólheimakot og HRFÍ og tæma hann)

Margar hendur vinna létt verk. Þeir sem geta lagt sitt af mörkum mega gjarnan hafa samband við deildina í gegnum vefpóstinn schaferdeild@gmail.com og gefa okkur upp nafn og símanúmer.


23.08.2014

Sýningaþjálfun Schäferdeildarinnar


Deildin verður með tvær sýningaþjálfanir fyrir sýninguna. Verðum á þriðjudagskvöldum á bílastæðinu við reiðhöllina í Víðidal kl. 19:30. Skiptið kostar 500 kr og rennur beint til deildarinnar. Leiðbeinandi verður Rúna Helgadóttir. Allir velkomnir. Munið eftir sýningataum, sýningakeðju og kúkapoka. Þjálfanirnar verða eftirfarandi:

Þriðjudagur 26. ágúst kl. 19:30 við reiðhöllina í Víðidal
Þriðjudagur 2. sept. kl. 19:30 við reiðhöllina í Víðidal

21.08.2014

Hundasýning, afmælishátíð og fleira


Afmælishátíð HRFÍ verður haldin fimmtudagskvöldið 4. september í tilefni af 45 ára afmæli félagsins. Hátíðin fer fram í reiðhöllinni í Víðidal. Í boði er vegleg dagskrá svo sem fyrirlestrar, keppni ungra sýnenda 0-5 ára og 6-9 ára, hlýðni bronspróf fyrir 5-12 ára, kynning á vinnu og veiði, hoppukastali, andlitsmálning og margt fleira. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í keppnum geta skráð sig á skrifstofu félagsins fyrir 29. ágúst. Einnig mun unglingadeildin vera með sýningaþjálfun og tegundabásar frá deildum félagsins munu kynna hinar ýmsu hundategundir.

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ verður haldin helgina 6. - 7. september í reiðhöllinni í Víðidal. Schäferinn verður sýndur á laugardeginum kl 10. Skráðir eru 44 stutthærðir hundar og 8 síðhærðir. Schäferdeildin verður með sýningaþjálfun fyrir sýninguna og verður hún auglýst fljótlega.

Schäferdeildin er ein af þeim sem þarf að sjá um undirbúning og frágang fyrir sýninguna. Óskað er eftir sjálfboðaliðum sem geta aðstoðað á miðvikudagskvöldi við undirbúning, á sunnudegi á sýningunni sjálfri og svo við frágang að henni lokinni.

Miðvikudagur 3. sept. kl. 18:
- Teppalögn í Víðidal
(vantar 5 aðila)
- Sólheimakot, bera dót í bílinn og tæma bílinn í Víðidal (vantar 2 aðila)
- Í boði eru pizzur og gos um kvöldmatarleitið ásamt frímiða á sýninguna.

Sunnudagur 7. sept. kl. 9-16:
- Víðidalur, dyravarsla, þrif ofl. (vantar 3 aðila)
- í boði er hádegisverður fyrir þá sem vinna 4 klst og lengur

Sunnudagur 7. sept. kl. 17-19.
- frágangur, þrif (vantar 5 aðila, þar af 2 til að fara með bílnum í Sólheimakot og HRFÍ og tæma hann)


Margar hendur vinna létt verk
. Þeir sem geta lagt sitt af mörkum mega gjarnan hafa samband við deildina í gegnum vefpóstinn schaferdeild@gmail.com og gefið okkur upp nafn og símanúmer. Einnig er hægt að skrá sig í skilaboðaboxinu hér til hægri á forsíðunni.


28.07.2014

Næsta sýning HRFÍ


Alþjóðleg hundasýning HRFÍ verður haldin helgina 6. - 7. september. Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 8. ágúst.

Dómarar á sýningunni verða: Jo Schepers (Holland), Saija Juutilainen (Finnland), Jussi Liimatainen (Finnlandi), Laurent Heinesche (Lúxemborg), Yolanda Nagler (Ísrael) og Paolo Dondina (Ítalía).

Hægt er að skrá hunda á skrifstofu HRFÍ eða símleiðis en skrifstofan er opin alla virka daga kl. 10-15.



23.06.2014

Sýningin


Picture
Picture
Smellið til að stækka myndirnar
Sýningin gekk frábærlega vel um síðustu helgi, þrátt fyrir smá rigningu á laugardeginum og hellidembu á sunnudeginum. Mikil stemning var við hringinn. Sumir höfðu komið upp tjöldum við hringinn þar sem hundarnir biðu í búrunum sínum, fólk kom sér vel fyrir í tjaldstólum með regnhlífar, teppi og nesti og fylgdist spennt með dómara og keppendum í hring. Útisýning er skemmtileg tilbreyting og hentar okkar tegund sérstaklega vel; stór sýningarhringur sem gefur tækifæri til þess að ná meiri ferð og betri hreyfingum, veðurfar háir okkur ekki og hundarnir óhræddir við að hlaupa í blautu og/eða miklu grasi.

Dómarar tegundarinnar voru ekki sammála um bestu hunda tegundarinnar, úrslit daganna voru því mismunandi og jafnvel meira spennandi fyrir vikið. Tegundin eignaðist tvo nýja sýningameistara eftir helgina, sumir hundar fengu sitt fyrsta meistarastig og aðrir sitt annað enda voru 8 íslensk meistarastig í boði samtals fyrir báðar tegundir. Hér fyrir neðan eru myndir af bestu hundum tegundar. Nánari úrslit verða birt þegar okkur berast gögn frá HRFÍ.

Reykjavík Winner sýning 21. júní 2014 - laugardagur

Stutthærður schäfer
Picture
Besti rakki og besti hundur tegundar: RW-14 RW-13 CIB ISCh Welincha´s Yasko
Besta tík og annar besti hundur tegundar: RW-14 Gjósku Mylla (með ísl. meistarastig)
Síðhærður schäfer
Picture
Besti rakki og besti hundur tegundar: RW-14 ISSCh Svarthamars Garpur (með ísl. meistarastig)
Besta tík og annar besti hundur tegundar: RW-14 Kolgrímu Gypsy WomanHólm (með ísl. meistarastig)

Alþjóðleg sýning HRFÍ 22. júní 2014 - sunnudagur
Stutthærður schäfer
Picture
Besta tík og besti hundur tegundar: CIB ISCh Easy von Santamar
Besti rakki og annar besti hundur tegundar: ISSCh Kolgrímu For Your Eyes OnlyHólm (með alþj. meistarastig)


Síðhærður schäfer
Picture
Besti rakki og besti hundur tegundar: Kolgrímu Flash BackHólm (með ísl. og alþj. meistarastig)
Besta tík og annar besti hundur tegundar: Gjósku Ruslana-Myrra (með íslenskt meistarastig)
19.06.2014

Tvöföld afmælissýning HRFÍ


Sumarsýning HRFÍ fer fram um næstu helgi í Víðidalnum. Á laugardeginum verður Reykjavík Winner sýning haldin í annað skiptið. Á henni fá bestu rakkar og bestu tíkur tegundar nafnbótina RW-14 fyrir framan nafnið sitt auk þess sem að möguleiki er á íslensku meistarastigi. Á sunnudeginum verður alþjóðleg sýning og á henni er íslenskt og alþjóðlegt meistarastig í boði. Sýninganúmer verða afhent á staðnum. Veitingarsala og salerni verða í veislusal reiðhallarinnar í Víðidal. Aðgangseyrir er 700 kr en frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
Picture
Smellið á myndina til þess að stækka


Laugardagur
Reykjavík Winner

Hringur 8
Dómari:
Péter Hársányi

Snögghærðir (41)
kl. 9:24 - 12:08

Síðhærðir (10)
kl.
12:08 - 12:48

Úrslit sýningarinnar hefjast kl. 15:30.



Sunnudagur
Alþjóðleg sýning

Hringur 4
Dómari:
Tomasz Borkowski

Snögghærðir (41)
kl.
9:00 - 11:44

Síðhærðir (9)
kl. 11:44 - 12:20


Úrslit sýningarinnar hefjast kl. 16:30


07.06.2014

Skapgerðarmat


Skapgerðarmat HRFÍ verður haldið í Sólheimakoti, laugardaginn 14. júní. Síðasti skráningardagur í matið er þriðjudagurinn 10. júní. Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ í síma 588-5255.


30.05.2014

Sýningaþjálfun deildarinnar


Við minnum á sýningaþjálfun deildarinnar sem hefst í næstu viku, miðvikudagskvöldið 4. júní kl. 19:30. Sýningaþjálfanir deildarinnar munu fara fram á tjaldsvæðinu við hesthúsasvæðið í Víðidal í Reykjavík, þar sem júnísýningin verður haldin. Tjaldsvæðið er við Breiðholtsbrautina, á móti Dýraspítalanum í Víðidal. Góð aðkoma er að svæðinu og næg bílastæði. Leiðbeinendur verða Eva Kristinsdóttir og Rúna Helgadóttir. Skiptið kostar 500 kr og rennur beint til deildarinnar. Munið eftir sýningakeðju, sýningataum, nammi og/eða dóti og að sjálfsögu kúkapokum, Allir velkomnir.


28.05.2014

Sporaæfing á morgun


Sporakynning Schäferdeildarinnar gekk mjög vel. Um var að ræða tveggja tíma fyrirlestur þar sem farið var yfir allt það helsta sem við kemur sporaþjálfun. Mikil ánægja var meðal gesta og viljum við því bjóða upp á þennan fyrirlestur aftur seinna fyrir þá sem ekki komust síðasta mánudag. Við höfum fengið leiðbeinandann, Theodór Bjarnason, til liðs við okkur og mun hann auk þess sjá um að halda sporaæfingar fyrir deildina. Þökkum honum kærlega fyrir góðan fyrirlestur og hlökkum til samstarfsins.

Fyrsta æfingin verður haldin á morgun, fimmtudaginn 29. maí. Við munum hittast við æfingasvæði slökkviliðsins við Úlfarsfell kl. 11. Þeir sem hafa áhuga á að vera með geta komið með sinn búnað ef þeir eiga en geta annars fengið hann lánaðan hjá leiðbeinanda. Gott væri að hafa uppáhalds leikfang hundsins með, og þá helst ef það er eitthvað sem hægt er að tosast á um við hundinn.


19.05.2014

Langar þig að læra að spora með hundinum þínum?

Picture
Það er vel þekkt að schäferhundar búi yfir einstökum hæfileikum þegar kemur að því að leysa hin ýmsu verkefni sem fyrir þá eru lögð, hvort sem það er við raunverulegar aðstæður eða til gamans með eiganda sínum.

Schäferdeildin vill leggja sitt að mörkum til að hjálpa félagsmönnum sínum af stað í að vinna með hundunum sínum. Deildin ætlar að standa fyrir fræðslu og æfingum fyrir þá sem langar að prufa að leyfa hundinum sínum að rekja spor. Sporaþjálfun er ein besta þjálfun sem hinn almenni hundaeigandi getur veitt hundinum sínum.

Við hefjum vegferð okkar næsta mánudagskvöld, 26. maí, með kynningu á þessu skemmtilega sporti. Kynningin fer fram í Sólheimakoti og hefst kl. 19:30. Farið verður yfir grunnatriði í sporarakningu ásamt því hvernig sé best að hátta þjálfuninni. Kynningin verður bókleg innandyra en í lokin geta þeir sem vilja spreytt sig með sinn hund undir leiðsögn leiðbeinanda. Fræðslan er í boði Schäferdeildarinnar, deildarmeðlimum að kostnaðarlausu. Leiðbeinandi verður Theodór Bjarnason hjá Leitarhundum SL. 

Ef þú hefur áhuga á að mæta getur þú skráð þig hér. 

13.05.2014

Sýning og sýningaþjálfun í júní


Næsta sýning hjá HRFÍ verður helgina 21. - 22. júní. Sýningin verður tvöföld að þessu sinni, þ.e.a.s. tvær sjálfstæðar sýningar. Hægt er því að skrá hunda sína báða dagana og fá dóm hjá tveimur dómurum. Síðasti skráningardagur á sýninguna er föstudagurinn 23. maí. Sýningin verður öll úti og verður haldin á stóru túni (tjaldsvæði) í Víðidal.

Schäferdeildin ætlar að vera með þrjár sýningaþjálfanir á þessu sama svæði, alla miðvikudaga í júní fram að sýningu. Leiðbeinendur verða Rúna Helgadóttir og Eva Kristinsdóttir schäfereigendur sem hafa mikla reynslu af því að sýna schäfer og leiðbeina við sýningaþjálfun.

Mið. 4. júní kl. 19:30 á tjaldsvæðinu í Víðidal

Mið. 11. júní kl. 19:30 á tjaldsvæðinu í Víðidal

Mið. 18. júní kl. 19:30 á tjaldsvæðinu í Víðidal


Munið eftir að taka með keðju, taum, nammi eða dót fyrir hundinn, kúkapoka og 500 kr sem renna óskipt til deildarinnar. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram á sýningaþjálfunina, bara mæta. Allir velkomnir.


06.05.2014

Schäferganga á sunnudaginn


Schäferdeildin ætlar að vera með göngu næsta sunnudag,11. maí kl. 13. Við munum hittast við listasafn Sigurjóns Ólafssonar sem er við Laugarnestanga í Reykjavík og ganga meðfram Sæbrautinni í átt að sólfarinu. Hvetjum alla til að koma með okkur, schäfereigendur og áhugafólk. Gangan er góð umhverfisþjálfun fyrir hundana sem þurfa að sjálfsögðu að vera í taum (ekki í flexi taum). Göngurnar eru einnig gott tækifæri fyrir schäfereigendur en í þeim gefst kostur á að kynnast öðrum deildarmeðlimum ásamt því að koma með fyrirspurnir til stjórnar Schäferdeildarinnar ef fólk hefur einhverjar spurningar er varða tegundina, deildarstarfið eða annað sem við kemur hundahaldi. Allir velkomnir, vonumst til að sjá sem flesta.


01.05.2014

Skapgerðarmat


Boðið verður upp á kynningu á skapgerðarmati fyrir félagsmenn HRFÍ. Kynningin verður haldin mánudaginn 5. maí kl. 19:30-21 á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15. Allir velkomnir.

Hér má lesa nánar um skapgerðarmat HRFÍ.


17.04.2014

Sámur er kominn út


Sámur, tímarit HRFÍ, kemur nú aðeins út rafrænt. Samþykkt var á félagsfundi HRFÍ í september 2013 að tímaritið kæmi út tvisvar rafrænt til reynslu. Hægt er að skoða blaðið í tveimur mismunandi vefforitum, hér má skoða blaðið í annarri útgáfunni:
Picture


11.04.2014

Schäferganga


Við viljum minna á páskagöngu Schäferdeildarinnar. Hún verður haldin á morgun, laugardag, í Mosfellsbænum. Hittumst við á bílaplaninu við Áslák kl. 13. Allir velkomnir.


31.03.2014

Nýtt lén deildarinnar


Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur stjórn Schäferdeildarinnar stofnað nýtt lén fyrir deildina en það er: schaferdeild.is. Eldra lén deildarinnar (schaferdeildin.is) verður einnig virkt áfram í skamman tíma (2-3 vikur) en eftir það verður aðeins nýja lénið virkt. Að öðru leyti verða ekki gerðar breytingar á heimasíðunni, hún verður áfram sú sama.


27.03.2014

Páskaganga Schäferdeildarinnar


Schäferdeildin verður með páskagöngu helgina fyrir páska eða laugardaginn 12. apríl. Við ætlum að hittast á bílastæðinu við Áslák í Mosfellsbæ kl. 13 en þaðan er hægt að ganga fallegar leiðir rétt fyrir utan þéttbýlið, t.d. niður með Varmá og í átt að hesthúsasvæðinu. Eftir gönguna geta þeir sem vilja fengið sér hressingu saman í bakaríinu og spjallað. Endilega takið daginn frá fyrir skemmtilega útiveru og umhverfisþjálfun. Vonandi sjáum við sem flesta, allir velkomnir.


24.03.2014

Ný stjórn Schäferdeildar HRFÍ


Á ársfundi deildarinnar þann 18. mars s.l. voru kjörnir inn þrír nýjir stjórnarmenn til tveggja ára. Stjórn deildarinnar skipa núna:

Guðmundur Rafn Ásgeirsson
Haukur Birgisson
Íris Hlín Bjarnadóttir
Rúna Helgadóttir Borgfjörð
Þórður Bogason

Fyrirspurnir sendist sem fyrr á netfang deildarinnar schaferdeild@gmail.com.

Ný stjórn Schäferdeildar þakkar fráfarandi stjórnarmeðlimum: Kristjönu Bergsteinsdóttur, Kristjönu Svansdóttur og Steinunni Hörpu Einarsdóttur. Bestu þakkir fyrir gott starf í þágu deildar á liðnu starfsári. 


06.03.2014

Ársfundur Schäferdeildar HRFÍ


Ársfundur Schäferdeildar HRFÍ verður haldinn þriðjudaginn 18. mars kl : 20.00 á skrifstofu Hundaræktarfélagsins að Síðumúla 15.

Dagskrá:
• Ársskýrsla um starfsemi deildarinnar
• Ársreikningur
• Stjórnarkjör (3 sæti laus)
• Önnur mál

Kjörgengi og kosningarétt hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild, eru skráðir í deildina og eru skuldlausir við HRFÍ það ár sem ársfundur er haldinn. 
Einungis þeir sem hafa verið félagsmenn í HRFÍ í tvö ár geta gefið kost á sér í stjórn ræktunardeilda. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.


23.02.2013

Helstu úrslit hjá Schäfer á Alþjóðlegri sýningu um helgina

Picture
Besti Öldungur sýningar C.I.B. ISCh Easy von Santamar.
Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fór fram um helgina og var okkar tegund dæmd í dag. Skráði voru til leiks samtals 51 Schäferhundur, 42 snögghærðir og 9 síðhærðir. Dómari var Arne Foss frá Noregi. Hér eru helstu úrslit:

Schäfer snögghærður:
Besti hvolpur tegundar varð Kolgrímu Hókus Pókus Filiokus. Eigandi: Guðný Vala Tryggvadóttir. Ræktandi. Sirrý Halla Stefánsdóttir. 
Annar besti hvolpur tegundar varð Gjósku Rósant. Eigendur: Óskar bergmann Tómasson/Anna María Grönfeld. Ræktandi: Arna Rúnarsdóttir.
Besti hundur tegundar (BOB) varð Gjósku Osbourne-Tyson, eigandi: Aðalheiður Þorstinsdóttir. Ræktandi: Arna rúnarsdóttir. Endaði í öðru sæti í tegundarhópi 1.
Annar besti hundur tegundar (BOS) varð CIB ISCh Easy von Santamar. Eigandi Arna Rúnarsdóttir. Ræktandi: Marc von Hout. Easy von Santamar varð einnig besti öldungur tegundar og síðan besti öldungur sýningar.
Besti afkvæmahópur tegundar varð Eldeyjar Hugi með afkvæmum (heiðursverðlaun). Endaði síðan sem besti afkvæmahópur dagsins. Eigendur: Theodór Bjarnason/Íris Hlín Bjarnadóttir. Ræktandi: Kristín Jóhannsdóttir.
Besta ræktunarhópur tegundar átti Kolgrímuræktun (heiðursverðlaun). Eigandi: Sirrý Halla Stefánsdóttir. Endaði síðan sem annar besti ræktunarhópur dagsins.

Schäfer síðhærður:
Besti hvolpur tegundar varð Gjósku Rökkvi-Þór, Eigandi: Sóley Isabelle Heenen. Ræktandi: Arna Rúnarsdóttir. Hann endaði svo í þriðja sæti í besti hvolpur dagsins.
Annar besti hvolpur varð Gjósku Ráðhildur. Eigandi: Arna Rúnarsdóttir. Ræktandi: Arna Rúnarsdóttir.
Besti hundur tegundar (BOB) varð Gjósku Pæja. Eigandi: Arna Rúnarsdóttir. Ræktandi: Arna Rúnarsdóttir.
Annar besti hundur tegundar (BOS) varð RW-13 Gjósku Osiris. Eigandi: Ófeigur Sigurðsson. Ræktandi: Arna Rúnarsdóttir. 
Besta ræktunarhóp tegundar átti Gjóskuræktun (heiðursverðlaun). Eigandi: Arna  Rúnarsdóttir.


16.02.2014

Sýningar og umhverfisþjálfun Schäferdeildarinnar


Schäferdeildin ætla að halda tvær sýningarþjálfanir í vikunni fyrir félagsmenn sína vegna alþjóðlegrar hundasýningar HRFÍ næstu helgi. Að þessu sinni ætlum við að hittast í innanhús hringgerði í hesthúsahverfinu í Almannadal. Farið verður yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga þegar Schäfer er sýndur. Skiptið kostar kr. 500.- og tímasetningar eru sem hér segir:

Þriðjudaginn 18. mars kl. 20:00 og
Fimmtudaginn 21. mars kl. 20:00


Þeir sem vita ekki hvar hesthúsahverfið í Almannadal er geta haft samband í síma 822-6696 til að fá leiðsögn.


28.01.2014

Takk Bendir


Bendir hefur verið aðalstyrktaraðili Schäferdeildarinnar frá opnun verslunarinnar og gefið mikið magn glæsilegra verðlaunagripa fyrir verðlaunahafa á öllum sýningum HRFí á þeim tíma, ásamt því að gefa nánast alla veðlaunagripi á 25 ára afmælissýningu deildarinnar síðasta sumar. Stjórn Schäferdeildarinnar vill koma á framfæri þakklæti til eigenda Verslunarinnar Bendis, Siggu og Palla fyrir gott og farsælt samstarf á liðnum árum. Allt er gott sem endar vel. Verslunin Bendir er staðsett í Hlíðarsmára 13, Kópavogi.

Picture





07.01.2014

Nýársganga Schäferdeildarinnar laugardag kl. 13:00


Í tilefni að nýju ári ætlum við að skella okkur í skemmtigöngu með hundana okkar í miðbæ Reykjavíkur. Við ætlum að hittast á bílaplani sem stendur við Sturlugötu hægra megin við Íslenska Erfðagreiningu klukkan 13:00 stundvíslega. Við munum svo stefna í átt að miðbænum, gegnum hljómskálagarðinn og í kringum Reykjavíkurtjörn. Skemmtigöngur Schäferdeildarinnar hafa ávalt vakið mikla athygli hjá öðrum vegfarendum og er þetta skemmtileg leið til að kynna tegundina okkar í 101 Reykjavík.
08.12.2013

Stigahæstu hundar og stigahæstu ræktendur heiðraðir í dag

Picture
Stigahæstu ræktendur Schäferdeildarinnar 2013 Arna Rúnarsdóttir (Gjóskuræktun) og Sirrý Halla (Kolgrímuræktun)
Stigahæstu hundar og stigahæstu ræktendur Schäferdeildarinnar voru heiðraðir í dag. Stigahæsti rakki í flokki snögghærðra Schäferhunda varð RW-13 C.I.B. ISCh Welincha's Yasko. Stigahæsta tík og jafnframt stigahæsti hundur deildarinnar í flokki snögghærðra varð RW-13 ISCh Kolgrímu Dee Hólm. Stigahæsti rakki í flokki síðhærðra Schäferhunda varð Svarthamars Garpur og stigahæsta tík í flokki síðhærða Schäfer hunda varð Kolgrímu Gypsy woman Hólm. Þessir tveir hundar fengu jafn mörg stig á árinu og deila því titlinum stigahæsti síðhærði Schäfer hundur deildarinnar 2013. Í keppni stigahæsta ræktenda enduðu tveir ræktendur með nákvæmlega jafn mörg stig. Það voru Arna Rúnarsdóttir (Gjóskuræktun) og Sirrý Halla Stefánsdóttir (Kolgrímuræktun). Stjórn Schäferdeildarinnar óskar Vinningshöfum dagsins innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu.

30.11.2013

Jólakaffi Schäferdeildarinnar


Jólakaffi Schäferdeildarinnar mun fara fram sunnudaginn 8. desember kl. 17:00 í husakynnum HRFÍ við Síðumúla 15. Við verðurm í jólaskapi og munum bjóða upp á kósý stemmningu, kaffi og konfekt. 

Komin er hefð fyrir því að félagsmenn Schäferdeildarinnar hittist í desember á hverju ári og fari yfir árangur ársins á sýningum og í vinnu. Heiðraðir eru stigahæstu hundar og stigahæstu ræktendur Schäferdeildarinnar á sýningum. Þar gildir samanlagður árangur á sýningum ársins samkvæmt reglum deildarinnar. Stigahæstu hundar í vinnuprófum ársins eru einnig heiðraðir. Sjá lokastöðu hér.

Fjögur frábær fyrirtæki styrktu okkur rausnalega með verðlaunum af ýmsu tagi fyrir jólakaffi deildarinnar og kunnum við þeim bestu þakkir.
Picture
Picture
Picture
Picture


20.11.2013

Úrslit Alþjóðlegrar sýningar HRFÍ um síðustu helgi

Picture
Besti hvolpur sýningar á sunnudeginum, Gjósku Rósant. Mynd: Ágúst Ágústsson
Nóvembersýning HRFÍ fór farm um síðustu helgi. Að þessu sinni voru skráðir 42 snögghærðir Schäfer hundar og 10 síðhærðir. Dómari hjá snögghærðum Schäfer var Hollendingurinn Gerard Jipping. Þar varð besti hundur tegundar, Gjósku Mylla en annar besti hundur varð Gjósku Olli. Gjósku Mylla endaði svo í þriðja sæti í Tegundarhópi 1. Gjósku Rósant varð besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða og varð síðan Besti hvolpur sýningar. Þá varð RW-13 C.I.B ISCH Welincha’s Yasko með afkvæmum, Besti afkvæmahópur dagsins. Dómari hjá síðhærðum Schafer var Seamus Oates frá Írlandi. Besti hundur tegundar hjá síðhærðum Schafer varð Svarthamars Garpur og annar besti hundur varð Kolgrímu Gypsy WomanHólm. Besti hvolpur tegundar varð Gjósku Rosi-Loki. 
Sjá úrslit hér.

28.10.2013

Sýningarþjálfun deildarinnar laugardaginn 2. nóvember n.k.


Schäferdeildin mun halda sýningarþjálfun laugardaginn 2. nóvember n.k. í versluninni Gæludýr.is, Korputorgi klukkan 14:00 og 15:00. Þeir sem vilja koma með hvolpa á æfingu mæti klukkan 14:00 og þeir sem eru með hunda eldri en níu mánaða mæti klukkan 15:00. 

Þetta er mjög góð æfing fyrir hunda og sýnendur þar sem farið verður yfir undirstöðuatriði í sýningu á Schäfer. Leiðbeinendur okkar eru með margra ára reynslu í að sýna tegundina með góðum árangri. Æfingin kostar kr. 500.- sem rennur óskert til deildarinnar.

25.10.2013

Helgafellsganga á morgun


Fjallgönguhópur Schaferdeildar ætlar að ganga Helgarfell í hafnarfirði á morgun laugardaginn 26.okt.
Við hittumst á bílastæði Fjarðarkaups klukkan 11.30 fyrir þá sem ekki rata og getum keyrt saman þaðan. 
Þetta er mikið gengin leið þannig allir hafa með sér tauma, kúkapoka og auðvitað vatn fyrir hundinn.

Spáð er ágætis veðri, en auðvitað búum við á íslandi og veðrið breytist fljótt og ráðlagt er að vera með góðan klæðnað og góða skó þar sem jarðvegurinn gæti verið blautur.
Hlökkum til að sjá sem flesta, allir velkomnir með

20.10.2013

Sýningaþjálfun Schäferdeildarinnar í verslun gæludýr.is

Picture
Schäferdeildin ætlar að standa fyrir tveimur sýningarþjálfunum í húsakynnum gæludýr.is fyrir næstu sýningu. Fyrri sýningaþjálfunin fer fram laugardaginn 2. nóvember klukkan 14:00 - 16:00 en sú seinni viku síðar, laugardaginn 9. nóvember á sama tíma. Við eigum bókaðann tíma frá klukkan 14:00 - 16:00 og ætlum að skipta honum í tvennt. Hvolpar  (4-9 mánaða)  mæti klukkan 14:00 og eldri hundar (9 mánaða og eldri) mæti klukkan 15:00. 

Þetta er mjög góð æfing fyrir hunda og sýnendur þar sem farið verður yfir undirstöðuatriði í sýningu á Schäfer. Leiðbeinendur okkar eru með margra ára reynslu í að sýna tegundina með góðum árangri. Hvert skipti kostar kr. 500.- sem rennur óskert til deildarinnar.


19.10.2013

Flottur hópur í haustgöngu Schäferdeildarinnar

Picture
Flottur hópur í haustgöngu Schäferdeildarinnar sem fram fór í Hafnarfirði.


13.10.2013

Síðasti skráningadagur á nóvembersýningu HRFÍ er 18. október


Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin helgina 16. - 17. nóvember 2013. Dómari í okkar tegund verður Gerard Jipping frá Hollandi. Skráningafrestur er til 18. október n.k. sem er út næstu viku. Frekari upplýsingar á vefsíðu HRFí.

11.10.2013

Haustganga Schäferdeildarinnar á sunnudaginn 13. okt.


Næsta sunnudag ætlum við að halda göngu og hitting í Hafnarfirði fyrir Schäfer eigendur. Við ætlum við að hittast klukkan 13:00 á bílastæði Hafnarfjarðarkirku sem stendur við Strandgötu. Gangan mun ekki reyna mikið á úthald hundana og mun því henta bæði ungum og gömlum hundum. Sérstaklega viljum við bjóða velkomin hvolpaskott sem hafa verulega gott af þessari skemmtilegu umhverfisþjálfun. Eftir gönguna ætlum við að kíkja á kaffihús og spjalla saman um hunda og fleira.  

01.10.2013

Laugavegsganga næsta laugardag


Laugardaginn 5. október mun Hundaræktarfélag Íslands standa fyrir árlegri göngu með hunda niður Laugaveginn í Reykjavík. Lagt verður af stað frá Hlemmi kl. 13:00 og mun gangan mun svo enda í Hljómskálagarðinum. Við hvetjum að sjálfsögðu alla Schäfereigendur að mæta með flottu hundana sína.

25.09.2013

Tegundakynning í Garðheimum um næstu helgi


Um næstu helgi verða haldnir hinir árlegu stórhundadagar í Garðheimum, Schäferdeildin hefur tekið þátt í þessum skemmtilega viðburði frá upphafi og mun engin breyting verða þar á. Við óskum eftir hressum og jákvæðum hundum ásamt eigendum þeirra til að taka þátt í þessu með okkur. Endilega hafðu samband í síma 822 6696 eða sendu póst á netfangið schaferdeild@gmail.com, ef þú hefur áhuga á að kynna tegundina okkar og sýna hundinn þinn í básnum okkar í um það bil klukkustund eða svo annað hvorn daginn. Athugið að hvolpar verða að vera orðnir a.m.k. fjögurra mánaða til að vera með.

11.09.2013

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 7. og 8. september

Picture
Besti afhvæmahópur tegundar: RW-13 C.I.B. ISCh Welincha's Yasko. (mynd Marianna Magnúsdóttir)
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ fór farm um síðustu helgi. Að þessu sinni voru skráðir 29 snögghærðir Schäfer hundar og 4 síðhærðir. Besti hundur tegundar varð Gjósku Osbourne-Tyson og annar besti hundur varð RW-13 ISCh Kolgrímu Dee Hólm. Gjósku Osbourne-Tyson endaði í öðru sæti í Tegundarhópi 1. Helstu úrslit er hægt að sjá hér.

31.08.2013

ISCh OB 1 Kolgrímu Blaze Hólm er fyrsti íslenski sporameistarin

Picture
Kampakátir keppendur og starfsfólk sporaprófsins. Dómari var Albert Steingrímsson (lengst til vinstri)
Þann 24. ágúst hlaut ISCh OB 1 Kolgímu Blaze Hólm titilinn ISTrCh (Icelandic Tracking champion) með því að klára spor 3. Schäfer tíkin Kolgrímu Blaze er fyrsti hundur á Íslandi til að hljóta Sporameistara titilinn, en til þessa að verðskulda titilinn þarf að klára sporapróf 1, 2 og 3. Stjórn Schäferdeildarinnar óskar eiganda og stjórnanda Blaze, Sirrý Höllu innilega til hamingju með þennan frábæra árangur, einnig viljum við þakkar henni fyrir að koma tegundinni okkar á spjöld sögunnar hjá HRFÍ. Það er von okkar að þetta sé bara fyrsti af mörgum sporameisturum í tegundinni á komandi árum. 

09.08.2013

Nýir Íslenskir meistarar


Tveir hundar hafa hlotið titilinn ISCh Íslenskur Meistari.
ISCh CIB NORD SE NO DK UCh DKW-09 NW-09 KBHW-09&10 SCHH3 BH AD Xen Av Quantos eigandi Gísli V. Gunnarsson.
ISCh RW-13 Kolgrímu Dee Hólm eigandi Sirrý Halla Stefánsdóttir og Leif Vidar Belgen.

Óskum við eigendum innilega til hamingju.
08.08.2013

Úrslit afmælissýningar deildarinnar


Heildarúrslit 25 ára afmælissýningar deildarinnar eru komin í hús. Smelltu hér til að skoða. Umsagnir hunda munu koma inn á síðuna fljótlega. Stjórn Schäferdeildarinnar vill enn og aftur þakka þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem hjálpuðu okkur að setja upp þessa frábæri sýningu.
Picture
19.07.2013

Myndir frá afmælissýningunni 

Picture
Picture
Picture
Það eru loksins komnar myndir frá sýningunni inn á facebook síðuna okkar . Skoða myndir hér.

11.07.2013

Rætt við norska dómarann Karl Otto Ojala


Viðtal: Brynja Tomer
Hæpin veðurspá, dumbungur og gegnvot grund eftir langvarandi rigningar urðu til þess að 25 ára afmælissýning deildarinnar var færð úr Guðmundarlundi inn í reiðhöll Fáks í Víðidalnum. Telja má fullvíst að sýnendur, starfsmenn og áhorfendur hafi allir verið ánægðir með þá ákvörðun, enda hitastigið 8 gráður og heilmikil slysahætta á rennvotu grasinu utan dyra.  Lesa meira

08-07-2013

Glæsileg 25 ára afmælissýning deildarinnar að baki

Picture
Besti hundur sýningar 1, C.I.B. ISCh RW-13 Welincha's Yasko og Besti hundur sýningar 2, Svarthamars Garpur.
Glæsileg afmælissýning fór fram á laugardaginn. Besti hundur sýningarinnar varð C.I.B. ISCH RW-13 Welincha's Yasko. En hann var besti hundur tegundar í stutthærðum Schafer. Annar besti hundur sýningar varð Svarthamars Garpur, sem var besti hundur tegundar í flokki síðhærðra Schaferahunda. Færa varð sýninguna inn í Reiðhöll Fáks vegna veðurs en það kom ekki að sök og allir skemmtu sér vel og var góð stemning hjá fólki og hundum. 

Dómari á sýningunni var Karl Otto Ojala frá Noregi og var mikill fengur fyrir okkur að fá hann til landsins. Með fullri virðingu fyrir öðrum Schafer dómurum sem komið hafa á klakann er hann sennilega sá allra færasti sem dæmt hefur hundana okkar. Karl Otto er með hæstu gráðu frá SV í Þýskalandi í að dæma Schaferhunda bæði á sýningum og í vinnu. 

Stjórn Schaferdeildarinna vill þakka öllum sem komu að framkvæmd og uppsetningu sýningarinnar innilega fyrir hjálpina. Einnig viljum við þakka styrktaraðilum sýningarinnar fyrir stuðninginn, án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Frekari úrslit verða birt fljótlega.
Picture

02.07.2013

Skráning stendur yfir í glæsilegt afmælispartý deildarinnar


Skráning í afmælispartý Schäferdeildarinnar í Hestamiðstöðinni í Víðidal stendur yfir. Hægt er að skrá sig fram að hádegi næsta föstudag. Glæsilegur matseðill og góð skemmtun.

30.06.2013

Dagskrá 25 ára afmælishátíðar Schaferdeildarinnar

Næsta helgi verður stútfull af skemmtilegheitum fyrir áhugafólk um tegundina. Dagskráin hefst laugardaginn 6. júlí með afmælissýningu deildarinnar í Guðmundarlundi. Fyrsti hundur fer í dóm hjá Karl Otto Ojala schäferdómara frá Noregi kl.10:00 stundvíslega. Sýninganúmer verða afhent á staðnum (í veitingasölutjaldi) og eru sýniendur beðnir að mæta tímanlega til að fá sýninganúmer og gera sig tilbúina þannig að allt gangi smurt fyrir sig. Veitingasala verður á staðnum og verður selt kaffi, kaldar samlokur, gos og sætindi. Allir að taka með sér reiðufé því engin posi verður á staðnum. Enginn aðgangseyrir er inn á svæðið allir velkomnir til að sjá flotta hunda og hvetja sitt fólk 

Afmælispartý deildarinnar verður haldið að kvöldi sama dags í Hestamiðstöðinni í Víðidal (litla húsið fyrir neðan Reiðhöllina). Grillmeistarar koma og  grilla ofan í okkur ljúfengan grillmat með öllu tilheyrandi. Engir drykkir verða í boði og er gestum velkomið að hafa með sér drykkjarföng að eigin vali til að skála fyrir árangri dagsins. Húsið opnar kl.19:00 og matur verður borinn fram kl. 20:00. Við munum svo skemmta okkur saman fram á kvöld. Miðinn kostar 4.000 krónur pr. mann og er hægt að skrá sig hér. Matseðillinn verður birtur um leið og hann berst.

Sporapróf verður haldið á sunnudeginum 7. júlí kl. 12:00. Prófað verður í spori I, II og III. Dómari verður Karl Otto Ojala frá Noregi. Staðsetning auglýst síðar. Áhorfendur velkomnir.

Sækja dagskrá sýningar hér.
dagskr_sningar_breytt.pdf
File Size: 384 kb
File Type: pdf
Download File

26.06.2013

Afmælispartý Schäferdeildarinnar

Picture
Schäferdeildin ætlar að slá upp afmælispartýi að kvöldi sýningardagsins 6. júlí n.k. Partýið verður haldið á litlum og skemmtilegum stað í Víðidal. Fenginn verður kokkur til að grilla ofan í okkur ljúfengan grillmat með öllu tilheyrandi og ætlum við að skemmta okkur saman fram eftir kvöldi. Hægt verður að skrá sig á gestalistann gegn hóflegu gjaldi. Engin drykkir verða í boði og er gestum velkomið að hafa með sér drykkjarföng að eigin vali til að skála fyrir árangri dagsins. Opnað verður fyrir skráningu þann 1. júlí. Nánar auglýst síðar.

24.06.2013

Framlengdur frestur til skráningar í sporapróf deildarinnar


Framlengdur frestur til skráningar í sporapróf 7. júlí er til 1. júlí 
Þar sem starfsfólk á skrifstofu HRFÍ er komi í sumarfrí þarf að skrá sig svona:
Lagt inn á reik hjá HRFÍ  515-26-707729 kt:680481-0249  
og senda staðfestingu á greiðslu á schaferdeild@gmail.com 
Koma þarf einnig fram hvaða próf er verið að skrá hundinn í spor I,II eða III, 
og ættbókarnafn/nafn á hundinum.
Prófið kostar 4.500 kr

18.06.2013

Sýningarþjálfun 


Minna á sýningarþjálfun á morgun 19.júni  kl 20 í Hafnarfirði við Viðistaðarkirkju.
Koma með nammi/dót, poka og góða skapið.
Hlökkum til að sjá ykkur.

Skoða dagskrá sýningaræfinga fram að sýningu

12.06.2013

Sporapróf  Schaferdeildarinnar 7. júlí 2013

Picture
Í tengslum við afmælissýningu deildarinnar 6. júlí og komu dómarans Karl Otto Ojala ætlar Schaferdeildin að standa fyrir sporaprófum daginn eftir afmælissýninguna þann 7. júlí. Prófað verður í Spori I, II og III þennan dag. Þetta verða opin próf og teljast því til stiga hjá Vinnuhundadeild HRFÍ. Við hvetjum alla sem eru að vinna með hundana sína í sporavinnu að nýta sér þetta einstaka tækifæri og skrá hundana sína í sporapróf þennan dag.

Skráningarfrestur er til 21. júní og skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ í Síma 588 5255

11.06.2013

60 hundar skráðir á afmælissýninguna


Lokað hefur verið fyrir skráningu á 25 ára afmælissýningu deildarinnar. Þátttakan er aldeilis frábær og eru 60 flottir Schaferhundar skráðir til leiks. Það er vel við hæfi á afmælisári að met séu slegin því aldrei hafa jafn margir Schaferhundar verið skráðir til keppni á einni sýningu í sögu deildarinnar.

07.06.2013

Búið að framlengja skráningartímann til 11. júni.


Skráning í síma 588-5255 og á skrifstofu HRFÍ. Allir schaferhundar sem eru með ættbók frá HRFÍ velkomnir að skrá sig. Taktu þátt í að gera þessa sýningu að flottri og skemmtilegri schaferhunda sýningu.

04.06.2013

Minnum á síðasta skráningardag 


Minnum á að síðasti skráningardagur er 7. júní 2013 á flottu deildarsýninguna okkar allra.
Skráning í síma 588-5255 hjá skrifstofu HRFÍ
 www.hrfi.is Upplýsingar


30.05.2013

Sýningarþjálfun hjá schaferdeildinni fyrir 25 ára afmælissýninguna.


1. æfing   5. júní  miðvikudag í Hafnarfirði við Víðistaðakirkju kl 20

2. æfing 12. júní  miðvikudag í Hafnarfirði við Víðistaðakirkju
kl 20

3. æfing 19. júni miðvikudag í Hafnarfirði við
Víðistaðakirkju kl 20

4. æfing 25. júni þriðjudag  í Hafnarfirði við
Víðistaðakirkju kl 20

5. æfing 27. júni fimmtudag í Hafnarfirði við
Víðistaðakirkju kl 20

6. æfing 1. júlí Mánudag í Guðmundalundi kl 20

7. æfing 3. júlí Miðvikuda í Guðmundalundi kl 20


Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja stjórnin.

26.05.2013

Besti hundur sýningar á RW-13 sýningu HRFÍ

Picture
Besti hundur sýningar Kolgrímu Dee Hólm ásamt eiganda og ræktanda, Sirrý Höllu. Mynd: Ágúst Ágústsson
RW-13 Kolgrímu Dee Hólm varð besti hundur sýningar á RW-13 sýningu HRFÍ í dag. Ræktandi og eigandi Dee er Sirrý Halla Stefánsdóttir og Leif Vidar Belgen. Óskum við henni innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Það er ekki á hverjum degi sem Schäferhundur er Besti hundur sýningar, af öllum tegundum. Hvað þá hundur sem er ræktaður hér á litla Íslandi.

26.05.2013

Helstu úrslit á Reykjavík Winner sýningu HRFÍ


Í gær kepptu Schäferhundar í Reykjavík Winner sýningu HRFÍ. Dómari var Jörgen Hindse frá Danmörku. Besti hundur tegundar varð RW-13  Kolgrímu Dee Hólm sem gerði sér lítið fyrir og sigraði grúbbu eitt og er komin í úrslit Best in show í dag. Við erum búin að setja inn helstu úrlit hjá Schafernum. Skoða úrslit hér.

22.05.2013

Göngutúr og spjall um afmælissýningu


Þriðjudaginn 28 maí n.k. er fyrsti skráningardagur á 25 ára afmælissýningu Schäferdeildarinnar, sem haldin verður þann 6. júlí. Að því tilefni ætlum við hittast í tvennum tilgangi. Fyrst förum við í stuttann göngutúr í kringum Reykjavíkurtjörn með hundana okkar. Að því búnu ætlum við að spjalla saman um undirbúning og framkvæmd sýningarinnar sem styttist óðum í. Undirbúningur sýningarinnar gengur vel þó ennþá eigi nóg eftir að gera. 

Við í stjórninni ætlum að kynna stuttlega hvað búið er að gera og hvað við viljum gera til að gera sýninguna sem glæsilegasta. Við viljum gjarnan heyra hvað þú hefur að segja um framvindu mála hjá okkur. Endilega láttu sjá þig ef þú hefur skoðun á málefninu eða vilt leggja hönd á plóginn því okkur vantar alla þá hjálp sem við getum fengið til að gera þessa sýningu þá glæsilegustu og eftirminnilegustu sem þú hefur tekið þátt í. 

Mæting á bílaplani Kvennaskólans kl.19:00.

02.05.2013

Breytingar á vefsíðu deildarinnar


Um þessar mundir erum við að fríska upp á útlit og uppsetningu vefsíðunnar okkar. Þú munt eflaust rekast á ýmsa augljósa agnúa og undarlegheit á meðan á þessum breytingum stendur. Eitthvað mun hverfa af síðunni tímabundið eða alveg og annað nýtt  mun bætast við.  Við vonum að þetta tímabundna ástand muni ekki koma sér illa, og að á endanum verði vefsíðan þægilegri og betri fyrir alla.

21.04.2013

Schaferdeildar gangan 20. apríl 2013


Picture
Stjórn schaferdeildar þakkar öllum innlega fyrir komuna í gönguna í dag.Það mættu 12 hundar á öllum aldri, prúðir og flottir.Fórum góðan göngutúr um Elliðaárdal.Þetta var mjög góð umhverfisþjálfum fyrir hundana þeir fóru í undirgöng, yfir göngubrúnna, sáu kanínur, gæsir, barnavagna, hjólandi- og hlaupandi fólk, með fram læknum og ganga með hinum hundunum. Nokkrir hundar vildu fara meira út í lækinn en aðrir :-)
Svo eftir gönguna fórum við inn á Grillhúsið og fengum okkur kaffi og fleira.
Takk fyrir daginn stjórn schaferdeildar

Fleiri myndir frá göngunni hér.


14.04.2013

Schäferdeildar ganga verður í Elliðaárdal.


Næsta schaferdeildar ganga verður 20. apríl 2013 kl:13:00. Við ætlum að ganga um Elliðaárdalinn. Við hittumst á bílaplaninu við Grillhúsið Sprengisandi. Eftir gönguna ætlum við að fá okkur kaffi og fl. á Grillhúsinu. Hlökkum til að sjá ykkur.

08.04.2013

25 ára afmælissýning Schäferdeildarinnar


Karl Otto Ojala
Karl Otto Ojala dómari
í tilefni af tuttugu og fimm ára afmæli Schäferdeildarinnar í ár munum við halda glæsilega afmælissýningu laugardaginn 6. júlí í Guðmundarlundi í Kópavogi. Dómari sýningarinnar verður Karl Otto Ojala frá Noregi, en hann hefur getið af sér gott orð sem Schäfer dómari um allan heim og mun hann meðal annars verða einn af dómurum Norsk vinner í sumar. Við höfum einnig fengið hann til að  dæma í vinnuprófum hjá okkur á sunnudeginum eftir sýninguna. Skráning á sýninguna hefst skömmu eftir sumarsýningu HRFÍ kringum mánaðarmótin maí/júní. Nánar auglýst síðar.

06.04.2013

Schäferdeildar ganga í Hafnarfirði 6. apríl


Picture
Góð þátttaka var í Schäfergöngu í Hafnarfirði
Stjórn schaferdeildar þakkar öllum innlega fyrir komuna í gönguna í dag. Frábært að sjá alla fallegu hundana ykkar allir svo prúðir og góðir. 
Fórum góðan göngutúr með fram bakkanum og röltum við svo í miðbæin og komum við á Súfustanum. Sátum úti með hundana og fengum okkur kaffisopa og fleira.

Hér er hægt að sjá fleiri myndir úr gögunni: Myndir


02.04.2013

Skráning í Schäferdeildina


Ef þú átt Hreinræktaðan Schafer hund getur þú gengið í Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ). Við inngöngu í Hundaræktarfélagið eru eigendur Schafer hunda ekki skráðir sjálfkrafa í Schaferdeildina. Athugaðu samt að forsenda þess að þú getir skráð þig í Schäferdeildina er að þú sérst félagsmaður í HRFÍ. Hér fyrir neðan getur þú skráð þig í deildina og tekið þátt í því skemmtilega starfi sem þar fer fram. Þess ber að geta að það er alveg ókeypis að vera í Schäferdeildinni. Skrá mig í deildina

26.03.2013

Ganga og hittingur í Hafnarfirði


Það verður schafer páskaganga laugardaginn 6.apríl klukkan 13.00.
Gengin verður hringur í Hafnarfirði, byrjum hjá Íþróttahúsinu á Strandgötunni.Eftir gönguna geta þeir sem vilja sest niður á kaffihúsi og fengið sér kaffi og kökusneið :) Hlökkum til að sjá sem flesta.


22.03.2013

Hundur mánaðarins


Við ætlum að fara á stað með þá nýbreytni að hafa 1-2 hunda sem hund mánaðarins á hér á heimasíðu schaferdeildarinnar. Til að taka þátt þá svarið þið eftirtöldum spurningum og sendið 1 mynd og hundurinn þinn mun eiga möguleika á að vera hundur mánaðarins.

1. Hvað heitir hundurinn þinn?
2. Hvað er hundurinn gamall?
3. Af hverju valdir þú þér schafer?
4. Eitthvað skemmtilegt sem hefur komið uppá í sambandi við hundinn?

Sendið mynd og svör við spurningum á netfang schaferdeildar, schaferdeild@gmail.com.

15.03.2013

Ný stjórn Schäferdeildarinnar


Fjórir nýjir einstaklingar voru kjörnir í stjórn Schaferdeildarinnar á aðalfundi deildarinnar. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og er skipuð sem hér segir:

Guðmundur Rafn Ásgeirsson, formaður
Rúna Helgadóttir Borgfjörð, varaformaður
Kristjana Bergsteinsdóttir, gjaldkeri
Kristjana Svansdóttir, ritari
Steinunn Harpa Einarsdóttir, meðstjórnandi

Fyrirspurnir sendist sem fyrr á netfang deildarinnar schaferdeild@gmail.com.

Ný stjórn Schaferdeildar þakkar fráfarandi stjórnarmeðlimum: Íris Hlín Bjarnadóttir, Hallgerður Kata Óðinsdóttir og Eva Kristinsdóttir. Bestu þakkir fyrir gott starf í þágu schaferdeildar á liðnu starfsári.

09.03.2013

Aðalfundur Schäferdeildarinnar 14. mars


Aðalfundur Schäferdeildarinnar verður haldinn fimmtudaginn næsta kl. 20 á skrifstofu HRFÍ. Farið verður yfir ársskýrslu stjórnar og kosið í laus sæti. Fjögur sæti eru laus, þrjú til tveggja ára og eitt til eins árs.

Í starfsreglum ræktunardeilda segir meðal annars:

"Stjórn ræktunardeildar skal skipuð fimm félagsmönnum. Einungis þeir sem hafa verið
félagsmenn í HRFÍ í tvö ár geta gefið kost á sér í stjórn ræktunardeildar.

Kosning í stjórn ræktunardeildar fer fram á ársfundi deildarinnar ár hvert. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Endurkjör er leyfilegt. Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild, eru skráðir í deildina og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni."

Sjá nánar um starfsreglurnar hér.
Picture
Picture

Viðburðadagatal

Lau. 24. jan.
Hvolpasýning HRFÍ (3-9 mán).
Síðasti skráningardagur er fös. 9. jan.

Lau. 21. feb.
Hundafimikeppni HRFÍ

28. feb - 1. mars
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ.
Síðasti skráningardagur er fös. 30. jan.

    Hafðu samband við deildina:

Senda

Láttu í þér heyra

Allar almennar fyrirspurnir er varða málefni deildarinnar skulu sendast á beint á ræktunarstjórn deildarinnar. Fyrirspurnum er svarað strax eða eftir næsta stjórnarfund, allt eftir eðli málsins.

Ef þú ert með ábendingu er varða rangar upplýsingar á vefsíðunni okkar getur þú sent stjórn deildarinnar vefpóst með beiðni um leiðréttingu eða fyllt út í formið hér að ofan.

Við viljum heyra hvað þú hefur að segja um starfsemi deildarinnar. Láttu okkur vita hvað þú ert ánægð/ur með og komdu með ábendingu um það sem betur má fara. Allar athugasemdir og hugmyndir eru vel þegnar.

Netfang stjórnar Schäferdeildarinnar er schaferdeild@gmail.com
Picture
Picture

Stjórn Schäferdeildarinnar

Íris Hlín Bjarnadóttir
Rúna Helgadóttir Borgfjörð


04.03.2013
Stórhundadagar í Garðheimum 9. - 10. mars

Garðheimar halda sína árlegu stórhundadaga um næstu helgi en þá gefst gestum kostur á að kynnast meðalstórum og stórum hundategundum.

Schäferdeildin verður með bás að venju og óskum við eftir áhugasömum eigendum með hunda sína sem eru tilbúnir til að sitja fyrir hönd deildarinnar og kynna tegundina. Stórhundadagarnir eru frá kl. 12-17 báða daga en hæfilegur tími á bás er ca 1-1,5 klst.

Vinsamlega látið vita í gegnum vefpóst deildarinnar schaferdeild@gmail.com eða facebooksíðuna okkar www.facebook.com/schaferdeildin ef þið hafið áhuga á að taka þátt eða fá frekari upplýsingar.
Margir fallegir hundar mættu á básinn á síðustu stórhundadögum sem haldnir voru í september.

28.02.2012
Úrslit sýningarinnar

Alls voru 57 schäferhundar skráðir til leiks, þar af 10 síðhærðir. Dómari var Hanne Laine Jensen frá Danmörku.


Að þessu sinni var byrjað að dæma í snögghærðum schäfer:

Aðeins var keppt í yngri hvolpaflokk 4-6 mánaða. Besti hvolpur tegundar var hin 4 mánaða Gunnarsholts Xandra. Hún varð einnig annar besti hvolpur dagsins. Eigandi hennar er Hjördís Helga Ágústsdóttir. Annar besti hvolpur tegundar var Ice Tindra Forest. Eigandi hans er Kristjana Bergsteinsdóttir.

Besti hundur tegundar varð rakkinn ISCh SchH3 BH AD kkL1 Bethomin´s Ajax. Hann fékk sitt síðasta alþjóðlega meistarastig og er því orðin alþjóðlegur meistari.
Ajax stóð sig vel í úrslitum og varð í þriðja sæti í tegundarhópi 1. Eigandi hans er Øystein Berg-Thomas.

Annar besti hundur tegundar varð Gunnarsholts Vanessa og fékk hún bæði íslenskt og alþjóðlegt meistarastig. Eigandi hennar er Hjördís Helga Ágústsdóttir.

Besti öldungur tegundar varð Sleggjubeina Z-Esja. Eigandi hennar er Kristinn Óskarsson.

Besta afkvæmahóp tegundar átti INTCh ISCh Welincha´s Yasko með afkvæmum sínum og varð sá hópur annar besti afkvæmahópur dagsins. Eigandi Yasko er Sirrý Halla Stefánsdóttir.

Besta ræktunarhóp tegundar átti Kolgrímuræktun og varð sá hópur einnig besti ræktunarhópur dagsins. Eigandi Kolgrímuræktunar er Sirrý Halla Stefánsdóttir.


Úrslit í síðhærðum schäfer eru eftirfarandi:

Keppt var í hvolpaflokki 4-6 mánaða. Besti hvolpur tegundar var Ice Tindra Frida. Eigandi hennar er Kristjana Bergsteinsdóttir. Annar besti hvolpur var Ice Tindra Fenrir. Eigandi hans er Kristjana Svansdóttir.

Besti hundur tegundar varð tíkin Gjósku Gola Glæsilega og fékk hún bæði íslenskt og alþjóðlegt meistarastig. Eigendur hennar eru Rúna Helgadóttir og Arna Rúnarsdóttir.

Í fyrsta sinn var sýndur ræktunarhópur í síðhærðum schäfer. Það var hópur frá Gjóskuræktun og var hann valinn besti ræktunarhópur tegundar. Eigandi Gjóskuræktunar er Arna Rúnarsdóttir.


Hér má sjá nánar um sætaröðun í hvolpaflokkum og keppni um bestu rakka og bestu tíkur tegundar.


Við sendum eigendum verslunarinnar Bendis okkar bestu þakkir en þau styrktu deildina enn og aftur með glæsilegum verðlaunum. Það eru forréttindi að fá þann stuðning sem eigendur Bendis hafa veitt okkur. Verslunin Bendir er í Híðarsmára 13 í Kópavogi.
Picture

23.02.2013
Breytt stigagjöf deildarinnar

Á stjórnarfundi þann 11. nóv. 2012 samþykkti stjórn Schäferdeildarinnar breytingar á stigagjöf vegna stigahæsta ræktanda og stigahæstu hunda í vinnu og á sýningum. Aðalbreytingin er sú að bætt var við stigamöguleikum fyrir keppni um stigahæstu ræktun. Nú telja einnig meistarastig, heiðursverðlun og árangur í vinnuprófum til stiga. Breytingin tók gildi 1. jan. 2013 og er nýja stigagjöfin eftirfarandi:


Stigahæsta ræktun

4 - 1 stig - Besti hundur og besta tík tegundar 1. - 4. sæti
1 stig – meistaraefni
1 stig – íslenskt og alþjóðlegt meistarastig   (nýtt)
1 stig – heiðursverðun í ræktunarhóp   (nýtt)
1 stig – heiðursverðlaun í afkvæmahóp   (nýtt)
1 stig – heiðursverðlaun fyrir hvolpa 4-6 mán. og 6-9 mán.  (nýtt)
1 stig – gild einkunn í vinnuprófi og fyrir A og B próf í björgunarhundastarfi   (nýtt)
1 stig – Fyrir skapgerðarmat án athugasemda   (nýtt)


Stigahæðsti rakki / stigahæsta tík (tveir flokkar, eftir hárafari)

Besti hundur sýningar 1. - 4. sæti
Besti hundur tegundarhóps 1. - 4. sæti
Besti hundur og tík tegundar 1. - 4. sæti

1. sæti - 4 stig
2. sæti - 3 stig
3. sæti - 2 stig
4. sæti - 1 stig


21.02.2013
Alþjóðleg sýning HRFÍ

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ verður haldin um næstu helgi í Klettagörðum 6. Schäfer verður sýndur í hring 6 á sunnudeginum. Stutthærður schäfer hefst kl. 9 og síðhærður verður sýndur þar á eftir um 12 leytið. Schäfereigendur settu nýtt skráningarmet en alls eru samtals 57 hundar skráðir á sýninguna, þar af 10 síðhærðir.

Úrslit sýningarinnar á sunnudeginum hefjast kl. 14:30, sjá yfirlit hér fyrir neðan:

Besti ræktunarhópur dagsins
Besti afkvæmahópur dagsins
Besti hvolpur dagsins 4-6 mán.
Besti hvolpur dagsins 6-9 mán.
Tegundahópur 1
Tegundahópur 7
Tegundahópur 9
Tegundahópur 10
Besti öldungur sýningar
Besti hundur sýningar
Picture
Verðlaunagripir fyrir tegundina eru í boði Bendis

HRFÍ vill benda gestum á að hægt er að leggja á lóð fyrirtækisins Kletts, Klettagörðum 8-10. Leyfilegt er að nota bílastæðin en ekki að leggja við húsið. Vinsamlega leggið ekki við bensíndælur Orkunnar né við húsnæði ET. Til að forðast lögreglusektir þá er gestum bent á að leggja ekki bílum upp á gangstéttir eða grasbala.

08.02.2013
Sýningaþjálfun

Schäferdeildin verður ekki með sýningaþjálfun að þessu sinni en viljum við benda schäfereigendum á aðra aðila sem verða með sýningaþjálfun en tveir ræktendur hafa auglýst opna tíma.

Arna og Rúna verða með sýningaþjálfun í reiðhöll sinni alla mánudaga fram að sýningu. Sýningaþjálfunin er opin fyrir alla schäferhunda og er frá kl. 20 - 21. Reiðhöllin er í C-tröð í Víðidal og kostar skiptið 500 kr.

Á Suðurnesjum eru opnar sýningaþjálfanir í Bláu reiðhöllinni á Mánagrund. Á þriðjudögum kl. 19 er sýningaþjálfun fyrir hvolpa og kl. 20 er sýningaþjálfun fyrir eldri hunda. Á fimmtudögum kl. 20 er sýningaþjálfun bæði fyrir hvolpa og eldri hunda. Leiðbeinandi er Kristjana og kostar skiptið 500 kr.

Unglingadeild HRFÍ verður með sýningaþjálfun á sunnudögum fram að sýningu og verður hún haldin í húsnæði Gæludýr.is í Korputorgi. Tegundahópur 1 (schäfer) hefst kl. 15. Skiptið kostar 500 kr. og rennur til Unglingadeildarinnar.

Á sýningaþjálfun er gott að hafa með sér dót, nammi, sýningataum, sýningakeðju og kúkapoka.

27.01.2013
Verslunin Bendir

Stjórn Schäferdeildarinnar langar til að þakka eigendum Bendis innilega fyrir stuðninginn á síðasta ári sem og fyrri ár. Verslunin hefur staðið þétt við bakið á deildinni og styrkt deildina með verðlaunagripum á öllum sýningum ársins auk ýmissa styrkja við önnur tilefni. Bestu þakkir fyrir gott samstarf síðustu ár.

Picture

Bendir er verslun sem sérhæfir sig í sölu á hundavörum. Bendir er staðsett í Hlíðarsmára 13 í Kópavogi. Heimasíðan þeirra er www.bendir.is.


23.01.2013
Aðalfundur Schäferdeildarinnar

Aðalfundur Schäferdeildarinnar verður haldinn fimmtudaginn 14. mars á skrifstofu HRFÍ.

Á fundinum verður farið yfir ársskýrslu deildarinnar, kosið í laus sæti stjórnar auk annarra aðalfundastarfa. Hver stjórnarmaður er kosinn til tveggja ára og eru þrjú sæti laus, að auki er eitt sæti laust til eins árs.

16.01.2013
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ

Næsta hundasýning HRFÍ verður haldin helgina 23. - 24. febrúar 2013. Skráningafresti lýkur föstudaginn 25. janúar 2013. Dómari verður Hanne Laine Jensen frá Danmörku. Sýningastjórn hefur nú birt bráðabirgðadómaraáætlun og gæti því breyst eftir lok síðasta skráningadags. Sjá nánar hér. Tekið verður á móti skráningum á sýninguna á skrifstofu HRFÍ, í gegnum síma félagsins og tölvupóst.

Eldri fréttir
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir