23.12.2023
Heiðrun Schäferdeildarinnar 2023Hin árlega heiðrun Schaferdeildarinnar var haldinn þann 22 desember og voru það stigahæstu hundarnir af sýningum ársins og úr vinnuprófum sem fengu veitta viðurkenningu fyrir árangur ársins.
Sýningar hundarnir sem stóðu upp úr: - ISJCh ISW-23 ISJW-22 Forynju Gló- stigahæsta tík schafer snögghærður - ISVetCh ISShCh ISVW-22-23 ISW-22 RW-23 Ice Tindra Jessy - stigahæsti hundur schafer snögghærður - ISJCh ISW-23 ISJW-22 Forynju Gló - stigahæsti ungliði schafer snögghærður - ISVetCh ISShCh ISVW-22-23 ISW-22 RW-23 Ice Tindra Jessy- stigahæsti öldungur schafer snögghærður - C.I.E. ISVW-22 ISShCh NORDICCHh NLM RW-17 Ice Tindra Joss - Stigahæsta tik schafer síðhærður - ISShCh RW-21-22 Ice Tindra Rocky - Stigahæsti rakki schafer síðhærður - Ice Tindra Team Duke - Stigahæsti ungliði schafer síðhærður - C.I.E. ISVW-22 ISShCh NORDICCHh NLM RW-17 Ice Tindra Joss- Stigahæsti öldungur schafer síðhærður Stigahæsti ræktandi á sýningum - Ice Tindra Ræktun Vinnuhundar: -1. sæti Hlýðni Brons - ISJCh ISW-23 ISJW-22 Forynju Gló -1. sæti Hlýðni I - OB-1 Forynju Gleym Mér Ei - 1. sæti Hlýðni II - ISCh ISJCh OB-I Gjósku Vænting -1. sæti Hlýðni III- ISTrCh OB-II OB-I Forynju Bara Vesen -1. sæti Spor I - OB-I Forynju Einstök -1. sæti Spor II - OB-1 Forynju Gleym Mér Ei -1. sæti Spor III ISTrCh OB-II OB-I Forynju Bara Vesen - 1. sæti Spor Elite ISTrCh OB-II OB-I Forynju Bara Vesen Stigahæsti vinnuhundur ISTrCh OB-II OB-I Forynju Bara Vesen Stigahæsti ræktandi vinnuprófum- Forynju ræktun Endað var svo á því að heiðra stigahæsta ræktenda deildarinnar, en sá ræktandi hlaut bæði stig í vinnuprófum og á sýningum og er þar með stigahæsti ræktandi deildarinnar og hlaut Forynju ræktun þann titil fyrir árið 2023. Þökkum við fyrir árið sem er að líða og sjáumst hress og kát á því næsta. Myndirnar hér að neðan eru af þeim hundum og eigendum sem mættu og tóku á móti verðlaunum sínum. 19.12.2023
Heiðrun deildarinnar 2023Heiðrun Schäferdeildarinnar fer fram 22. desember í húsnæði Hundaræktunarfélagsins á Melabraut í Hafnarfirði klukkan 18:00. Heiðrað verður bæði fyrir sýningar og vinnuhunda.
Sýningar:
-Stigahæsti hundur á sýningum schafer snögghærður -Ræktenda á sýningum Vinnuhundar:
-Stigahæsti ræktandi vinnuprófum Síðast enn ekki síðast verður heiðrað stigahæsta ræktenda deildarinnar Hlökkum til að sjá ykkur 29.11.2023
Ísland Winner - Winter Wonderland 26.11.2023Þá er síðustu sýningu ársins lokið en hún var haldinn þann 26. nóvember í Samskipahöllinni í Kópavogi. Glæsileg Winter Wonderland sýning frá Hundaræktunarfélaginu.
Byrjað var á snögghærðu hundunum en þeir voru 31 talsins. Dómarinn að þessu sinni var Lilja Dóra Halldórsdóttir frá Íslandi. Ungliðarnir tveir sem stóðu upp úr að sinni bættu bæði við tveimur titlum við nöfnin sín en þau ISJW-23 Miðvalla Alda og ISJW-23 Forynju Hroki fengu bæði sitt annað og síðasta ungliðameistarastig til að hljóta titilinn ISjCh eða Íslenskur ungliðameistari. Einnig var titillinn ISJW-23 eða Ísland Junior Winner í boði á þessari sýningu. Miðvalla Alda var síðan valinn besti ungliði tegundar. Öldungarnir þeir ISVetCh ISShCh ISVW-22-23 ISW-22 RW-23 Ice Tindra Jessy og ISVW-22-23 ISW-22 ISObCh OB-III OB-II OB-11 Vonziu´s Asynja bættu síðan ISVW-23 – Ísland Vet Winner við nöfnin sín þar sem þau stóðu sem sigurvegarar öldunga, en Jessy var valinn besti öldungur tegundar og landaði síðan þriðja sætinu sem besti öldungur sýningar. Það var rakkinn BH IPG1 AD Kkl1 WT ISW-23 Ibra Del Rione Antico úr vinnuhundaflokk sem stóð uppi sem sigurvegari snögghærðu rakkana og fékk hann sitt annað íslenska meistarastig og fyrsta Norðurlandastigið. Unga tíkin úr unghundaflokki, ISjCh ISW-23 ISJW-22 OB-1 Forynju Gló stóð sem sigurvegari tíkanna og með sitt þriðja íslenska meistarastig en hefur ekki náð aldri til að verða Íslenskur sýningameistari, ISjCh ISW-23 ISJW-22 OB-1 Forynju Gló fékk einnig sitt fyrsta Norðurlandastig. Þau Ibra og Forynju Gló bættu við sig titlinum Ísland Winner 2023 – ISW-23. BH IPG1 AD Kkl1 WT ISW-23 Ibra Del Rione Antico var svo valinn besti hundurinn í tegundarhóp 1 og keppti þar að leiðandi um titilinn Besti hundur sýningar. Besta ræktunarhópinn átti Forynju ræktun en þau enduðu síðan sem besti ræktunarhópur sýningar. Í síðhærðu hundunum var það dómarinn Marianne Holmli sem tók það að sér að dæma þá sextán hunda sem voru skráðir. Valdi hún ungliða rakkann ISJW-23 Ice Tindra Team Günter sem besta ungliðategundar og fékk hann þar með sitt fyrsta ungliða meistarastig og titillinn ISJW-23 Öldungurinn eini hún ISVetCh C.I.E. ISShCh NORDICCh NLM ISVW-23 RW-17 Ice Tindra Joss tók við titlinum ISVW-23 og var hún besti öldungur tegundar. Úr meistaraflokk var það rakkinn ISShCh ISW-23 Ásgarðs Freyju Skaðvaldur sem stóð uppi sem sigurvegari rakkana og hlaut hann þar sitt annað Norðurlandastig og íslenska meistarastigið rann niður til Ice Tindra Team Dukee en þetta er þá hans sjötta stig en sama með hann að hann hefur ekki náð tveggja ára aldri og því enginn titill mættur í hús. Tíkin ISShCh RW-21 ISW-23 NORDICCh Kolgrímu Oh My God úr meistaraflokki var valin besta tík tegundar þar sem hún er nú þegar Íslenskur sýningameistari og Norðurlandameistari runnu stiginn niður til þriðju bestu tík tegundar, Ice Tindra Romy en þetta var þá hennar annað íslenska stig og fyrsta norðurlandastigið. Ásgarðsfreyju Skaðvaldur og Kolgrímu Oh My God bættu við sig titlinum Ísland Winner 2023 – ISW-23 Tíkin, Kolgrímu Oh My God var svo valin besti hundur tegundar, hún var síðan valin í top 6 hunda úr tegundarhópi 1. Besta ræktunarhóp í síðhærðum Schafer átti Ice Tindra ræktun. Óskar deildin eigendum og ræktendum innilega til hamingju með árangurinn á árinu og hlökkum til að heiðra þá hunda sem stóðu upp úr nú í desember. 19,11.2023
Síðasta hlýðnipróf ársins - 19. nóvemberSíðasta hlýðnipróf ársins var haldið í reiðhöll Sprettara Hattarvöllum. Prófað var í 3 flokkum, hlýðni Brons, Hlýðni I og Hlýðni II.
Alls voru 13 hundar skráðir og að þessu sinni voru fjórir Schäfer hundar. Dómari: Þórhildur Bjartmarz Prófstjóri: Silja Unnarsdóttir Ritari: Gunnar Örn Arnarson Einkunnir Brons: Í öðru sæti með 129 stig Ice Tindra Team Fura og Þorbjörg Fjóla Sigurðardóttir Hlýðni I Í fyrsta sæti með 187,5 stig og fyrstu einkunn OB-I Forynju Einstök Í öðru sæti - þriðja sæti með 176 stig og 1 einkunn voru ISJCh ISJW-22 Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir í fjórða - fimmta sæti með 160 stig og 1 einkunn Forynju Gleym Mér Ei og Anna Lilja Dögg Guðmundsdóttir Gaman að segja frá því en þær systur Forynju Gló og Forynju Gleym Mér Ei eru nú orðnir Hlýðni meistarar og hafa því fengið OB-1 titilinn við nafnið sitt. Stiga taflan fyrir vinnuhundapróf ársins hafa verið uppfærð og óksum öllum til hamingju með árángur ársins. Myndir og frétt tekin af heimasíðu Vinnuhundadeildarinnar, 6.11.2023
Hvolpasýning HRFÍ 4. nóvemberÞann 4. nóvember hélt Hundaræktunarfélag Íslands hvolpasýningu í Reiðhöllinni í Víðidal. Dómarinn var Erna Sigríður Ómarsdóttir.
Fimm fulltrúar mættu til leiks sem fulltrúar Schafer hvolpa, einn síðhærður rakki og fjórir snögghærðir, tveir rakkar og tvær tíkur. Til gamans má nefna að allt voru þetta got systkini frá Forynju ræktun. Allir hvolparnir fengu einkunnina sérlega lofandi. Í síðhærðum var það Forynju Ivan Jr. sem fór með sigur. Í snögghærðu var það rakkinn Forynju Innipúki og tíkin Forynju Indæla Pílasem unni sinn flokk. En það var Forynju Indæla Píla sem var besti hvolpur tegundar og fór þar með að keppa við alla hina hvolpana í sínum aldursflokk. Landaði hún þar þriðja sætinu sem er virkilega vel gert. Framtíðin er björt hjá þessum systkinum og óskum við eigendum og ræktenda til hamingju með árangurinn. Myndirnar tók Hildur Sif Pálsdóttir 16.10.2023
Fimmta sporapróf ársinsFimmta sporapróf ársins var haldið á Nesjavallaleið laugardaginn 14. október hjá Vinnuhundadeild HRFÍ. Veðurfar að þessu sinni var í léttri snjókomu sem gerði sporið aðeins flóknara að þessu sinni.
5 Schäferhundar voru skráðir í prófið, 3 í Spor 1, 1 í Spor 2 og 1 í Spor Elite. Af þeim hundum sem tóku þátt voru 2 hundar sem náðu einkun Dómari: Þórhildur Bjartmarz Prófstjóri: Erna S. Ómarsdóttir Einkunnir Spor 1 1. sæti með 70 stig og 3. einkunn Gjósku Ylur og Katrín Jóna Jóhannsdóttir Spor 2 1. sæti með 78 stig og 3. einkunn Forynju Gleym Mér Ei og Anna LIlja Dögg Gunnarsdóttir Óskum við þátttakendum til hamingju með árangurinn 16.10.2023
Alþjóðlegsýning 7. októberSnögghærðu hundarnir byrjuðu morguninn og voru þar 39 hundar skráðir. Dómarinn var Gerard Jipping frá Hollandi. Einn hvolpur í yngri flokki var skráður til leiks, Ösku Aska Borgfjörð og keppti hún um besta hvolp sýningar 4-6 mánaða og lenti hún þar í þriðja sæti. Í eldri hvolpaflokki var það tíkin Forynju Iðrun sem vann. Fór hún einnig og keppti um besta hvolp sýningar í eldri hvolpaflokki, 6-9 mánaða og hafnaði þar í fjórða sætinu. Framtíðin er björt fyrir þessa ungu hvolpa.
Ungliðatíkin Kolgrímu Real Feelings vann besta ungliða tegundar og fékk þar að leiðandi sitt annað ungliðameistarastig og hlýtur þar með titilinn IsjCh, Íslenskur ungliðameistari. Meistararakkinn Pablo Vom Team Panoniansee fór með sigur á að vera besti rakki tegundar, með sitt fyrsta alþjóðlega meistarastig. Íslenska meistarastigið rann niður til sonar hans, annars besta rakka tegundar Gjósku Örlagasteinn og var þetta hans fyrsta stig. Besti öldungur tegundar var ISVetCh ISShCh ISVW-22 ISW-22 RW-23 Ice Tindra Jessy og keppti hann um besta öldung sýningar og vann hann þá keppni með prýði og hlaut fyrsta sætið. Tíkurnar eru þar með næstar og mættu sjö tíkur til leiks um bestu tík tegundar. RW-22 Dior av Røstadgårdenfór þar með sigur og hlaut sitt annað Íslenskt meistarastig og fyrsta alþjóðlega meistarastigið. Pablo og Dior mættu þá á móti hvor öðru um besta hund tegundar og fór tíkin með sigur og keppti þar að leiðandi fyrir hönd snögghærðu Schäferhundana í tegundarhóp 1 og landaði RW-22 Dior av Røstadgården þar öðru sæti. Besta ræktunarhóp átti Forynju ræktun og endaði sá hópur sem þriðji besti ræktunarhópur sýningar. Í síðhærðu hundunum voru tuttugu hundar skráðir til leiks. Dómarinn sem dæmdi síðhærða afbrigðið var Auður Sif Sigurgeirsdóttir frá Íslandi. Byrjað var á hvolpunum en þar voru tveir eldri hvolpar, einn rakki Forynju Ivan jr og tíkin Ice Tindra Team Glow. Tíkin hafði betur að sinni og varð þar með besti hvolpur tegundar. Þar með var farið í rakkana og var það margverðlaunaði ISShCh NORICCh RW-21-22-23 Ice Tindra Rocky sem fór með sigur að hólmi og rann íslenska stigið enn og aftur niður til bróðir hans Ice Tindra Team Duke, en þetta er þá hans sjötta íslenska meistarastig, þar sem hann hefur ekki náð tveggja ára aldri. Tíkurnar voru þar með næstar, enn og aftur var það öldungurinn C.I.E. ISShCh NORDICCh NLM RW-17 Ice Tindra Joss sem fór með sigur að hólmi, fékk hún þar með öldunga stiginn tvö. Alþjóðlega stigið rann niður til anarrar bestu tík tegundar úr meistaraflokki sem var ISSh NORDICCh RW-21 Kolgrímu Oh My God, er þetta hennar þriðja stig. Þar sem ISSh NORDICCh RW-21 Kolgrímu Oh My God er nú þegar meistari rann íslenska meistarastigði niður til þriðju bestu tík sem var OB-I Forynju Einstök og var þetta hennar annað íslenska stig. Þá mættust mæðgin enn og aftur um titilinn besta hund tegundar en það var C.I.E. ISShCh NORDICCh NLM RW-17 Ice Tindra Joss sem vann son sinn hann ISShCh NORICCh RW-21-22-23 Ice Tindra Rocky um BOB titilinn. Besta ræktunarhóp átti Ice Tindra ræktun og enduðu þau sem annar besti ræktunarhópur sýningar. Enginn ungliði fékk meistaraefni og þar að leiðandi var enginn besti ungliði tegundar. Óskum við eigendum og ræktendum innilega til hamingju með velgengnina og óskum við öllum góðs gengis í framtíðinni. Dýrafóður.is gaf alla verðlaunagripi á sýningunni og þökkum við þeim enn og aftur fyrir styrkina og erum við þeim virkilega þakklát. 27.09.2023
Hlýðnipróf 5 & 6 á AkureyriHelgina 23.- 24. september fór fram hlýðnipróf Svæðafélgast Norðurlands og Vinnuhundadeildar HRFÍ í Reiðhöll Léttis Akureyri. 9 hundar voru skráðir bæði laugardag og sunnudag þar með fjórir Schäfer hundar.
Einkunnir laugardaginn 23.09.23 Hlýðni I Í fyrsta sæti með 175 stig, fyrstu einkunn og silfurmerki ISJCH ISJW22 Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir Í þriðja sæti með 165 stig og fyrstu einkunn Forynju Gleym Mér Ei og Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir Í fjórða sæti með 124,5 stig og þriðju einkunn Gjósku Ylur og Katrín Jóna Jóhannsdóttir Hlýðni III Í fyrsta sæti með 263,5 stig og fyrstu einkunn OB-I OB-II ISTrCh Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir Einkunnir sunnudaginn 24.09.23 Hlýðni I Í fyrsta sæti með 161 stig og fyrstu einkunn ISJCH ISJW22 Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir Í þriðja sæti með 130,5 stig og þriðju einkunn Gjósku Ylur og Katrín Jóna Jóhannsdóttir Hlýðni III Í fyrsta sæti með 292 stig og fyrstu einkunn OB-I OB-II ISTrCh Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir Óskar deildin eigendum og hundum til hamingju með árangurinn. Myndir og upplýsingar teknar af síðu Vinnuhundadeildarinnar. 15.09.2023
Sporapróf 14. septemberFjórða sporapróf ársins hjá Vinnuhundadeild HRFÍ var haldið á Nesjavallaleið fimmtudaginn 14. september.
Sex hundar mættu í prófið og þar með fjórir schafer hundar. Allir hundar sem mættu í próf náðu einkun Einkunnir Spor 1 1. sæti með 94 stig og 1. einkunn Forynju Gleym Mér Ei og Anna LIlja Dögg Gunnarsdóttir 2-3. sæti með 74 stig og 3. einkunn Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir 4 sæti með 70 stig og 3. einkunn Forynju Brjálaði Fenrisúlfurinn og Hildur Sif Pálsdóttir Spor Elite 1. sæti með 84 stig og 2. einkunn Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir Óskar deildin hundum og eigendum til hamingju með árangurinn, 27.08.2023
Deildarsýning II - 26. ágúst 2023Okkar önnur deildarsýning fór fram þann 26. ágúst og segja má að hún hafi gengið vel miðað við þær aðstæður sem við þurftum að takast á við.
Sýningin átti að vera úti á Víðistaðatúni í Hafnarfirði en vegna veðurs þurfti að skipuleggja fram í tímann og færa sýninguna inn, sýningin var haldinn í Reiðhöll Andvara, Hattaravöllum. Dómari sýningarinnar var Heather MacDonald og voru 77 hundar skráðir til leiks. Snögghærðu hundarnir voru 56 talsins og þeir síðhærðu 31. Snögghærðu hundarnir byrjuðu daginn klukkan 09:00 og fyrst í hringinn í 3-6 mánaða voru það systkinin Forynju Illur Jötunn og Forynju Indæla Píla sem unnu sína flokka. Forynju Indæla Píla hafði betur gegn bróður sínum og varð besta ungviði tegundar. Hjá þeim síðhærðu í 3-6 mánaða hvolpa flokki sigraði Forynju Ivan Jr. og varð hann besta ungviði tegundar. Í eldri hvolpaflokki 6-9 mánaða varð það Ice Tindra Team Gabby og Ice Tindra Team Günter en tíkina Ice Tindra Team Gabby valdi Heather sem besta hvolp tegundar Því næst hófst dómur snöghærðu hundana. Dómarinn valdi hundinn BH IPG1 AD Kkl1 WT Ibra Del Rione Antico úr vinnuhundaflokki sem besta rakka tegundar. Fékk hann þar sitt fyrsta íslenska meistarastig. Besti öldungur tegundar var ISVetCh ISShCh ISVW-22 ISW-22 RW-23 Ice Tindra Jessy og endaði hann sem 2. besti rakki. Besti ungliði tegundar var rakkinn Dimmuspors Adventure, með sitt fyrsta ungliðameistarastig og endaði hann sem þriðji besti rakki tegundar Af tíkunum valdi Heather úr vinnuhundaflokki BH AD IPG1 Kkl1 Karma-Esprit V.D. Ybajo Hoeve og hlaut hún þar sitt fyrsta Íslenska meistarastig. Því mættust tíkin Karma og hundurinn Ibra úr vinnuhundaflokk um besta hund tegundar og valdi Heather rakkann Ibra sem besta hund tegundar. Besta afkvæmahóp dagsins átti Pablo Vom Team Panoniansee og besta ræktunahóp dagsins átti Kolgrímu ræktun Síðhærðu hundarnir komu næstir til leiks og var það margfaldi sigurvegarinn ISShCh NORICCh RW-21-22-23 Ice Tindra Rocky sem var valinn besti rakki tegundar. Yngri bróðir Rocky, Ice Tindra Team Duke varð annar besti rakki tegundar og hlaut þar sitt fimmta íslenska meistarastig Í tíkunum var það hin sigursæla C.I.E. ISShCh NORDICCh NLM RW-17 Ice Tindra Joss sem varð besta tík tegundar og besti öldungur tegundar. Þar sem að Joss er orðin meistari rann íslenska meistarastigið niður til Ice Tindra Yrsa og er þetta hennar annað íslenska meistarastig. Besti ungliði tegundar var Dimmuspors A Star Is Born og fékk hún þar með sitt fyrsta ungliðameistarastig. Með sigur á hólmi var ISShCh NORICCh RW-21-22-23 Ice Tindra Rocky valinn besti hundur tegundar, en er þetta í annað sinn sem Rocky vinnur mömmu sína C.I.E. ISShCh NORDICCh NLM RW-17 Ice Tindra Joss í keppni um besta hund tegundar. Besta afkvæma- og ræktunarhóp dagsins átti Ice Tindra ræktun. Óskum við öllum þeim sem mættu á sýninguna til hamingju með árangurinn og takk fyrir komuna. Við hefðum ekki getað haldið þessa sýningu án þeirra hjá Dýrafóður.is en þeir hafa styrkt okkur í dágóðan tíma og gætum við ekki verið ánægðari með styrktaraðila. Allir verðlaunagripir og útbúnaður er frá þeim. Þúsund þakkir fyrir styrkina enn og aftur. Að lokum langar mig til þess að þakka þeim ræktendum sem lögðu mér hjálparhönd með að setja upp sýninguna, þetta hefði ekki getað gerst án ykkar og enn og aftur hjartans þakkir til ykkar, Eldbergs ræktun, Forynju ræktun, Miðvalla ræktun, Ice Tindra ræktun, Svarthamars ræktun, Dimmuspors ræktun og allt ykkar fólk sem fylgdi ykkur, takk! Takk Eldbergs ræktun og Svarthamars ræktun til að aðstoða mig með frágang sýningarinnar og alla þá aðstoð sem þið veittuð til að gera þessa sýningu að veruleika með mér. Þakka styrktaraðilum sýningarinnar, Dýrafóður, Lífland, Búvörur, Joserabúðin, Svartaperlan, Guðlaugur og Elding Hvalaskoðun. Þúsund þakkir fyrir ykkar framlag. 25.08.2023
Hlýðnipróf 24.08. 2023Fjórða hlýðnipróf ársins var haldið í reiðhöll Spretts, Hattarvöllum þann 24. ágúst
Prófað var í 4 flokkum og voru 10 hundar skráðir og þrír schafer hundar voru skráðir til leiks. Tveir í hlýðni I og einn í hlýðni III. Tveir schafer hundar náðu einkun. Einkunnir Hlýðni I Í fyrsta sæti með 193 stig, 1. einkunn og silfurmerki, Forynju Gleym Mér Ei og Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir Í öðru sæti með 157 stig og 2. einkunn, Forynju Einstök og Hildur Sif Pálsdóttir Óskar deildin eigendum og hundum til hamingju með árangurinn og gangi ykkur vel um komandi tíð. 19.08.2023
Deildarsýning 26. ágúst - dagskrá sýningarNú fer heldur betur að styttast í seinni Deildarsýningu ársins. Við viljum byrja á því að þakka þeim styrkjum sem við fengum til að geta haldið þessa sýningu. En okkar fremstu styrktaraðilar eru Dýrafóður.is - Belcando en þau hafa veitt verðlaun á sýningum innan HRFÍ síðustu ára.
Við erum þeim afar þakklát og myndum heldur betur ekki getað heiðrað alla þessa hunda án þeirra aðstoðar, takk! Hinir styrkirnir sem okkur barst fyrir sýninguna eru Búvörur.is, Joserabúðin og Lífland. Einnig viljum við þakka Reykjavík Fish kærlega fyrir að gefa dómaranum okkar ekta íslenskan fisk til að snæða á. Sýningin mun fara fram þann 26. ágúst og hefst á slaginu 09:00. Dagskráin er: Snögghærðir hvolpar 3-6 mánaða Síðhærður hvolpur 3-6 mánaða Síðhærðir hvolpar 6-9 mánaða Snögghærðir hundar, byrjað á rökkum Síðhærðir hundar, byrjað á rökkum Alls eru 75 hundar skráðir á sýninguna og 10 ræktunar- og afkvæmahópar. Við viljum einnig benda á að eins og stjórn ákvað fyrir síðustu Deildarsýningu verða enginn úrslit milli afbrigða. Deildin óskar eftir aðstoð við uppsetningu sýningar sem mun verða sett upp föstudags eftirmiðdaginn klukkan 17:30. Leyfilegt verður svo fyrir fólk að tjalda þegar stjórn hefur lokið sinni uppsetningu og gefið leyfi á. Hvetjum við fólk til að mæta tímanlega, ganga snyrtilega um og að sjálfsögðu að hafa gaman með okkur. Óskum við öllum góðs gengis og hlökkum til að eiga með ykkur góða stund. - Stjórn Schäferdeildarinnar 16.08.2023
Dómara dinner 26. ágúst 2023Eins og hefðin er þá stefnum við á að fara út að borða með dómaranum laugardagskvöldið 26. ágúst eftir sýninguna klukkan 20:15 á Caruso veitingastað
Lokað verður fyrir skráningu í matinn miðvikudaginn 23. ágúst klukkan 17:00 eða þegar hámarki hefur verið náð og mælum við með að fólk skrái sig sem fyrst :) Skráning fer fram hér Mikilvægt er að hver og einn skrái sig þar sem pantað verður eftir pöntunum frá hverjum og einum. Hlökkum til að eiga með ykkur góða kvöld stund með ykkur eftir daginn 12.08.2023
Norðurlandasýning HRFÍ 12.08.2023Norðurlandasýning Hundaræktarfélags Íslands fór fram Pride helgina 12.-13. ágúst.
64 schäferhundar voru skráðir til leiks, 23 síðhærðir og 41 snögghærður og dómarinn að þessu sinni var hinn Norski Jari Partanen. Síðhærðu hundarnir byrjuðu daginn klukkan 09:00 og fyrstur í hringinn mætti í 4-6 mánaða hvolpa flokki Forynju Ivan Jr. Varð hann besta ungviði tegundar. Í eldri hvolpaflokki 6-9 mánaða varð það Ice Tindra Team Gabby sem dómarinn valdi sem besta hvolp tegundar. Þá voru það fullorðnu hundarnir sem mættu í hringinn og eins og á öllum öðrum sýningum ársins var það margfaldi meistarinn ISShCh NORICCh RW-21-22-23 Ice Tindra Rocky sem var valinn besti rakki tegundar. Yngri bróðir Rocky, Ice Tindra Team Duke varð annar besti rakki tegundar og hlaut þar sitt fjórða íslenska meistarastig og fyrsta norðurlanda meistarastig. Í tíkunum var það hin síunga C.I.E. ISShCh NORDICCh NLM RW-17 Ice Tindra Joss sem varð besta tík tegundar og besti öldungur tegundar. Þar sem að Joss er orðin meistari runnu bæði íslenska og norðurlanda meistarastigin niður, það íslenska til 3. bestu tík tegundar, Eldbergs Askja og var það hennar annað meistarastig og Norðurlanda stigið til 2. bestu tíkur tegundar ISSh NORDICCh* RW-21 Kolgrímu Oh My God en var það hennar 3. og síðasta Norðurlanda meistarastig og bíður hún því staðfestingar á titlinum Norðurlanda meistari. Óskar stjórn deildarinnar ræktanda og eiganda hennar innilega til hamingju. Ice Tindra Team Fura varð besti Ungliði tegundar með sitt fyrsta ungliða meistarastig. ISShCh NORICCh RW-21-22-23 Ice Tindra Rocky varð besti síðhærði hundur tegundar og Ice Tindra ræktun átti besta ræktunarhóp tegundar. Á sunnudeginum í keppni um bestu öldunga sýningar mættiC.I.E. ISShCh NORDICCh NLM RW-17 Ice Tindra Jossí frábæru standi í hringinn og uppskar þar 2. Besti öldungur sýningar. Óskar deildin eigenda og ræktenda til hamingju með árangurinn. Þá hófst dómur á snögghærða afbrigði tegundarinnar. Í hvolpaflokki 4-6 mánaða voru það systkinin Forynju Innipúki og Forynju Indæla Píla sem unnu sína flokka. Forynju Indæla Píla hafði betur gegn bróður sínum og varð besta ungviði tegundar. Hún kláraði daginn svo á því að vera valin 2. Besta ungviði dagsins. Þá mættu rakkarnir til leiks og valdi dómarinn úr meistaraflokki ISShCh Pablo Vom Team Panoniansee sem besta rakka tegundar og fékk hann þar sitt fyrsta Norðurlanda meistarastig. Íslenska meistarastigið rann niður til 3. besta rakka tegundar Iban von Bad-Boll og var það hans 2. Íslenska meistarastig. Besti öldungur tegundar var ISVetCh ISShCh ISVW-22 ISW-22 RW-23 Ice Tindra Jessy Af tíkunum valdi Jari úr opnum flokki ISJCh RW-21 Kolgrímu Maybe You're Gonna Save Meog hlaut hún þar sitt annað Íslenska meistarastig og annað Norðurlanda meistarastig. Önnur besta tík tegundar og besti Ungliði tegundar varð dóttir hennar hún Kolgrímu Real Feelings og hlaut hún sitt fyrsta ungliða meistarastig. Besta hund tegundar valdi dómarinn ISShCh Pablo Vom Team Panoniansee og endaði hann daginn á því að fá 3. sætið í sterkum tegundarhópi 1. Besta ræktunarhóp tegundar og besta ræktunarhóp dagsins átti Forynju ræktun. Óskar stjórn Schäferdeildarinnar öllum til hamingju með árangurinn á þessari glæsilegu Pride sýningu. Við stjórn koma þakklæti til styrktaraðila deildarinnar Dýrafóður.is fyrir frábæran stuðning. 1.08.2023
Seinni deildarsýning SchäferdeildarinnarNú fer hver að verða síðastur að skrá á deildarsýninguna.
Seinni deildarsýning Schaferdeildarinnar þetta árið mun fara fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði þann 26. ágúst næstkomandi og hlakkar stjórn mikið til. Skráningafrest líkur þann 14. ágúst eða þegar skráningu hefur náð hámarki. Dómarinn er Heather MacDonald en hún mun vera fyrsti kvennkyns dómarinn til að dæma sérdeildarsýningu frá því deildinn hóf störf. Heather MacDonald hefur verið að rækta Schafer hunda síðan árið 1999, en tekið þátt í lífi þýska fjárhundsins síðan 1995. Heather ásamt manninum sínum hafa ræktað í kringum 40 got. Þau rækta undir nafninu Conbhairean. Heather fékk dómararéttindin sín árið 2002 og síðan þá hefur hún klárað allt sem þarf að klára til að vera sérhæfður dómari á tegundina. Hún hefur dæmt víða og hlakkar henni mikið til að koma til Íslands og dæma hundana hér. 21.07.2023
Sporapróf 25.05Fyrsta sporapróf ársisns var haldið við Nesjavallaleið þann 25. maí
Sex Schafer hundar voru skráðir, fjórir mættu í profið og þrír þeirra náðu einkun. Spor I Í 1. sæti með 86 stig og 2. einkunn var Forynju Gló og Hildur Krístin Þorvarðardóttir Í 2. sæti með 80 stig og 2. einkunn var Welincha´s Izla fra Noregi og Ingibjörg Hauksdóttir Spor III Í 1. sæti með 100 stig og 1. einkunn var Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir Forynju Bara Vesen er búin að ná fyrstu einkunn í spori I, spori II og spori III. Þar með hefur hún lokið öllum kröfum fyrir titilinn ISTrCh eða Íslenskur Sporameistari Deildin óskar eigeindum og ræktendum innilega til hamingju með stórglæsilegan árangur ! 23.05.2023
Sýningaþjálfun 23.05Vegna veðurs verður sýningaþjálfun sem átti að fara fram í kvöld aflýst! Við hlökkum þó til að sjá ykkur öll hress og kát í næstu viku.
19.05.2023
Hlýðnipróf 18.05Annað hlýðnipróf ársins var haldið í reiðhöll Spretts, Hattarvöllum þann 18. maí.
Ellefu hundar voru skráðir, þar af fimm Schafer hundar og allir þeir náðu prófi. Prófað var í fjórum flokkum og Schaferdeildin átti flotta fulltrúa í þeim öllum. Hlýðni Brons Í 1. sæti með 156 stig og bronsmerki var Fornyju Glem Mér Ei og Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir Hlýðni I Í 1. sæti með 168 stig og 1. einkunn var Forynju Einstök og Hildur Sif Pálsdóttir Í 4. sæti með 140 stig og 2. einkunn var Forynju Bestla og Berglind Rán Helgadóttir Hlýðni II Í 1. sæti með 158 stig, 2. einkunn og gullmerki var Gjósku Vænting og Tinna Ólafsdóttir Í 2. sæti með 154 stig og 2. einkunn var Tinnusteins Aurskriða og Tinna Ólafsdóttir Hlýðni III Í 1. sæti með 252 stig og 2. einkunn var Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir Deildin óskar eigendum og ræktendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur ! 14.05.2023
PeysusalaÞar sem það var mikill eftirspurn, þá ætlum við að henda í aðra peysusölu !
Peysurnar kosta 8.900 kr sem greiða þarf inná reikning deildarinnar til að staðfesta pöntunina Kt. 691010-0230 Reikn. 0586-26-691010 Koma í stærðum XS - XXL Pöntunarfrestur er til og með 2. júli og peysurnar verða afhentar stuttu eftir það ! 09.05.2023
Sýningaþjálfun SchäferdeildarinnarÞað styttist í tvöföldu sýningu !
Byrjum aftur með sýningaþjálfarnir þriðjudaginn 23.5 ! Hlökkum til að sjá ykkur öll ! 25.04.2023
35 ára afmælissýning Schäferdeildarinnar35 ára afmælissýning Schäferdeildarinnar fór fram með pompi og prakt laugardaginn 22. apríl sl.
89 hundar voru skráðir til leiks að þessu sinni og til að dæma mætti frá Þýskalandi, Christoph Ludwig. Hafði dómarinn orð á því að hundarnir á Íslandi væru almennt af ágætum gæðum og lítið um stórfellda galla sem við þyrftum að varast. Hann var ánægður með skipulagningu og umgjörð sýningarinnar en fannst skrítið að einungis 1 hvolpur var skráður í dóm. Um morguninn hófst dómur í síðhærðum Schäfer og mætti þar eini hvolpur sýningarinnar fyrst í hring. Örlaga-Argentína aka Gjósku hlaut dóminn sérlega lofandi og var besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða. Besta rakka tegundar valdi Christoph úr meistaraflokki ISShCh CIE RW-21-22 Ice Tindra Rocky og rann því Íslenska meistarastigið niður til 2. besta rakka tegundar ungliðans Ice Tindra Team Duke en var það hans fyrsta Íslenska meistarastig og hlaut hann einnig sitt fyrsta ungliða meistarastig. Besta tík tegundar, besti öldungur tegundar og besti hundur tegundar varð svo hin sigursæla C.I.E ISShCh NORDICCHh NLM RW-17 Ice Tindra Joss og hlaut hún þar með sitt 3. öldungameistarastig og getur því sótt um titilinn ISVetCh. Óskar stjórn eiganda og ræktanda hennar innilega til hamingju. Þar sem Joss er nú þegar meistari rann stigið niður til 2. bestu tímar tegundar en það var úr opnum flokki Svarthamars Mekkín. Besta ungliða tíkin var Ice Tindra Team Blues en hún hlaut þar sitt fyrsta ungliðameistarastig og varð besti Ungliði tegundar. Besta ræktunarhóp tegundar átti Ice Tindra ræktun og besta afkvæmahóp átti ISShCh RW-21 Kolgrimu Oh My God með afkvæmum. Þá hófst dómur í snögghærðu Schäferunum. Fyrst mættu rakkarnir til leiks og valdi dómarinn úr vinnuhunda flokki OB-I Forynju Brjálaða Fenris Úlfinn. Hlaut hann þar sitt fyrsta Íslenska meistarastig. Besti öldungur tegundar varð ISVetCh ISShCh ISVW-22 Ice Tindra Jessy. Besta tík tegundar, besti ungliði tegundar og besti hundur tegundar varð ISJW-22 Forynju Gló, hlaut hún þar sitt fyrsta Íslenska meistarastig og sitt annað ungliðameistarastig, getur hún því nú sótt um titilinn ISJCh. Óskum við eiganda og ræktanda hennar innilega til hamingju með nýjan titil. Besta ræktunarhóp tegundar átti Forynju ræktun og besta afkvæmahóp átti ISETrCh ISObCh ISTrCh OB-III -OB-II OB-I Forynju Aska með afkvæmi sín. Vil stjórn deildarinnar þakka öllum sem komu að sýningunni, frábærum styrktaraðilum, sýnendum og eigendum. Sýningin fór ofboðslega vel fram og allir voru til fyrirmyndar. Hlökkum við strax til næstu deildarsýningar, en hún verður í ágúst og verður auglýst þegar nær dregur. 21.04.2023
Deildarsýning - UpplýsingarJæja kæru félagsmenn
Nú er liðið af fyrri deildarsýningunni okkar og er metskráning fullorðna hunda. - Húsið opnar 08:30 og er gengið inn á skammhliðinni vestan megin - Við viljum benda fólki og eigendum hunda á það að ekki er í boði að fara upp í stúkuna með þá - Hirðum upp eftir hundana okkar og reynum að láta þá ekki merkja á veggi innan reiðhallarinnar - Leggjum í bílastæðin fyrir utan reiðhöllina en ekki á reiðveginum, sýnum hestamönnum tillitsemi og reynum að hafa stjórn á gjammandi hundum út í bíl. -Sýnum tillitsemi og kurteisi og eigum góðan dag saman Styrktaraðilar sýningarinnar eru: Belcando - Dýrafóður.is við hefðum ekki getað haldið sýninguna án allra þessa glæsilegu vinninga sem þau eru að gefa Dimmuspors ræktun Reykjavík Fish Ölfus ræktun Þökkum við þeim öllum fyrir stuðninginn og aðstoðina við að halda þessa sýningu. Hlökkum til að sjá ykkur Kveðja Stjórn Schäferdeildarinnar 20.04.2023
Hlýðnipróf 20. aprílFyrsta hlýðnipróf ársins var haldið fimmtudaginn 20. apríl í HorseDay reiðhöllinni að Ingólfshvoli.
Átta hundar vöru skráðir í prófið, þar af einn Schäfer hundur. Hlýðni I: Í fyrsta sæti með 180,5 stig og I. einkunn Forynju Bestla IS26987/19 – German shepherd dog og Berglind Rán Helgadóttir Dómari: Silja Unnarsdóttir Deildin óskar eigendum og ræktanda innilega til hamingju með glæsilegan árangur! 19.04.2023
Deildarsýninginn 22. apríl35 ára afmælissýning Schäferdeildarinnar
Þá er komið að fyrri deildarsýningu ársins og verður hún haldin laugardaginn 22. apríl. Sýningin er 35 ára afmælissýning deildarinnar og verður hún haldin á sama stað og 25 ára afmælissýning deildarinnar var haldin, í reiðhöllinni í Víðidal. Alls eru 88 fullorðnir hundar skráðir á sýninguna, 1 hvolpur og 10 afkvæma/ræktunarhópar. Aldrei hafa fleiri fullorðnir schäfer hundar verið skráðir á sýningu hér á landi svo sýningin verður sú allra glæsilegasta.. Sýningin hefst kl 09:00 á laugardeginum og byrjar dómur á síðhærða afbrigði tegundarinnar og stutt hlé verður áður en snögghærðu hundarnir byrja í dóm. Ekki verður keppt á milli afbrigða í þetta sinn, þannig engin úrslit verða í lok dags. Dómari að þessu sinni er hinn virti dómari og ræktandi Christoph Ludwig frá Þýskalandi. C.Ludwig ræktar ásamt eiginkonu sinni undir hinu þekkta ræktunarnafni von der Zenteiche og frá honum hafa komið fjölmargir af þekktustu hundum í Schäfer heiminum. Hvetjum við fólk til að mæta tímanlega, ganga snyrtilega um og að sjálfsögðu að hafa gaman með okkur í tilefni 35 ára afmæli schäferdeildarinnar. Gangi öllum vel og við hlökkum svo til að sjá ykkur á laugardagskvöldið í kvöldverði á Sæta Svíninu. - Stjórn Schäferdeildarinnar 17.04.2023
Dagskrá deildarsýningar 22. aprílDómur hefst stundvíslega klukkan 09:00
Byrjað verður á Síðhærðir hvolpar Síðhærðir hundar Hlé Snögghærðir hundar Minnum svo á skráning í kvöldmatinn með dómaranum um kvöldið er enn í fullum gangi Hlökkum til að sjá ykkur og eigum góðan dag saman Stjórn Schäferdeildarinnar 22.03.2023
Sýninga þjálfanirNú styttist í fyrri deildarsýninguna okkar og ætlum við að halda sýningaþjálfanir á þriðjudagskvöldum fram að sýningu, skiptið kostar 1500kr.
Hlökkum til að sjá ykkur 22.03.2023
Fyrstu göngu ársins aflýst!Stjórn deildarinnar hefur tekið þá ákvörðun að hætta við fyrstu göngu ársins vegna kennel hóstans.
Margir hundar hafa verið hóstandi núna og þá sérstaklega eftir síðustu sýningu. Til þess að halda þessu niðri fellum við niður gönguna sem átti að vera kl 13:00 laugardaginn 25. mars á undan bingóinu. Hins vegar hlökkum við til að sjá ykkur á Bingóinu og óskum við veiku hundunum góðs bata. 16.03.2023
Schäferganga og Bingó!Schäferdeildin heldur bingó þann 25. mars kl 14:00! Við bjóðum alla velkomna í skemmtilega stund í Sólheimakoti (hús HRFÍ) þar sem við ætlum að halda glæsilegt bingó með fullt af frábærum vinningum ásamt því að nýta tækifærið og henda í Schafergöngu kl 13:00 áður en Bingóið hefst. Til sölu verða svo veitingar og peysu salan heldur áfram í fullum gangi. Hlökkum til að sjá ykkur Þeir sem hafa styrkt bingóið okkar að sinni eru: Arcanum Leiðsögumenn Artica Axarkast Betri Hundar Beutyklúbburinn Búvörur Cu2 Dýrfinna - Hundasveitin Dominos Essei heildverslun Forynju ræktun Garðheimar Hundasnyrting og þjálfun Ellenar Húsdýragarðurinn Josera búðin Danól Dýrabær Dýrafóður.is Lífland Móri verlsun Terma Vök baths Klifurhúsið Laxnes hestaleiga Litla Gældudýrabúðinn Mín áskrift Mjólkursamsalan Nocco Íslandi Petria.is Platinum.is Snyrtistofan Dimmalimm Sunday and co Ölfus hundar / Frú Pálina 13.03.2023
Schäferdeildar peysurSchaferdeildin stendur fyrir sölu á peysum til styrktar deildinni okkar.
Um er að ræða svartar hettupeysur í stæð XS-XXL og verður logo deildarinnar aftan á peysunni. Peysan mun kosta 8900 krónur og pantað verður þann 2. apríl svo pantanir þurfa að sendast á netfang deildarinnar fyrir þann tíma, [email protected] Einnig þarf greiðsla að hafa borist fyrir 2. apríl á reikning deildarinnar annars er pöntun ekki gild Kt 691010-0230 reikn 0586-26-691010 Hægt verður að máta slíkar peysur á bingó viðburði deildarinnar þann 25. mars í Sólheimakoti. 6.03.2023
Norðurljósasýning HRFÍ 5. marsFyrsta sýning ársins var haldinn helgina 4-5. mars í Samskipahöllinni í Kópavogi. Dómarinn var að þessu sinni Espen Engh frá Noregi. 55 snögghærðir hundar voru skráðir og 31 í síðhærðum flokk.
Dómur hófst á síðhærðum schafer og var það hvolpur úr eldri hvolpaflokk sem mætti til leiks sem sigraði þar með einkunnina sérlega lofandi og komst því í úrslit um besta hvolp sýningar, en það var tíkin Örlaga-Argentína AKA Gjósku Aðeins einn rakki og ein tík fengu meistaraefni en það var það rakkinn ISShCh C.I.E RW-21-22 Ice Tindra Rocky úr meistaraflokk sem stóð upp úr sem sigurvegari rakka og tíkin OB-I Forynju Einstök úr unghunda flokk sem sigraði tíkurnar. Kepptu þau um titilinn Besti hundur tegundar og fór þar OB-I Forynju Einstök með sigur. Þetta var þar með fyrsta alþjóðlega- og íslenska stig sem OB-I Forynju Einstök fékk. En ISShCh C.I.E RW-21-22 Ice Tindra Rocky hefur hlotið öll þau stig. Enginn öldungur né ungliði fengu þau stig sem þarf til að hljóta stigahæsti öldungur / ungliði tegundar að þessu sinni. Besta ræktunarhóp átti Forynju ræktun. Snögghærðu hundarnir mættu síðan til leiks og var byrjað á hvolpunum. Enginn hvolpur komst þaðan upp úr að sinni. Snögghærðu rakkarnir komu því til leiks og voru það tveir rakkar sem fengu meistaraefni og kepptu um besta rakka tegundar. Rakkinn Forynju Dropi kom úr opnum flokk og síðan úr öldungaflokk kom ISShCh ISVW-22 ISW-22 Ice Tindra Jessy Var það Forynju Dropi sem var valinn besti rakki tegundar og hlaut þar með sitt fyrsta alþjóðlega- og íslenska stig. Tíkurnar tóku svo yfir en þar stóð bara ein upp úr með meistara efni og var það tík úr vinnuhunda flokknum, OB-II OB-I Forynju Bara Vesen og hlaut þar með sitt fyrsta íslenska- og alþjóðlega stig. Þar með hófst keppni um besta hund tegundar á milli Forynju Dropi og OB-II OB-I Forynju Bara Vesen og var það rakkinn sem fór með sigur að hólmi. Öldungarnir ISShCh ISVW-22 ISW-22 Ice Tindra Jessy og ISVW-22 ISW-22 ISVetCh ISObCh OB-III OB-II OB-I Vonziu's Asynja kepptu um besta öldung tegundar og var það ISShCh ISVW-22 ISW-22 Ice Tindra Jessy sem sigraði. Hlaut Jessy þar með sitt 3. öldungameistarastig og getur því sótt um titilinn ISVetCh. Óskar stjórn eiganda og ræktanda hennar innilega til hamingju. Enginn ungliði komst áfram að sinni. Besta ræktunarhóp átti Forynju ræktun Óskar deildin öllum til hamingju með árangurinn og hlökkum til að sjá ykkur á næstu sýningu sem er Schaferdeildarsýningin 22. apríl. Deildin vill einnig þakka Dýrafóður.is / Belcando fyrir styrki á verðlaunagripum og erum við þeim gríðarlega þakklát. 27.02.2023
Páskabingó og ganga SchäferdeildarinnarÞann 25.mars ætlar Schäferdeildin að halda sína fyrstu göngu sem og Páskabingó.
Við viljum endilega hitta ykkur kl 13 og labba með ykkur smá hring frá Sólheimakoti. Endum svo þar aftur og kl 14 munum við starta bingó veislu. Við erum þegar byrjaðar að safna bingóvinningum og getum við lofað glæsilegum vinningum fyrir heppna bingóspilara en myndir af vinningum og kynning á styrktaraðilum munu koma inn á facebook viðburð sem og instagram deildarinnar. Hvetjum ykkur til að fylgjast með þar! Kaffiveitingar verða til sölu í Sólheimakoti meðan birgðir endast. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest eiga góðan dag með okkur þann 25.mars! 13.02.2023
Fyrsta deildarsýning ársins
Schäferdeild HRFÍ kynnir fyrstu deildarsýningu ársins. Í tilefni af 35 ára afmæli deildarinnar hefur verið ákveðið að halda tvær sýningar árið 2023.
Fyrri sýningin verður þann 22.apríl í Reiðhöll Fáks í Víðidal. Dómarinn að þessu sinni verður Christoph Ludwig frá Þýskalandi. Skráning opnar miðnætti 14. febrúar og mun standa til 7.apríl. Athugið að takmörkuð pláss eru í boði á sýninguna og mun skráning loka fyrir tilsettan tíma ef hámarks fjölda skráninga er náð 30.01.2023
Hvolpasýning HRFÍ 29.janúarFyrsta hundasýning ársins var haldin þann 29. janúar en var það Hvolpasýning HRFÍ. Sýningin var haldin í Keflavík og voru það íslenskir dómaranemar sem dæmdu hátt í 120 hvolpa. Schäfer hvolparnir voru sex talsins, tveir síðhærðir og fjórir snögghærðir. Dómarinn var Erna Ómarsdóttir.
Fyrst mættu tveir síðhærðir rakkar til leiks í eldri hvolpaflokk, en það voru bræðurnir Dimmuspors All I Ever Wanted og Dimmuspors Addicted To You. Valdi Erna Dimmuspors Addicted To You sem besta hvolpinn, BOB Puppy. Snöggu hvolparnir mættu síðan til leiks en það var einn rakki skráður til leiks Dimmuspors Adventure. Snöggur tíkurnar voru þrjár, Miðvalla Alda, Miðvalla Aría og Dimmuspors Action. Vann Dimmuspors Action besta tík tegundar og keppti því við bróðir sinn um besta hvolpinn í snögghærðum schäfer, BOB Puppy. En það var tíkin Dimmuspors Action sem vann og endaði hún sem topp átta af Besta hvolp sýningar af öllum tegundum. Framtíðin er björt hjá þessum flottu hvolpum og óskum við eigendum þeirra og ræktendum til hamingju með árangurinn. 25.01.2023
Stigakeppni deildarinnar uppfærðTillaga Stjórnar Schäferdeildar að breytingu á fyrirkomulagi stigahæsta ræktanda schäferdeildarinnar var samþykkt á aðalfundi 18. janúar 2023.
Schäferdeildin stendur fyrir stigakeppni ár hvert þar sem bæði er keppt um stigahæstu hunda ársins í vinnu og á sýningum. Einnig er stigahæsti ræktandi deildarinnar heiðraður, en eins og fyrirkomulagið var, var eingöngu tekinn árangur á sýningum inn í myndina. Ekki má gleyma því að Schäferinn er fyrst og fremst vinnu tegund. Hundarnir eiga að uppfylla öll skilyrði tegundarinnar og er vinnueðlið alls ekki minna virði en útlit hundanna. Á mörgum stöðum erlendis getur hundur ekki klárað meistaratitilinn nema að hann ljúki vinnuprófum. Á Íslandi eru reglurnar mun léttvægari. Þess vegna vill stjórn deildarinnar gera sitt til þess að hvetja ræktendur og eigendur hunda til þess að taka þátt í vinnuprófum. Ræktun schäferhunda ætti ekki að snúast eingöngu um ræktun á sýningar hundum, eins og fram hefur komið er tegundin vinnu tegund og því jafn mikilvægt að stuðla að góðu vinnueðli. Stigahæsti ræktandi schäferhunda snýst alls ekki eingöngu um hundasýningar heldur ræktun tegundarinnar í heild sinni. Lagði því deildin til að bæta vinnuprófum við keppni um stigahæsta ræktanda deildarinnar. Samkvæmt reglum HRFÍ eiga stjórnin ræktunardeilda að standa vörð um ræktun viðkomandi hundakyns/kynja. Með því að gera vinnuprófunum jafn hátt undir höfði og sýningum, hvetur það ræktendur til þess að skrá í vinnupróf og hvetja fólkið sitt áfram. Með því verður ríkari krafa um að ræktunarhundar hafi lokið vinnuprófum og bætir þar með ræktun tegundarinnar á landinu. Einnig bætti stjórn því við að þegar hundur hlýtur meistaraefni, CK, á sýningum mun hundur fá eitt stig í keppninni um stigahæsta hunda á sýningum. Hérna má lesa um reglur stigakeppninnar 19.01.2023
Ársfundur deildarinnar lokiðÁrsfundur deildarinnar var haldinn í gær og var góð mæting.
Kosið var í nýja stjórn en þær Eygló Anna og Kristín Erla halda sínum sætum sem formaður og varaformaður. Inn í deildina komu þrjár nýjar dömur en meira um fundinn má lesa í fundargerðinni. Lesa hér. Ársskýrsla deildarinnar var lesin upp fyrir gesti en einnig er hægt að lesa hana hér. Takk fyrir komuna þið sem mættuð og óskum við nýrri stjórn velgengni á árinu. 5.01.2023
Ársfundur Schaferdeildarinnar
Ársfundur Schäferdeildar HRFÍ verður haldinn miðvikudaginn 18. janúar 2023 kl.19 á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15. 2. hæð.
Dagskrá fundar 1. Kosning fundarstjóra og ritara 2. Ársskýrsla deildar 3. Reikningar deildarinnar 4. Kosning stjórnar (3 sæti laus. Tvö til tveggja ára og 1 sæti til eins árs) 5. Önnur mál Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Hlökkum til að sjá ykkur Stjórn Schäferdeildar |
Viðburðardagatal:
26. nóvember Winter Wonderland sýning HRFÍ Láttu í þér heyra. Allar almennar fyrirspurnir er varða málefni deildarinnar skulu sendast á beint á ræktunarstjórn deildarinnar. Fyrirspurnum er svarað strax eða eftir næsta stjórnarfund, allt eftir eðli málsins.
Ef þú ert með ábendingu er varða rangar upplýsingar á vefsíðunni okkar getur þú sent stjórn deildarinnar vefpóst með beiðni um leiðréttingu eða fyllt út í formið hér að ofan. Við viljum heyra hvað þú hefur að segja um starfsemi deildarinnar. Láttu okkur vita hvað þú ert ánægð/ur með og komdu með ábendingu um það sem betur má fara. Allar athugasemdir og hugmyndir eru vel þegnar. Netfang stjórnar Schäferdeildarinnar er [email protected]. |