Úrslit úr vinnuprófum árið 2018
Hlýðnipróf vinnuhundadeildar HRFÍ 21.októberNæst síðasta hlýðnipróf ársins á vegum vinnuhundadeildar HRFÍ var haldið sunnudaginn 21.október síðastliðinn í reiðskemmu Sprettara á Kjóavöllum.
Fjórir hundar voru skráðir í prófið og þarf af tveir schäferhundar. Tóku þeir báðir þátt í hlýðni I og náði báðir prófi með 1.einkunn og hlaut annar hundurinn silfurmerki, hinn hundurinn var búinn að fá silfurmerki HRFÍ. Hlýðni I: 1.sæti OB-I Forynju Aska með 190,5 stig og 1.einkunn 3.sæti ISJCh Gjósku Vænting með 167,5 stig, 1.einkunn og silfurmerki HRFÍ Dómari: Björn Ólafsson Prófstjóri: Erla Heiðrún Benediktsdóttir Ritari: Marta Sólveig Björnsdóttir Deildin óskar eigendum innilega til hamingju með árangurinn. |
Tvöfalt hlýðnipróf svæðafélags Norðurlands 2018Tvöfalt hlýðnipróf var haldið á vegum Norðurhunda á Akureyri í samvinnu við vinnuhundadeild HRFÍ helgina 29 og 30.september síðastliðinn. 8 hundar voru skráðir í próf þessa helgina og þar af voru 4 schäfer hundar.
Á laugardeiginum var einn schäfer hundur skráður í brons, tveir voru skráðir í hlýðni I og einn hundur í hlýðni III. Á sunnudeiginum voru þrír schäfer hundar skráðir í hlýðni I og einn í hlýðni III. Allir hundar náðu prófi. Laugardagur: Brons: 2.sæti ISJCh Gjósku Vænting með 155 stig og bronsmerki HRFÍ Hlýðni I: 1.sæti OB-I Forynju Aska með 170,5 stig og 1.einkunn 2.sæti OB-I ISJCh Ice Tindra King með 157 stig og 2.einkunn Hlýðni III: 1.sæti OB-II OB-I Vonziu's Asynja með 212,5 stig og 3.einkunn Sunnudagur: Hlýðni I: 1.sæti OB-I Forynju Aska með 181 stig og 1.einkunn 3.sæti OB-I ISJCh Ice Tindra King með 160 stig og 1.einkunn 4.sæti ISJCh Gjósku Vænting með 144,5 stig og 3.einkunn Hlýðni III: 1.sæti OB-II OB-I Vonziu's Asynja með 217,5 stig og 3.einkunn Dómari: Albert Steingrímsson Prófstjórar: Elín Þorsteinsdóttir og Fanney Harðardóttir Ritarar: Björg Theodórsdóttir og Fanney Þórarinsdóttir Deildin óskar eigendum til hamingju með árangurinn. |
Hlýðnipróf vinnuhundadeildar HRFÍ 21.09.18Hlýnðipróf vinnuhundadeildarinnar var haldið föstudagskvöldið 21.september í reiðskemmu Sprettara á Kjólavöllum. 6 hundar voru skráðir í próf og þar af voru 4 schäferhundar.
Einn hundur var skráður í brons próf og náði hann prófi og 3.sæti. Tveir hundar voru skráðir í hlýðni 1 og náðu báðir prófi. Einn hundur var skráður í hlýðni III og náði hann einnig prófi. Brons: 3.sæti ISJCh Gjósku Vænting með 121 stig Hýðni I: 1.sæti OB-I ISJCh Ice Tindra King með 185 stig og 1.einkunn 2.sæti OB-I Forynju Aska með 174,5 stig og 1.einkunn Hlýðni II: 1.sæti OB-II OB-I Vonziu's Asynja með 231,5 stig og 2.einkunn Dómari: Silja Unnarsdóttir Prófstjóri: Gunnhildur Jakobsdóttir Ritari: Stefanía H. Sigurðardóttir Deildin óskar eigendum innilega til hamingju með árangurinn. |
Sporapróf vinnuhundadeildar HRFÍ 13.09.18Sporapróf vinnuhundadeildar HRFÍ var haldið fimmtudaginn 13.september síðastliðinn og voru tveir schäferhundar skráðir í próf. Annar var skráður í spor I og hinn í spor II.
Spor I: RW-18 C.I.E ISShCh NLM Kolgrímu For Your Eyes OnlyHólm tók þátt í sporaprófi í fyrsta skipti og fann alla millihlutina en þar sem hann markeraði ekki endahlutinn þá náði hann ekki einkunn að þessu sinni. Spor II: OB-I Forynju Aska lauk prófi með 92 stig, 1 einkunn og 1.sæti. Deildin óskar þeim til hamingju með flott sporapróf. Dómari: Þórhildur Bjartmarz Prófstjóri: Ingibjörg friðriksdóttir |
Fjórða Hlýðnipróf ársinns 2018Fjórða hlýðnipróf ársins var haldið á Snæfellsnesi þann 24.júní síðastliðinn. Tveir schäferhundar voru skráðir í próf. Þar af einn hundur í hlýðni 1 og einn hundur í hlýðni III. Báðir hundar luku prófi.
Hlýðni I: Forynju Aska m. 165,5 stig og 1.einkunn Hlýðni III: 1.sæti: OB-II OB-I Vonziu´s Asynja m. 200,5 stig og 3.einkunn Forynju Aska hefur lokið Hlýðni 1 þrisvar sinnum með 1.einkunn og bíður því staðfestingar á titlinum Íslenskur Hlýðni I meistari (OB-1). Deildin óskar eigendum þeirri til hamingju með árangurinn. Dómari: Þórhildur Bjartmarz Prófstjóri: Brynhildur Bjarnadóttir |
Þriðja Hlýðnipróf ársinns 2018Þriðja hlýðnipróf ársinns var haldið 10. maí síðastliðinn í reiðhöllinni Andvara. Tíu hundar voru skráðir í prófið og þar af þrír schäfer hundar, einn skráður í Brons próf og tveir i Hlýðni I, allir hundarnir luku prófi.
Brons : 1. sæti Gjósku Vænting með 104 stig Hlýðni I : 2. sæti Forynju Aska með 179 stig og 1.einkunn 6. sæti ISJCh Ice Tindra King með 166 stig og 1.einkunn ISJCh Ice Tindra King hefur lokið Hlýðni 1 þrisvar sinnum með 1.einkunn og bíður því staðfestingar á titlinum Íslenskur Hlýðni I meistari (OB-1). Deildin óskar eigendum þeirri til hamingju með árangurinn. Dómari - Björn Ólafsson Prófstjóri - Erla Heiðrún Beneditksdóttir Ritari - Marta Sólveig Björnsdóttir |
Annað Hlýðnipróf ársinns 2018
Annað hlýðnipróf ársinns 2018, á vegum Vinnuhundadeildar Hrfí,
var haldið 19.apríl síðast liðinn í reiðhöllini í Andvara. Fimm hundar voru skráðir í prófið og þar af tveir schäfer hundar. Tóku þeir báðir þátt í hlýðni 1 og náðu báðir prófi. 1.sæti ISJCh Ice Tindra King m. 176,5 stig og 1.einkunn 3.sæti RW-14 Gjósku Mylla m. 127,5 stig og 3.einkunn Óskar deildin eigendum innilega til hamingju með árangurinn Dómari: Þórhildur Bjartmarz Prófstjóri: Hildur Pálsdóttir Ritari: Stefanía H. Sigurðardóttir |
Fyrsta Hlýðnipróf Vinnuhundadeildarinnar 2018Fyrsta hlýðnipróf 2018 var haldið 25. mars síðastliðinn og voru þrír schäferhundar skráðir í prófið.
Tveir hundar voru skráðir í Hlýðni I og voru þeir báðir með 1.einkunn og Silfurmerki Hrfí. Einn hundur var skráður í Hlýðni III. Hlýðni I 1.sæti Forynju Aska m. 174 stig – Eigandi Hildur S. Pálsdóttir 2. Sæti ISJCh Ice Tindra King m. 161stig – Eigandi Katrín Jóna Jóhannsdóttir Hlýðni III 1. sæti OB-II OB-I Vonziu‘s Asynja m. 225 stig – Hildur S. Pálsdóttir Óskar deildin eigendum innilega til hamingju með árangurinn Dómari : Albert Steingrímsson Prófstjóri : Silja Unnarsdóttir Ritari : Stefanía H. Sigurðardóttir |