23.07.2024
Sporapróf 17. júlíÞriðja sporapróf ársins var haldið miðvikudaginn 17. júlí síðastliðinn.
Tveir fulltrúar okkar tegundar mættu í prófið, einn í Spor I og annar í Spor III. Annað teymið náði prófi en það voru þær Forynju Bestla og María Jónsdóttir í Spori III sem enduðu í 1.sæti með 1.einkunn og 94 stig. Forynju Bestla hafði lokið bæði Spori I og Spori II með fyrstu einkunn og þar með öðlaðist hún titilinn ISTrch eða Íslenskur sporameistari með þessum árangri. Við óskum teyminu innilega til hamingju með flottan árangur og nýjan titil ! 12.07.2024
Hlýðnipróf 11. júlíFyrsta úti-hlýðnipróf ársins var haldið fimmtudaginn 11. júlí á fótboltavelli Fram í Grafarholti. Að þessu sinni áttum við tvo fulltrúa sem tóku þátt í hlýðni brons og náðu þeir frábærum árangri báðir tveir.
Niðurstöðurnar voru eftirfarandi: Forynju Ísköld Áminning og Hildur Sif Pálsdóttir í 1. sæti með 164,5 stig og bronsmerki ISJCH ISJW23 Miðvalla Alda og Marta Sólveig Björnsdóttir í 2. sæti með 157 stig og bronsmerki Til gamans má geta þess að nýtt met var slegið í prófinu þegar Forynju Ísköld Áminning lauk bronsprófi aðeins 6 mánaða gömul en hún er yngsti hundurinn sem hefur náð þeim árangri hér á landi. Hún hnuplaði þeim titli af ömmu sinni ISETrCh ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Ösku sem lauk bronsprófi á sínum tíma 8 mánaða gömul. Við óskum eigendum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur! 27.06.2024
Sporapróf 21.-22. júníVinnuhundadeildin hélt sporapróf helgina 21.-22. júní og voru þar tveir fulltrúar schaferdeildarinnar sem náðu frábærum árangi. Í spori I voru ISShCh ISJW22 OB-I ISW23 Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir sem voru í 1 sæti með 90 stig. Eftir þessa niðurstöðu getur Gló bætt við sig titlinum ISCh eða íslenskur meistari.
Í spori Elite áttu ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I RL-I Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir frábært próf þar sem hún hlaut fyrstu einkunn og 94 stig. Spor Elite er erfiðasta sporapróf sem er tekið hér á landi og er Vesen annar schafer hundur landsins til að bæta við sig titlinum ISETrCH eða íslenskur Elíte spora meistari. Skemmtilega vill til að hinn schafer hundurinn með þennan titil er mamma Vesen. Við óskum eigendum og ræktanda Gló og Vesen innilega til hamingju með árangurinn. (Upplýsingar og myndir fengnar af síðu Vinnuhundadeildar) 19.06.2024
Myndir frá tvöfaldri deildarsýningu Schäferdeildarinnar 2024Á deildarsýningum ársins fékk stjórnin hana Karólínu Alexöndru Styrna til þess að mynda sýningarnar. Því miður vegna veðurs varð að færa seinni sýninguna innandyra svo það var eingöngu teknar myndir af úrslitum þann daginn, en á laugardeginum var glampandi sól.
Myndirnar eru í eigu deildarinnar en fólki er frjálst að nota þær. Að gefnu tilefni er ekki leyfilegt að breyta myndunum á nokkurn hátt eða bæta merkingum inn á þær. Hægt að skoða allar myndirnar hér. Sendir stjórn aftur bestu þakkir til allra þátttakenda á deildarsýningun ársins, en þær voru virkilega vel heppnaðar. 10.06.2024
Reykjavík Winner 2024Sunnudaginn 9. júní sl í blíðskaparveðri fór fram Reykjavík Winner og Norðurlandasýning HRFÍ. Dómari að þessu sinni var Sonny Ström frá Svíþjóð, 21 síðhærðir og 45 snögghærðir hundar voru skráðir til leiks og hófust dómar á síðhærðum.
Í ungviðaflokki 4-6 mánaða var það Ösku Blökk sem var valin besti hvolpur tegundar og í eldri hvolpaflokki var það Ice Tindra J Jax. Besti rakki tegundar var úr meistaraflokki, ISShCh NORDICCh C.I.E. RW-21 RW-22-23 Ice Tindra Rocky og hlýtur hann titilinn RW-24. Annar besti rakki tegundar með Íslenskt meistarastig og Norðurlandameistarastig var Dimmuspors All I Ever Wanted. Besta tík tegundar, Besti hundur tegundar, besti öldungur tegundar og að lokum 3. Besti öldungur sýningar var CIB-V ISVetCh C.I.E. ISShCh NORDICCh NLM RW-17 ISVW23 Ice Tindra Joss og hlaut hún norðurlanda öldungameistarastig og einnig bættu hún við í titla safnið RW-24. Besta ræktunarhóp tegundar átti Ice Tindra ræktun. Þá hófst dómur í snöggu hundunum og í flokki 4-6 mánaða ungviða voru það Forynju Ísköld Áminning sem varð besta ungviði tegundar og bróðir hennar Forynju Ískaldur Veruleiki sem varð bestur af gagnstæðu kyni. Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða var Ice Tindra J Jubel. Besti rakki tegundar kom úr öldungaflokki en það var hann CIB-V ISVetCh ISShCh ISVW-22-23 ISW-22 RW-23 Ice Tindra Jessy og hlaut hann norðurlandameistarastig, norðurlanda öldungameistarastig og titilinn RW-24. Hann varð besti öldungur tegundar og endaði svo daginn á því að verða besti öldungur sýningar. Óskar stjórn eigendum og ræktanda hans innilega til hamingju með árangurinn. Annar besti rakki tegundar með sitt fyrsta Íslenska meistarastig var úr ungliða flokki, Forynju Innbrotsþjófur. Hlaut hann einnig sitt annað ungliða meistarastig og fyrsta norðurlanda ungliða stig og getur hann því sótt um titilinn ISJCh. Óskar stjórn eiganda hans og ræktanda innilega til hamingju með titilinn. Besta tík tegundar og besti hundur tegundar var úr opnun flokki Gjósku Örlagadís. Hlaut hún þar sitt fyrsta Íslenska meistarastig og fyrsta Norðurlanda meistarastig sem og titilinn RW-24. Örlagadís mætti svo í sterkan tegundarhóp 1 þar sem hún landaði 2. Sæti. Besti ungliði tegundar var Ice Tindra H Halo en hlaut hún sitt fyrsta íslenska ungliða meistarastig og Norðurlanda ungliða meistarastig. Besta ræktunarhóp tegundar og 3. Besta ræktunarhóp dagsins átti Ice Tindra ræktun. 30.05.2024
Deildarsýningar 2024Þá er deildarsýningum schäferdeildarinnar árið 2024 lokið og ákvað stjórnin að halda í ár tvöfalda sýningu helgina 18. og 19. maí.
Planið var að hafa báðar sýningarnar í Guðmundarlundi í Kópavogi, en síbreytilega veðrið á Íslandi hafði önnur plön og þegar ljóst var að gul viðvörun yrði á sunnudeginum var ákveðið að seinni dagurinn yrði færður inn í gömlu Andvarahöllina á Hattarvöllum. Fyrri daginn dæmdi Oddbjørn Winther frá Noregi í sól og blíðu í Guðmundarlundi. Báðar sýningarnar byrjuðu á dómum á öllum hvolpum og á laugardeginum voru það 3-6 mánaða snögghærðir hvolpar sem hófu leika. Úr rakka flokki var það Forynju Ísbjörn sem hafði sigur úr bítum, systir hans, Forynju Ísköld Áminning var hlutskörpust tíkanna. Það var svo Forynju Ísbjörn sem var valinn besta snögga ungviði sýningar. Í síðhærðu hvolpunum valdi Oddbjørn Ice Tindra J Jax sem besta síðhærða ungviði sýningar. Þá hófust leikar í fullorðnu hundunum og eins og í hvolpunum þá byrjaði dómur á snögghærða afbrigði tegundarinnar. Besta ungliða tegundar og jafnframt besta snögghærða ungliða sýningar valdi dómarinn Forynju Innbrotsþjóf og hlaut hann þar sitt fyrsta íslenska ungliðameistarastig. Besti rakki tegundar með sitt annað Íslenska meistarastig kom úr vinnuhundaflokki, OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn og besta tík tegundar úr opnum flokki var hálf systir hans hún ISJCh ISW-23 ISJW-22 OB-I Forynju Gló. Gló var þar að fá sitt fjórða Íslenska meistarastig og getur hún því sótt um titilinn ISShCh eða Íslenskur sýningarmeistari. Óskar stjórn eiganda og ræktanda hennar innilega til hamingju með titilinn. Besti snögghærði öldungur sýningar varð C.I.B-V ISShCh ISVETCh ISW-22 ISVW-22-23 RW-23Ice Tindra Jessy og besta snögghærða hund sýningar valdi Oddbjørn hann OB-I Forynju Brjálaða Fenris Úlfinn. Í afkvæmahópum var það ISShCh Pablo vom Team Panoniansee með afkvæmum sínum sem var valinn besti snöhhærði afkvæmahópur sýningar og í ræktunarhópunum var það Forynju ræktun sem hreppti sigurinn um besta snögghærða ræktunarhóp sýningar. Seinnipartinn fór fram dómur í síðhærðu hundunum og valdi dómarinn besta rakka tegundar úr opnum flokki Forynju Efa, en hlaut hann þar sitt fyrsta Íslenska meistarastig. Besta tík tegundar kom einnig úr opnum flokki, en það var Ice Tindra Yrsa. Var Yrsa þar að fá sitt þriðja og jafnframt síðasta Íslenska meistarastig og getur hún þá sótt um titilinn ISShCh Íslenskur sýningarmeistari. Óskar stjórn eiganda og ræktanda hennar innilega til hamingju með áfangann. Besti síðhærði hundur sýningar varð svo Ice Tindra Yrsa, besti síðhærði öldungur sýningar var hin sigursæla C.I.B-V C.I.E ISShCh NORDICCh ISVetCh NLM RW-17 ISVW-23 Ice Tindra Joss og besta síðhærða ræktunarhóp sýningar átti Ice Tindra ræktun Dagur tvö var öllu kaldari, en vindarnir blésu og rigning gekk yfir gesti og gangandi. Voru því allir dauð fegnir að hægt var að færa sýninguna innandyra.
Aftur hófst dómur klukkan 09:00 á hvolpum en nú snerust afbrigðin við og síðhærðu hundarnir hófu sýninguna. Dómarinn að þessu sinni var Ulla Hansen frá Danmörku. Í flokki 3-6 mánaða rakka var það Miðvalla Áki sem bar sigur úr bítum, í tíkunum var það í fyrsta sinn á Íslandi sem síðhærðir svartir schäferhundar mætti til leiks og varð Ösku Blökk besti tíkarhvolpurinn. Valdi Ulla svo hana Ösku Blökk sem besta síðhærða ungviði sýningar. Þá tóku snöggu hvolparnir við og úr 3-6 mánaða rökkum var það Forynju Ískaldur Veruleiki sem fangaði auga dómarans og í tíkunum var það Miðvalla Áróra. Forynju Ískaldur Veruleiki stóð svo uppi sem sigurvegari um besta snögghærða ungviði sýningar. Í eldri hvolpaflokki varð Ice Tindra H Halo besti snögghærði hvolpur sýningar. Þá hófust leikar í fullorðnu síðhærðu hundunum og valdi Ulla besta rakka tegundar úr meistaraflokki hann ISShCh Ásgarðsfreyju Skaðvald, þar sem að hann er nú þegar meistari rann Íslenska meistarastigið niður til annars besta rakka tegundar Ice Tindra Team Duke, en var það hans áttunda Íslenska meistarastig hvorki meira né minna en nú hafði hann náð tilsettum tveggja ára aldri til þess að klára Íslenska sýningarmeistaratitilinn ISShCh. Óskar stjórn eiganda og ræktanda hans innilega til hamingju með árangurinn. Besta tík tegendar, besti síðhærði öldungur sýningar og besti síðhærði hundur sýningar var hin tæplega 10 ára C.I.B-V C.I.E ISShCh NORDICCh ISVetCh NLM RW-17 ISVW-23 Ice Tindra Joss, en hefur hún átt stórbrotinn sýningarferil og vill stjórn óska eiganda hennar og ræktanda innilega til hamingju með hana. Þar sem að Joss er orðin meistari rann Íslenska meistarastigið niður til þriðju bestu tíkar tegundar ISJCh Gjósku Þulu, en var það hennar annað Íslenska meistarastig. Eins og á laugardeginum átti svo Ice Tindra ræktun besta síðhærða ræktunarhóp sýningar. Hófst svo dómur í snögghærðu hundunum og aftur úr vinnuhundaflokki var það OB-I Forynju Brjálaði Fenris Úlfurinn sem þótti bestur. Hlaut hann þar sitt þriðja og síðasta Íslenska meistarastig og þar sem að hann hefur lokið kröfum um vinnupróf getur hann sótt um titilinn ISCh eða Íslenskur meistari. Óskar stjórn eiganda og ræktanda hans innilega til hamingju með frábæran árangur um helgina og nýja titilinn. Besti snögghærði öldungur tegundar varð sem fyrri daginn C.I.B-V ISShCh ISVETCh ISW-22 ISVW-22-23 RW-23Ice Tindra Jessy. Besta tík tegundar kom úr opnum flokki, en það var hin Norska RW-22 Dior av Rostadgården og hlaut hún þar sitt þriðja Íslenska meistarastig og getur sótt um titilinn ISShCh. Óskar stjórn eiganda hennar og ræktanda til hamingju með nýja titilinn. Besti snögghærði hundur sýningar varð svo RW-22 Dior av Rostadgården. Besta snögghærða afkvæmahóp sýningar átti aftur ISShCh Pablo vom Team Panoniansee og besta snögghærða ræktunarhóp sýningar átti Ice Tindra ræktun. Vill stjórn koma til skila þakklæti til allra sem að sýningunni komu, allir sýnendur og eigendur voru til fyrirmyndar og vel var gengið um sýningarsvæðin. Einnig voru frábær fyrirtæki og ræktendur sem hjálpuðu til við að gera sýninguna að veruleika, en það voru Doggo.is, Miðvalla ræktun, Petria, Ösku ræktun og að ógleymdum aðal styrktaraðila deildarinnar Dýrafóður.is Myndir frá úrslitum laugardaginn 18. maí.
Myndir frá úrslitum sunnudaginn 19. maí
17.05.2024
Deildarsýning - upplýsingarNú fer að líða að deildarsýningunum okkar, aðeins fáeinir klukkutímar. Dómararnir okkar eru mættir til landsins.
Eins og fram hefur komið er dagskráin eftirfarandi: Dagskráin er laugardaginn 18. maí Snögghærðir hvolpar 3-6 mánaða - Besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða Síðhærður hvolpar 3-6 mánaða - Besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða Snögghærðir hvolpar 6-9 mánaða - Besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða Snögghærðir hundar, byrjað á rökkum -Besti ungliða -Besti öldungur -Besti hundur tegundar Ræktunar hópar Afkvæma hópar Og alveg eins uppraðað í þeim síðhærða og svo er svissað feldgerðum á sunnudaginn Aðalstyrktar aðili sýningarinnar er Dýrafóður.is - Belcando. En þau sjá um alla vinninga, bikarar, medalíur, verðlaunapokar og gjafabréf. Við gætum ekki verið þakklátari fyrir þetta æðislega samstarf. Þúsund þakkir! Hinar styrktaraðilarnir að þessu sinni eru, Doggo.is, Miðvalla ræktun, Petria og Ösku ræktun. Þökkum við þeim einnig fyrir styrkina. Viljum benda á það að Petria verður með sölubás á sýningunni og hægt verður að versla flottu vörurnar frá þeim. Hlökkum til að eiga með ykkur góðan dag, munið eftir góða skapinu og regngallanum og göngum snyrtilega um Guðmundarlund saman. 11.05.2024
PM & dagskrá - Deildarsýningar 18. og 19. maíNú fer heldur betur að styttast í deildarsýningar ársins. Við viljum byrja á því að þakka okkar fremstu styrktaraðilum hjá Dýrafóður.is - Belcando en þau hafa veitt verðlaun á sýningum innan HRFÍ síðustu ára.
Við erum þeim afar þakklát og myndum heldur betur ekki getað heiðrað alla þessa hunda án þeirra aðstoðar, takk! Sýningarnar mun báðar hefjast á slaginu 09:00 báða dagana. Dagskráin er laugardaginn 18. maí Síðhærðir hvolpar 3-6 mánaða Snögghærðir hvolpar 3-6 mánaða Snögghærðir hvolpar 6-9 mánaða Síðhærðir hvolpar 6-9 mánaða Snögghærðir hundar, byrjað á rökkum Síðhærðir hundar, byrjað á rökkum Dagskráin er sunnudaginn 19. maí Snögghærðir hvolpar 3-6 mánaða Síðhærður hvolpar 3-6 mánaða Snögghærðir hvolpar 6-9 mánaða Síðhærðir hundar, byrjað á rökkum Snögghærðir hundar, byrjað á rökkum Hvetjum við fólk til að mæta tímanlega, ganga snyrtilega um og að sjálfsögðu að hafa gaman með okkur. Óskum við öllum góðs gengis og hlökkum til að eiga með ykkur góða stund. Minnum svo á að skráning í matinn með dómurum á sunnudagskvöldið er enn í gangi og stendur til 14. mai - Stjórn Schäferdeildarinnar 13.04.2024
Degenerative Myelopathy eða DM í SchäferStjórn Schäferdeildarinnar hafa borist þær fréttir að stökkbreyting sem veldur auknum líkum á Degenerative Myelopathy eða DM hafi greinst í schäferhundum hér á landi í fyrsta skipti svo vitað sé.
DM er taugahrörnunarsjúkdómur hjá hundum sem leggst á mænu og veldur hægfara lömun sem byrjar í afturfótum. DM hefur verið þekktur sjúkdómur í þýska fjárhundinum frá 8. áratug síðustu aldar. Í fyrstu var hann talinn einskorðast við tegundina en hefur í seinni tíð greinst hjá fleiri tegundum. Hægt er að lesa ýtarlega grein um DM undir heilbrigði hér á síðunni. Stjórn vill benda ræktendum á að kynna sér sjúkdóminn nánar, 24.03.2024
Páskaganga Schäferdeildarinnar 2024Páskaganga Schäferdeildarinnar var haldin í miðbæ Reykjavíkur í sólskinsveðri þann 23.mars.
Góð mæting var í gönguna og vöktu hundarnir okkar mikla athygli, bæði meðal íbúa og ferðamanna. Deildin vill þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að mæta og hlökkum við til að sjá sem flesta aftur í næstu göngu sem verður auglýst síðar. 17.03.2024
Páskaganga SchäferdeildarinnarPáskaganga Schäferdeildarinnar verður haldin næstu helgi, laugardaginn 23.mars. Við ætlum að hittast klukkan 13 við Hallgrímskirkju og rölta þaðan léttan hring í bænum.
Hlökkum til að sjá sem flesta! 16.03.2024
Páskabingó Schäferdeildarinnar 2024
08.03.2024
Tvöföld deildarsýning Schäferdeildarinnar 2024Fyrsta mál á dagskrá hjá nýrri stjórn deildarinnar var að skipuleggja flotta deildarsýningu og var ákveðið að fá tvo dómara að þessu sinni. Sýningin verður haldin helgina 18.-19. maí á glæsilegu svæði í Guðmundarlundi í Kópavogi.
Deildarsýningar eru ein besta leið fyrir ræktendur til þess að fá stöðumat á því hvað ræktunin þeirra stendur og einu skiptin sem Schäfer eigendur fá sérhæfða dómara á tegundina. Í ár koma þau Oddbjørn Winther frá Noregi og Ulla Hansen frá Danmörku til okkar, en eru þau bæði mjög vinsælir dómarar sem og flottir ræktendur. Á laugardeginum 18. maí mun Oddbjørn Winther dæma. Hann kemur eins og fyrr segir frá Noregi og ræktar undir hinu þekkta ræktunar nafni Owinn’s. Oddbjørn dæmir bæði á SV og FCI sýningum, hefur réttindi til að gefa hundum svokallaðan ræktunardóm eða Avlskåring, ásamt því að hafa ræktað tegundina í yfir 40 ár. Á sunnudeginum 19. maí dæmir hin Danska Ulla Hansen, en eins og Oddbjørn hefur hún ræktað tegunda í tugi ára og dæmir um allt meginland Evrópu. Ulla ræktar undir nafninu Team Paka’s og hafa hundar frá henni náð frábærum árangri í Danmörku og víðar. Báðir dómararnir okkar búa yfir áratuga reynslu og víðtækri þekkingu á tegundinni. Hlakkar stjórnin mikið til þess að fá þau til okkar og viljum við hvetja alla til þess að skrá á þessa flottu sýningu, en skráning opnar á næstu dögum. Einnig viljum við benda á að ef ræktendur eða fyrirtækja eigendur vilja styrkja sýninguna að hafa samband við stjórn deildarinnar í tölvupósti : [email protected] Skráning opnar á næstu dögum á hundavef.is Hlökkum til að sjá ykkur helgina 18.-19. maí í Guðmundarlundi. 4.03.2024
Norðurljósasýning HRFÍ 2024
Þá er fyrstu sýningu ársins lokið og var flott skráning í tegundinni að vanda.
Dómarinn að þessu sinni var Diane Stewart-Ritchie frá Írlandi og byrjaði hún á að dæma síðhærða afbrigði tegundarinnar. Besti rakki tegundar að þessu sinni var ISShCh ISW-23 Ásgarðsfreyju Skaðvaldur úr meistaraflokki og hlaut hann sitt fyrsta alþjóðlega meistarastig. 3. Besti rakki tegundar og besti ungliði tegundar varð ISJW-23 Ice Tindra Team Günter, hlaut hann sitt fyrsta Íslenska meistarastig, einnig fékk hann sitt fyrsta alþjóðlega ungliða meistarastig sem og sitt annað Íslenska ungliða meistarastig. Getur hann því nú sótt um titilinn ISJCh Íslenskur ungliðameistari. Óskar stjórn eiganda hans og ræktanda til hamingju með nýjan titil. Besta tík tegundar, besti öldungur tegundar og besti hundur tegundar var eins og svo oft áður C.I.E ISShCh NORDICCh ISVETCH NLM RW-17 ISVW-22-23 Ice Tindra Joss með Íslenskt öldunga meistarastig. Önnur besta tík tegundar, með bæði sitt þriðja Íslenska og annað alþjóðlega meistarastig, var úr vinnuhundaflokki OB-I Forynju Einstök. Getur hún því sótt um titilinn ISCh Íslenskur meistari, óskar stjórn eiganda hennar og ræktanda til hamingju. Besta ungliða tíkin og annar besti ungliði tegundar var Ice Tindra Team Gabby með sitt fyrsta Íslenska og alþjóðlega ungliða meistarastig. Besta ræktunarhóp tegundar átti Ice Tindra ræktun. Joss átti frábæra byrjun á sýningarárinu, en bæði varð hún í öðru sæti í tegundarhópi 1, og endaði hún svo á því að verða besti öldungur sýningar. Glæsilegur árangur og óskar stjórn deildarinnar eiganda hennar og ræktanda til hamingju með hana. Að loknum dómi síðhærðu hundana hófst dómur á þeim snögghærðu og besta hvolp tegundar 6-9 mánaða valdi Diane tíkina Ice Tindra H Halo. Úr meistaraflokki valdi dómarinn besta rakka tegundar, ISShCh Pablo vom Team Panoniansee og hlaut hann þar sitt þriðja alþjóðlega meistarastig. Annar besti rakki tegundar með sitt þriðja Íslenska meistarastig var BH IPG1 AD Kkl1 WH ISW-23 Ibra del Rione Antico, getur hann því sótt um titilinn ISCh Íslenskur meistari. Óskar stjórnin eiganda hans til hamingju með titilinn. Besti öldungur tegundar varð ISShCh IsVetCh RW-23 ISW-22 ISVW-22 ISVW-23 Ice Tindra Jessy. Besta tík tegundar og besti hundur tegundar kom einnig úr meistaraflokki ISShCh ISJCh Ice Tindra Liv með Alþjóðlegt meistarastig, en hún bíður staðfestingar á alþjóðlegum sýningar meistaratitli svo bæði Íslenska meistarastigið og það alþjóðlega runnu niður til annarar bestu tíkar tegundar Ice Tindra Team Foxy. Besti ungliði tegundar varð Forynju Indæla Píla, en hún hlaut þar sitt fyrsta Íslenska og alþjóðlega ungliða meistarastig. Besta ræktunarhóp tegundar og 4. Besta ræktunarhóp dagsins átti Ice Tindra ræktun. Óskar stjórn Schäferdeildarinnar öllum innilega til hamingju með árangur þessarar fyrstu sýningar ársins 2024. Einnig vill stjórnin þakka fyrir frábæran áframhaldandi stuðning frá styrktaraðila deildarinnar, Dýrafóður.is. 27.02.2024
Hlýðnipróf 25.febrúarFyrsta hlýðnipróf ársins var haldið síðastliðinn sunnudag þar sem sex hundar mættu til leiks og þarf af tveir schäferhundar.
Hlýðni II 2.sæti með 135,5 stig og 3.einkunn ISJCH ISJW22 OB-I ISW23 Forynju Gló og Hildur Kristín Þorvarðardóttir Hlýðni III 1.sæti með 278,5 stig og 1.einkunn ISObCh ISTrCh OB-III OB-II OB-I Forynju Bara Vesen og Hildur Sif Pálsdóttir Forynju Bara Vesen lét sér ekki nægja að klára með 1.einkunn heldur var þetta í þriðja sinn sem hún náði þeim árangri og hlaut hún þar með titlana OB-III og ISObCh! Hún er þriðji schäferhundur landsins til þess að hljóta þessa titla og gerast íslenskur hlýðnimeistari og óskum við henni og eiganda hennar innilega til hamingju með þennan árangur. 27.02.2024
Páskabingó SchäferdeildarinnarÞann 14.mars næstkomandi ætlar Schäferdeildin að halda Páskabingó í Sólheimakoti
Fjöldinn allur af glæsilegum vinningum eru komnir í hús sem heppnir bingóspilarar eiga tækifæri á að vinna Myndir af vinningum og kynningar á styrktaraðilum munu koma inn á viðburð á Facebook síðunni okkar sem og instagram síðuna okkar, svo við hvetjum ykkur til þess að fylgjast með þar Kaffiveitingar verða til sölu á staðnum Hlökkum til að sjá ykkur sem flest eiga góðan dag með okkur þann 14.mars! 20.02.2023
Stórhundadagar í Garðheimum 24-25 feb.Stórhundadagar Garðheima verða haldnir næstu helgi frá 13-16 bæði laugardag og sunnudag þar sem við í Schäferdeildinni ætlum að vera með bás.
Við óskum eftir sjálfboðaliðum til þess að sitja vaktina með okkur og vekja athygli á frábæru tegundinni okkar. Ef þið hafið áhuga á að taka þátt, vinsamlegast fyllið þá út skráningarformið hér fyrir neðan. Skráið klukkan hvað, hversu lengi og hvorn daginn þið viljið vera. ATH. að svona viðburður hentar ekki öllum hundum, þetta er mikið áreiti sem hundarnir þurfa að þola. Hvolpar þurfa að vera fullbólusettir og lóðatíkur mega ekki vera á svæðinu. Ef þið fáið engan staðfestingarpóst frá okkur hafið þá endilega samband ([email protected]) Hlökkum til að sjá ykkur á Stórhundadögum í Garðheimum um helgina! 19.02.2023
Febrúar ganga SchäferdeildarinnarFebrúarganga deildarinnar fór fram sunnudaginn 18. febrúar. Veðrið lék aldeilis við okkur og gengum við skemmtilegan hring í miðbæ Hafnarfjarðar. Frábær mæting var í gönguna og vöktu hundarnir okkar mikla lukku og athygli innan bæjarins.
Stjórn þakkar þeim sem gáfu sér tíma til að mæta og rölta með okkur, við hlökkum til að sjá enn fleiri í næstu göngu sem verður auglýst síðar! 17.02.2023
!!! ATH. Breytt staðsetning á göngunni !!!Breytt staðsetning á göngunni á morgun, hittumst klukkan 12 við Hafnarfjarðarkirkju og göngum saman léttan hring í bænum.
15.2.2024
Febrúar ganga Schäferdeildarinnar !Sunnudaginn 18.febrúar verður næsta ganga Schäferdeildarinnar haldin
Við ætlum að hittast klukkan 12 við botn Hvaleyrarvatns í Hafnarfirði og ganga þar saman léttan hring í kringum vatnið Hlökkum til að sjá ykkur sem flest! 12.2.2024
Rallý hlýðni SchäferdeildarinnarNæsta Rallý æfing Schäferdeildarinnar verður haldin næstkomandi þriðjudag í húsnæði HRFÍ - Melabraut 17 frá klukkan 17 til 18
Kjörið tækifæri að æfa sig í sömu aðstæðum og próf eru haldin! Allir velkomnir 04.02.2024
Rallý æfingar SchäferdeildarinnarSchäferdeildin ætlar að fara af stað með Rallý hlýðni æfingar á þriðjudögum kl 17. - 18.
Æfingarnar verða haldnar í húsnæði HRFÍ - Melabraut 17. Allir eru velkomnir ! Stórir eða smáir, ungir eða gamlir, byrjendur eða lengra komnir. Skiptið kostar 2.000 kr á mann. Hlökkum til að sjá ykkur ! 30.01.2024
Fyrsta ganga ársinsSunnudaginn 28. janúar fór fram fyrsta ganga deildarinnar í góðu veðri. Gangan átti að vera deginum áður en ákvað var að fresta vegna veðurs.
Gangan hófst við Árbæjarkirkju og gengum við góðan hring í Elliðárdalnum. Í gönguna mættu 15 ferfætlingar á öllum aldri, sá yngsti var 10 mánaða og sá elsti 10 ára. Deildin vill þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að mæta og hlökkum við til að sjá sem flesta aftur í næstu göngu sem verður 18.febrúar, staðsetning verður auglýst síðar. 28.01.2024
Hvolpasýning HRFÍ 27. janúarLaugardaginn 27. janúar hélt Hundaræktarfélag Íslands hvolpasýningu í nýja húsnæði HRFÍ að Melabraut 17.
Góð skráning var á sýninguna en í heildina voru átta schaferhvolpar skráðir og voru þar af sjö snögghærðir og einn síðhærður, allir í ungviða flokki 3-6 mánaða. Dómari var Erna Sigríður Ómarsdóttir. Í flokki síðhærðra var það Ice Tindra H Háseti sem varð besta ungviði tegundar. En í flokki snögghærðra voru það got systkinin Ice Tindra I Ibra og Ice Tindra I Ida sem unnu sína flokka og kepptu um besta ungviði tegundar. Ice Tindra I Ida hafði betur gegn bróður sínum og varð besta ungviði tegundar. Hún kláraði daginn svo á því að vera valin Besta ungviði sýningar ! Deildin óskar eigendum og ræktendum þessara hvolpa innilega til hamingju með frábæran árangur. 27.01.2024
!!! ATH. Þorragangan færð vegna veðurs !!!Vegna veðurs höfum við ákveðið að fresta göngunni þar til á morgun Hittumst klukkan 14 á morgun við Árbæjarkirkju Hlökkum til að sjá ykkur! 24.01.2024
Þorra ganga Schäferdeildarinnar.Schaferdeildin ætlar að vera með fyrstu göngu ársins núna á laugardaginn næsta, 27. janúar kl 14.00. Við ætlum ađ hittast á bílaplaninu við Árbæjarkirkju og ganga þaðan léttan hring niður í Elliðarárdal.
Hlökkum til að sjá sem flesta, göngur eru skemmtileg umhverfisþjálfun fyrir alla ferfætlinga og góð skemmtun fyrir tvífætta. Allir að muna eftir góða skapinu og kúkapokum! 23.01.2024
Ársskýrsla og ársreikningurÁrsfundurinn var haldinn þann 18. janúar 2024. Farið var yfir ársskýrslu, reikninga og kosið var í nýja stjórn. Alls voru fimm sæti laus, þrjú til tveggja ára og tvö til eins árs. Í stjórn sitja:
Formaður Eygló Anna Ottesen Guðlaugsdóttir Varaformaður Hildur Sif Pálsdóttir Gjaldkeri Marta Sólveig Björnsdóttir Ritari Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir Meðstjórnandi Karolina Aleksandra Styrna Ársskýrslu og ársreikning má lesa hér. Ný stjórn hlakkar til að taka við keflinu og plana næstu mánuði. 04.01.2024
Ársfundur SchäferdeildarinnarÁrsfundur Schäferdeildar HRFÍ verður haldinn fimmutdaginn 18. janúar 2024 kl.18:30 á skrifstofu HRFÍ, Melabraut 17 Hafnarfirði
Dagskrá fundar 1. Kosning fundarstjóra og ritara 2. Ársskýrsla deildar 3. Reikningar deildarinnar 4. Kosning stjórnar (4 sæti laus. Tvö til tveggja ára og tvö sæti til eins árs) 5. Önnur mál Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Hlökkum til að sjá ykkur Stjórn Schäferdeildar |
Nýlega uppfært:
|