Deildarsýning 6.júlí 2013 Dómari: Karl Otto Ojala frá Noregi
Besti hundur sýningar BIS-I : C.I.B. ISCH RW-13 Welincha's Yasko
Annar besti hundur sýningar BIS-II : Svarthamars Garpur

25 ára afmælissýning Schäferdeildarinnar 6. júlí 2013.
Dómari: Karl Otto Ojala frá Noregi
Dómari: Karl Otto Ojala frá Noregi
C.I.B. ISCH RW-13 Welincha's Yasko og Svarthamars Garpur.
Schäfer, stutthærður (52)
Besti hundur tegundar: C.I.B. ISCH RW-13 Welincha's Yasko
Annar besti hundur tegundar: RW-13 Kolgrímu Dee Hólm
Besti afkvæmahópur tegundar: ISCH Welincha's Yasko
Besti ræktunarhópur tegundar: Kolgrímuræktun
Besta par tegundar: ISCH Welincha's Yasko og Kolgrímu Dee Hólm
Árangur Schäfer stutthærður í Besti hundur sýningar*: Besti hundur sýningar C.I.B. ISCH RW-13 Welincha's Yasko
Schäfer, síðhærður (9)
Besti hundur tegundar: Svarthamars Garpur
Árangur Schäfer síðhærðum í Besti hundur sýningar*: Annar besti hundur sýningar Svarthamars Garpur
*Keppt var til úrslita um besta hund sýningar á milli snögghærðs og síðhærðs afbrigðis tegundarinnar á þessari sýningu.
Heildarúrslit í öllum flokkum tegundarinnar ásamt umsögn dómara um hvern hund.
08.08.2013
Úrslit afmælissýningar deildarinnar
Heildarúrslit 25 ára afmælissýningar deildarinnar eru komin í hús. Smelltu hér til að skoða. Umsagnir hunda munu koma inn á síðuna fljótlega. Stjórn Schäferdeildarinnar vill enn og aftur þakka þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem hjálpuðu okkur að setja upp þessa frábæri sýningu.

19.07.2013
Myndir frá afmælissýningunni
Það eru loksins komnar myndir frá sýningunni inn á facebook síðuna okkar . Skoða myndir hér.

11.07.2013
Rætt við norska dómarann Karl Otto Ojala
Viðtal: Brynja Tomer
Hæpin veðurspá, dumbungur og gegnvot grund eftir langvarandi rigningar urðu til þess að 25 ára afmælissýning deildarinnar var færð úr Guðmundarlundi inn í reiðhöll Fáks í Víðidalnum. Telja má fullvíst að sýnendur, starfsmenn og áhorfendur hafi allir verið ánægðir með þá ákvörðun, enda hitastigið 8 gráður og heilmikil slysahætta á rennvotu grasinu utan dyra. Lesa meira

Undir fjögur augu-rætt við norska dómarann Karl Otto Ojala, sem telur að sitthvað megi bæta
Hæpin veðurspá, dumbungur og gegnvot grund eftir langvarandi rigningar urðu til þess að 25 ára afmælissýning deildarinnar var færð úr Guðmundarlundi inn í reiðhöll Fáks í Víðidalnum. Telja má fullvíst að sýnendur, starfsmenn og áhorfendur hafi allir verið ánægðir með þá ákvörðun, enda hitastigið 8 gráður og heilmikil slysahætta á rennvotu grasinu utan dyra. Til leiks var skráður 61 hundur og er einkar ánægjulegt að skráningarmet hafi verið slegið á þessari afmælissýningu, sem er þriðja sérsýning deildarinnar á 25 árum.
Norski dómarinn Karl Otto Ojala hefur átt og ræktað Schäfer í 26 ár undir ræktunarnafninu Komsa og hefur haft réttindi til að dæma tegundina síðan 1999. Hann hefur jafnframt réttindi til að dæma vinnupróf og dæmdi einmitt sporapróf fyrir deildina sunnudaginn 7. júlí.
Stuttur upphandleggur og stórir hundar
„Almennt voru hundarnir á sýningunni miðlungs góðir og innan um voru hundar í háum gæðaflokki,“ sagði Karl Otto að lokinni sýningunni. Hann kvaðst einkum hafa orðið fyrir vonbrigðum með framhlutann og mjög margir hundanna hefðu of stuttan upphandlegg (upper arm). Þess ber að geta að markmiðið er að herðablað og upphandleggur séu jafn löng og myndi 90° horn. Annars fer orka hundsins og tími til spillis þegar hann hleypur.
Ennfremur sá Karl Otto ástæðu til að vara ræktendur við því að para tvo stóra hunda, margir hundanna á sýningunni hefðu verið á mörkum þess að vera of hávaxnir og nauðsynlegt væri að halda hæðinni í skefjum. Hæðamörk samkvæmt markmiði tegundarinnar eru 55-60 cm fyrir tíkur og 60-65 cm fyrir rakka. Þá er miðað við að þeir séu mældir frá gólfi að herðakambi, efsta punkti herðablaðsins.
„Svo mættu eigendur gjarnan þjálfa hundana sína betur fyrir sýningar. Schäfer ætti að hlaupa fyrir framan sýnandann, ekki við hlið hans eins og sumir gerðu. Einnig eiga þeir að geta sýnt eðlilegar hreyfingar á göngu og þess vegna bað ég sýnendur að ganga og hlaupa til skiptis.“ Aðspurður sagðist hann ekki hafa lent í vandræðum með að skoða hundana þótt þeir virtust ekki mikið sýningaþjálfaðir og einnig sagði hann að lundernið virtist prýðisgott.
Stutt spjaldbein
Spjaldbein (croup) margra hundanna er að mati Karls Ottos of stutt. Ræktunarmarkmið er að spjaldbeinið sé langt vegna þess að stutt spjaldbein bitnar á skreflengd hundsins og æskilegt er að Schäfer komist sem lengsta vegalengd í sem fæstum skrefum.
Höfuð hundanna voru almennt góð, sagði Karl Otto og feldgerðin sömuleiðis, þótt sumir hundanna væru feldlitlir á þessum árstíma. Hann kvaðst ánægður með að hafa fengið boð um að dæma á afmælissýningu deildarinnar, vel hefði verið tekið á móti sér og það fólk sem hann hefði hitt væri afar viðkunnanlegt.
Sjálf er ég mikill aðdáandi deildarsýninga og finnst þær frábær vettvangur til að fá sérfróða dómara og áhugamenn um viðkomandi tegundir til að dæma hundana. Í reiðhöllinni í Víðidal var að mínu mati haldið uppá afmæli deildarinnar með skemmtilegum hætti. Þarna voru borð og stólar í kringum veitingasöluna, svo hálfgerð veitingahúsastemmning myndaðist og einnig var sérstaklega gaman að dómarinn skyldi greina upphátt frá áliti sínu á þeim hundum sem sigruðu í hverjum flokki.
Ákaflega vegleg sýningaskrá sem afhent var í plastmöppu var deildinni til mikils sóma og sömuleiðis öll þau ósköp af verðlaunum og viðurkenningum sem velunnarar deildarinnar gáfu. Til hamingju með afmælið, schäferfólk!
Brynja Tomer

08-07-2013
Glæsileg 25 ára afmælissýning deildarinnar að baki

Besti hundur sýningar 1, C.I.B. ISCh RW-13 Welincha's Yasko og Besti hundur sýningar 2, Svarthamars Garpur.
Glæsileg afmælissýning fór fram á laugardaginn. Besti hundur sýningarinnar varð C.I.B. ISCH RW-13 Welincha's Yasko. En hann var besti hundur tegundar í stutthærðum Schafer. Annar besti hundur sýningar varð Svarthamars Garpur, sem var besti hundur tegundar í flokki síðhærðra Schaferahunda. Færa varð sýninguna inn í Reiðhöll Fáks vegna veðurs en það kom ekki að sök og allir skemmtu sér vel og var góð stemning hjá fólki og hundum.
Dómari á sýningunni var Karl Otto Ojala frá Noregi og var mikill fengur fyrir okkur að fá hann til landsins. Með fullri virðingu fyrir öðrum Schafer dómurum sem komið hafa á klakann er hann sennilega sá allra færasti sem dæmt hefur hundana okkar. Karl Otto er með hæstu gráðu frá SV í Þýskalandi í að dæma Schaferhunda bæði á sýningum og í vinnu.
Stjórn Schaferdeildarinna vill þakka öllum sem komu að framkvæmd og uppsetningu sýningarinnar innilega fyrir hjálpina. Einnig viljum við þakka styrktaraðilum sýningarinnar fyrir stuðninginn, án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Frekari úrslit verða birt fljótlega.
02.07.2013
Skráning stendur yfir í glæsilegt afmælispartý deildarinnar
Skráning í afmælispartý Schäferdeildarinnar í Hestamiðstöðinni í Víðidal stendur yfir. Hægt er að skrá sig fram að hádegi næsta föstudag. Glæsilegur matseðill og góð skemmtun.

30.06.2013
Dagskrá 25 ára afmælishátíðar Schaferdeildarinnar
Næsta helgi verður stútfull af skemmtilegheitum fyrir áhugafólk um tegundina. Dagskráin hefst laugardaginn 6. júlí með afmælissýningu deildarinnar í Guðmundarlundi. Fyrsti hundur fer í dóm hjá Karl Otto Ojala schäferdómara frá Noregi kl.10:00 stundvíslega. Sýninganúmer verða afhent á staðnum (í veitingasölutjaldi) og eru sýniendur beðnir að mæta tímanlega til að fá sýninganúmer og gera sig tilbúina þannig að allt gangi smurt fyrir sig. Veitingasala verður á staðnum og verður selt kaffi, kaldar samlokur, gos og sætindi. Allir að taka með sér reiðufé því engin posi verður á staðnum. Enginn aðgangseyrir er inn á svæðið allir velkomnir til að sjá flotta hunda og hvetja sitt fólk
Afmælispartý deildarinnar verður haldið að kvöldi sama dags í Hestamiðstöðinni í Víðidal (litla húsið fyrir neðan Reiðhöllina). Grillmeistarar koma og grilla ofan í okkur ljúfengan grillmat með öllu tilheyrandi. Engir drykkir verða í boði og er gestum velkomið að hafa með sér drykkjarföng að eigin vali til að skála fyrir árangri dagsins. Húsið opnar kl.19:00 og matur verður borinn fram kl. 20:00. Við munum svo skemmta okkur saman fram á kvöld. Miðinn kostar 4.000 krónur pr. mann og er hægt að skrá sig hér. Matseðillinn verður birtur um leið og hann berst.
Sporapróf verður haldið á sunnudeginum 7. júlí kl. 12:00. Prófað verður í spori I, II og III. Dómari verður Karl Otto Ojala frá Noregi. Staðsetning auglýst síðar. Áhorfendur velkomnir.
Sækja dagskrá sýningar hér.
__dagskr_sningar_breytt.pdf

26.06.2013
Afmælispartý Schäferdeildarinnar
Schäferdeildin ætlar að slá upp afmælispartýi að kvöldi sýningardagsins 6. júlí n.k. Partýið verður haldið á litlum og skemmtilegum stað í Víðidal. Fenginn verður kokkur til að grilla ofan í okkur ljúfengan grillmat með öllu tilheyrandi og ætlum við að skemmta okkur saman fram eftir kvöldi. Hægt verður að skrá sig á gestalistann gegn hóflegu gjaldi. Engin drykkir verða í boði og er gestum velkomið að hafa með sér drykkjarföng að eigin vali til að skála fyrir árangri dagsins. Opnað verður fyrir skráningu þann 1. júlí. Nánar auglýst síðar.

12.06.2013
Sporapróf Schaferdeildarinnar 7. júlí 2013
Í tengslum við afmælissýningu deildarinnar 6. júlí og komu dómarans Karl Otto Ojala ætlar Schaferdeildin að standa fyrir sporaprófum daginn eftir afmælissýninguna þann 7. júlí. Prófað verður í Spori I, II og III þennan dag. Þetta verða opin próf og teljast því til stiga hjá Vinnuhundadeild HRFÍ. Við hvetjum alla sem eru að vinna með hundana sína í sporavinnu að nýta sér þetta einstaka tækifæri og skrá hundana sína í sporapróf þennan dag.
Skráningarfrestur er til 21. júní og skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ í Síma 588 5255

11.06.2013
60 hundar skráðir á afmælissýninguna
Lokað hefur verið fyrir skráningu á 25 ára afmælissýningu deildarinnar. Þátttakan er aldeilis frábær og eru 60 flottir Schaferhundar skráðir til leiks. Það er vel við hæfi á afmælisári að met séu slegin því aldrei hafa jafn margir Schaferhundar verið skráðir til keppni á einni sýningu í sögu deildarinnar.

07.06.2013
Búið að framlengja skráningartímann til 11. júni.
Skráning í síma 588-5255 og á skrifstofu HRFÍ. Allir schaferhundar sem eru með ættbók frá HRFÍ velkomnir að skrá sig. Taktu þátt í að gera þessa sýningu að flottri og skemmtilegri schaferhunda sýningu.

04.06.2013
Minnum á síðasta skráningardag Minnum á að síðasti skráningardagur er 7. júní 2013 á flottu deildarsýninguna okkar allra.
Skráning í síma 588-5255 hjá skrifstofu HRFÍ www.hrfi.is Upplýsingar

30.05.2013
Sýningarþjálfun hjá schaferdeildinni fyrir 25 ára afmælissýninguna.
1. æfing 5. júní miðvikudag í Hafnarfirði við Víðistaðakirkju kl 20
2. æfing 12. júní miðvikudag í Hafnarfirði við Víðistaðakirkju kl 20
3. æfing 19. júni miðvikudag í Hafnarfirði við Víðistaðakirkju kl 20
4. æfing 25. júni þriðjudag í Hafnarfirði við Víðistaðakirkju kl 20
5. æfing 27. júni fimmtudag í Hafnarfirði við Víðistaðakirkju kl 20
6. æfing 1. júlí Mánudag í Guðmundalundi kl 20
7. æfing 3. júlí Miðvikuda í Guðmundalundi kl 20
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja stjórnin.

22.05.2013
Göngutúr og spjall um afmælissýningu
Þriðjudaginn 28 maí n.k. er fyrsti skráningardagur á 25 ára afmælissýningu Schäferdeildarinnar, sem haldin verður þann 6. júlí. Að því tilefni ætlum við hittast í tvennum tilgangi. Fyrst förum við í stuttann göngutúr í kringum Reykjavíkurtjörn með hundana okkar. Að því búnu ætlum við að spjalla saman um undirbúning og framkvæmd sýningarinnar sem styttist óðum í. Undirbúningur sýningarinnar gengur vel þó ennþá eigi nóg eftir að gera.
Við í stjórninni ætlum að kynna stuttlega hvað búið er að gera og hvað við viljum gera til að gera sýninguna sem glæsilegasta. Við viljum gjarnan heyra hvað þú hefur að segja um framvindu mála hjá okkur. Endilega láttu sjá þig ef þú hefur skoðun á málefninu eða vilt leggja hönd á plóginn því okkur vantar alla þá hjálp sem við getum fengið til að gera þessa sýningu þá glæsilegustu og eftirminnilegustu sem þú hefur tekið þátt í.
Mæting á bílaplani Kvennaskólans kl.19:00.

08.04.2013
25 ára afmælissýning Schäferdeildarinnar
í tilefni af tuttugu og fimm ára afmæli Schäferdeildarinnar í ár munum við halda glæsilega afmælissýningu laugardaginn 6. júlí í Guðmundarlundi í Kópavogi. Dómari sýningarinnar verður Karl Otto Ojala frá Noregi, en hann hefur getið af sér gott orð sem Schäfer dómari um allan heim og mun hann meðal annars verða einn af dómurum Norsk vinner í sumar. Við höfum einnig fengið hann til að dæma í vinnuprófum hjá okkur á sunnudeginum eftir sýninguna. Skráning á sýninguna hefst skömmu eftir sumarsýningu HRFÍ kringum mánaðarmótin maí/júní. Nánar auglýst síðar.
Mynd:Karl Otto Ojala dómari