Árskýrsla Schäferdeildar 2023
Árskýrsla deildar Síðasti Ársfundur Schäferdeildar HRFÍ var haldinn þriðjudaginn 31. maí 2022 . Öll 5. sæti voru laus í stjórn, þrjú til 2ja ára og tvö til 1 árs.
5 buðu sig fram til tveggja ára og þrír til 1 árs.
Í stjórn voru kjörnar :
Eygló Anna Ottesen Guðlaugsdóttir - Formaður
Kristín Erla Benediktsdóttir - Varaformaður
Marta Sólveig Björnsdóttir - Gjaldkeri
Tinna Ólafsdóttir - Ritari
Hildur Sif Pálsdóttir – Meðstjórnandi
Allar voru þær með sömu markmið að dusta rykið af Schaferdeildinni og rífa hana aftur upp með fullum krafti. Og það má segja að það hafi tekist vel. Deildin er búin að vera mjög aktív á þessum sex mánuðum eftir að við tókum við keflinu af fyrri stjórn.
Mikil vinna hófst strax að byggja upp deildina en margt var óklárað frá fyrri stjórn.
Heimasíðan var ósnert og átti eftir að laga og bæta og breyta. En það sem við þurftum að gera var að:
Deildin hélt ýmsa viðburði á árinu, byrjað var á því að endurvekja göngur deildarinnar með frábærum undirtektum deildarmeðlima. Fjölmennt var í allar göngur og almenn ánægja var á meðal félagsmanna.
Deildin stóð fyrir nokkrum sýningarþjálfunum á árinu og voru þær ágætlega vel sóttar. Deildin hélt einnig sumargleði þar sem var Bingó og allskyns kræsingar voru í boði, var þetta stærsta fjáröflun deildarinnar frá upphafi. Ákvað stjórnin að nýta tækifærið og heiðra stigahæstu hunda og ræktanda 2021 á sumargleðinni þar sem fyrri stjórn hafði ekki gert það.
Alls voru 6 sýningar haldnar vegum Hundaræktarfélag Íslands, þar af þrjár alþjóðlegar, tvær norðurlandasýningar og ein hvolpasýning. Á júní sýningu félagsins fengu bestu hundar tegundar titill Reykjavík Winner 2022 og í nóvember gátu hundar í fyrsta sinn holtið titlana Island Winner, Island Junior Winner og Island Veterian Winner og verða þessir titlar veitir á nóvember sýningum félagins hér eftir. Tegundinni gekk vel á árinu í úrslitum í sterkum hóp tegundarhóp 1, á öllum sýningum ársins var annað eða bæði afbrigði tegundarinnar í sæti.
Og fyrsta sinn síðan síðhærða afbrigði tegundarinnar var viðurkennt af FCI sigraði síðhærður Schafer tegundarhóp 1 hér á íslandi, en það var hin unga Gjósku Þula.
Dýrafóður.is – Belcando styrki deildina með verðlauna gripum á öllum sýningum ársins.
Schäferdeildin hélt einnig sérsýningu í september og var það sú stærsta frá stofnun deildarinnar. Dómar sýningar var Svein Egil Vagle frá Noregi.
Fjölmargir góðir styrktaraðilar stóðu við bak deildarinnar í kringum sýninguna og þakkar stjórn kærlega fyrir sýndan stuðning. Styrktaraðilar voru eftirfarandi :
Dýrafóður.is sem átti stóran þátt í henni. Svo voru það Dimmuspors ræktun, Dýrabær, Forynju ræktun, Garpur, Hundadót.is Ice Tindra ræktun, Miðvalla ræktun, Tinnusteins ræktun og Platinum.
Vinnuhundadeild HRFÍ stóð fyrir 10 Hlýðniprófum á árinu og 4 Sporaprófum til gamans má geta að í öllum prófum ársins voru Schäferhundar í efstu sætum. Í fyrsta sinn náði Schäferhundur 1.einkunn í Spor Elite, var það tíkin ISTrCh ISObCh OB-III OB-II OB-I Forynju Aska og bætti hún við sig titlum ISEliteTrCh eða Íslenskur Elite Sporameistari.
Á árinu 2022 voru ættbókarfærðir 73 hvolpar í 13 gotum, 5 got voru frá Ice Tindra ræktun, 2 got voru frá Kolgrímu ræktun, 1 got var frá Dimmuspors, Eldbergs, Forynju, Gjósku og Miðvalla ræktun og eitt gott bar ekki ræktunarnafn.
Innfluttningur : Tveir hundar voru fluttir inn á árinu.
Kamilla Gelenzinis Vilkas og Nana Primo Grande
Síðasti viðburður sitjandi stjórnar var jólaheiðrun sem var haldin í desember og þar voru heiðraðir stigahæstu hunda í vinnu og sýningu og stigahæsta ræktanda ársins fyrir frábæran árangur á árinu.
Tinna Ólafsdóttir, sagði sig úr stjórn félagsins í byrjun janúar 2023 og þökkum við henni fyrir samstarfið.
Á árinu hlutu 25 hundar nýja titla, 21 fyrir árangur á sýningum og 4 fyrir árangur í vinnu.
Eftirtaldir hundar urðu íslenskir sýningameistarar og fengu nafnbótina ISShCh
Eftirtaldir hundar urðu íslenskir ungliðameistarar og fengu nafnbótina ISJCh:
Eftirtaldir hundar urðu íslenskir öldungameistarar og fengu nafnbótina ISVetCh:
Einn hundur bíður staðfestingar á alþjóðlegum sýningarmeistaratitli eða C.I.E
Einn hundur lauk alþjóðlega meistaratitlinum C.I.B. og Norðurljósameistaratitlinum NLM
Eftirtaldir hundar hlutu Reykjavík Winner titla og hlutu nafnbótina RW-22
Eftirtaldir hundar hlutu Island Junior Winner titla og hluta nafnbótina ISJW-22
Eftirtaldir hundar hlutu Island Veteran Winner titla og hluta nafnbótina ISVW-22
Eftirtaldir hundar hlutu Island Winner titla og hluta nafnbótina ISW-22
Eftirfarandi hundar hlutu Íslenskur Hlýðni I Meistari og nafnbótina OB-I
Eftirfarandi hundar hlutu Íslenskur Hlýðni II Meistari og nafnbótina OB-II
Eftirfarandi hundar hlutu Íslenskur Elite sporameistari og nafnbótina ISEliteTrCh
Að lokum vill stjórn schaferdeildarinnar þakka aðalstyrkaraðilaar deildarinnar Dýrafóður.is - Belcando fyrir ómetalegan stuðning á árinu og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs með þeim.

- Setja inn öll got frá 16.03.2020
- Eftir var að skrá 24 þegar við tökum við
- Skrá innflutta hunda
- Skrá mjaðma og olnboga niðurstöður
- Eigendaskipti
- Setja titla á þá hunda sem hafa unnið fyrir slíku
- Niðurstöður vinnuprófa fyrir árið 2021 og 2022
- Úrslit sýninga og tenglar inn á umsagnir

- Kolgrímu Oh My God
- Ice Tindra Jessy
- Lider von Panoniansee
- Ásgarðsfreyju Skaðvaldur
Eftirtaldir hundar urðu íslenskir ungliðameistarar og fengu nafnbótina ISJCh:
- Eldbergs Birta
- Forynju Ecco
- Gjósku Þula
- Kolgrímu Party All The Time
- Ice Tindra Zia
Eftirtaldir hundar urðu íslenskir öldungameistarar og fengu nafnbótina ISVetCh:
- Gjósku Rökkvi-Þór
- Vonziu‘s Asynja
- Kolgrímu Gypsy Woman
Einn hundur bíður staðfestingar á alþjóðlegum sýningarmeistaratitli eða C.I.E
- Ice Tindra Rocky
Einn hundur lauk alþjóðlega meistaratitlinum C.I.B. og Norðurljósameistaratitlinum NLM
- Ghazi von Nordsee Sturm
Eftirtaldir hundar hlutu Reykjavík Winner titla og hlutu nafnbótina RW-22
- Dior av Røstadgården
- Gjósku Ydda
- Ice Tindra Merlin
- Ice Tindra Rocky
Eftirtaldir hundar hlutu Island Junior Winner titla og hluta nafnbótina ISJW-22
- Forynju Gizmo
- Forynju Gló
- Ice Tindra Zia
Eftirtaldir hundar hlutu Island Veteran Winner titla og hluta nafnbótina ISVW-22
- Ice Tindra Jessy
- Ice Tindra Joss
- Vonziu‘s Asynja
Eftirtaldir hundar hlutu Island Winner titla og hluta nafnbótina ISW-22
- Ice Tindra Jessy
- Svarthamars Mosi
- Svarthamars Jara
- Vonziu‘s Asynja
Eftirfarandi hundar hlutu Íslenskur Hlýðni I Meistari og nafnbótina OB-I
- Forynju Einstök
- Tinnusteins Aurskriða
Eftirfarandi hundar hlutu Íslenskur Hlýðni II Meistari og nafnbótina OB-II
- Forynju Bara Vesen
Eftirfarandi hundar hlutu Íslenskur Elite sporameistari og nafnbótina ISEliteTrCh
- Forynju Aska