Schäferdeild hrfí
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir

Alþjóðleg ræktunarsýning helgina 20.-21. nóvember 2010
    
Hægt er að skoða umsagnir allra hundanna og ýtarlegri úrslit tegundarinnar hér
  
Úrslit sýningarinnar:

Sýningin var án efa mjög eftirminnileg en af öllum þessum fjölda hunda voru aðeins 8 af þeim sem fengu excellent. Enginn rakki fékk excellent og voru það því tíkurnar sem stóðu upp úr hjá dómaranum.

Besti hundur tegundar var tíkin Kolgrímu Blaze Hólm en hún kom úr vinnuhundaflokki.
Frábær árangur þar á ferð hjá þessari gullfallegu tík sem hefur einnig lokið frábærum árangri í vinnuprófum.
Eigandi hennar og ræktandi er Sigríður Halla Stefánsdóttir.
Blaze endaði í fjórða sæti í stórum hópi fjár- og hjarðhunda (tegundahópi 1).
Víð óskum eiganda hennar innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!

Besti hvolpur tegundar í yngri flokki (4-6 mánaða) varð Kolgrímu Diva Hólm og varð hún þriðji besti hvolpur dagsins! Svo sannarlega frábær árangur þar hjá þessari lofandi tík. Eigandi hennar og ræktandi er Sigríður Halla Stefánsdóttir.

Besti hvolpur tegundar í eldri flokki (6-9 mánaða) varð Gunnarsholts Vanessa og endaði hún sem fjórði besti hvolpur dagsins! Glæsilegur árangur þar og verður gaman að sjá þessa fallegu tík í framtíðinni. Eigandi hennar og ræktandi er Hjördís Helga Ágústsdóttir.

Það er frábært þegar ungviðinu gengur svona vel í úrslitum sýningar þar sem það fær að spreyta sig í stóra hringnum. 

Kolgrímu ræktun í eigu Sigríðar Höllu Stefánsdóttur hélt sigurgöngu sinni áfram og varð besti ræktunarhópur tegundar og jafnframt besti ræktunarhópur dagsins.

Besti afkvæmahópur tegundar varð C.I.B. NUCH ISCH Rambo av Thorarinn með afkvæmum sínum og urðu þau annar besti afkvæmahópur dagsins. Eigandi hans er Sigríður Halla Stefánsdóttir.

Á síðustu sýningu hvers árs er haldin parakeppni þar sem tík og rakki af sömu tegund í eigu sama eiganda keppir um besta par dagsins.
Fallegu feðginin C.I.B. NUCH ISCH Rambo av Thorarinn og Kolgrímu Blaze Hólm urðu fjórða besta par sunnudagsins.

Við óskum öllum sigurvegurum innilega til hamingju og við hlökkum til að sjá vonandi sem flesta aftur á næstu sýningu!

Við viljum nota tækifærið og þakka básanefndinni og þeim sem sátu í Schäfer básnum á sýningunni og stóðu sig frábærlega vel að kynna þessa frábæru tegund sem Schäferinn er.

Einnig viljum við þakka Bendi ehf kærlega fyrir að hafa styrkt deildina svona rausnarlega á sýningunni þar sem þau gáfu afar veglega verðlaunagripi. Það eru forréttindi að fá stuðning frá svona frábæru fyrirtæki og Bendir ehf.
Bendir er með allar mögulegar hundavörur og hvetjum við alla til þess að kíkja við hjá þeim í Híðarsmára 13 í Kópavogi.
Picture
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir