Schäferdeild hrfí
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir


Alþjóðleg ræktunarsýning HRFÍ helgina 28-29. ágúst

Að þessu sinni voru 34 Schäferhundur skráðir til leik. Dómarinn kom frá Belgíu og heitir Monique Van Brempt.

Byrjað var á því að dæma hvolpaflokk. Engir hvolpar á aldrinum 4-6 mánaða voru skráðir. Byrjað var því á 6-9 mánaða hvolpaflokki.
Hin 6 mánaða gamla Gjósku Mylla var valinn besti hvolpur tegundar og jafnframt besti hvolpur sýningar á sunnudeginum og er Arna Rúnarsdóttir eigandi hennar.
Annar besti hvolpur tegundar varð gotbróðir hennar, hann Gjósku Mikki-Refur og er Rósa Guðmundsdóttir eigandi hans

Besti hundur tegundar varð rakkinn Welincha´s Yasko og fékk hann sitt síðasta íslenska meistarastig. Þar sem hann hefur lokið kröfum um vinnupróf er hann orðinn Íslenskur meistari. Eigandi hans er Sirrý Halla Stefánsdóttir.
Yasko stóð sig vel í úrslitum sýningarinnar og varð í fyrsta sæti í tegundarhópi. Hann keppti því í úrslitum um besta hund sýningar og varð annar besti hundur sýningar! Frábær árangur hjá honum Yasko og óskum við Sirrý til hamingju með flottan árangur.

Annar besti hundur tegundar varð Gunnarsholts Trix en hún fékk sitt síðasta íslenska meistarastig. Er hún því orðin Íslenskur Sýningameistari. Eigandi hennar er Anna Francesca Rósudóttir.

Besta afkvæmahóp tegundar átti Welincha´s Yasko með afkvæmum sínum og varð sá hópur Besti afkvæmahópur dagsins. Eigandi hans er Sigríður Halla Stefánsdóttir

Besta ræktunarhóp tegundar átti Gunnarsholts ræktun og urðu þau í fjórða sæti um besta ræktunarhóp dagsins. Eigandi Gunnarsholts ræktunar er Hjördís Helga Ágústsdóttir.

Hægt er að skoða umsagnir allra hundanna og ýtarlegri úrslit tegundarinnar hér. Sýningarúrslit og umsagnir fyrri sýninga má finna undir hnappnum Sýningar.

Við viljum óska öllum innilega til hamingju með árangur helgarinnar og við hlökkum til að sjá ykkur á næstu sýningu.

Við viljum þakka Bendi ehf kærlega fyrir að hafa styrkt deildina svona rausnarlega á sýningunni þar sem þau gáfu afar veglega verðlaunagripi. Það eru forréttindi að fá stuðning frá svona frábæru fyrirtæki og Bendir ehf.
Bendir er með allar mögulegar hundavörur og hvetjum við alla til þess að kíkja við hjá þeim í Híðarsmára 13 í Kópavogi.
Picture
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir