Stjórnarfundur 27. okt.
Mættir: Guðmundur, Haukur, Íris, Rúna.
Íris tilkynnir stjórn afsögn Þórðar en afsögn hans barst símleiðis viku fyrr.
Fundargerð síðasta fundar lesin.
Rætt var um dómaraval á deildarsýninguna. Tillaga var sett fram um að hafa samband við NKK og fá meðmæli fyrir dómara. Tillaga sett fram um að fá kvendómara. Tillaga sett fram um að fá dómara sem væri ekki frá Norðurlöndunum.
Rætt um mögulegar dagsetningar fyrir deildarsýninguna. Reynt var að taka saman dagsetningar sem væru mitt á milli sýninga á vegum HRFÍ og voru það sem dæmi um miðjan mánuð í apríl, júní, ágúst og október.
Umræður fórum fram um það hvort halda ætti deildarsýningu úti eða inni. Stjórn sammála um að óþarfi sé að leggja áherslu á að hafa útisýningu þar sem HRFÍ verði aftur með tvöfalda útisýningu í júlí á næsta ári. Tillaga sett fram um að skoða reiðhöll Andvara / Kjóavelli, Rúna tekur það að sér.
Tillaga sett fram um að fá dómara sem getur dæmt ræktunardóm (Kkl1). Samþykkt að skoða það nánar, Íris og Guðmundur taka það að sér.
Tillaga sett fram um að vera með keppni ungra sýnenda í tengslum við deildarsýninguna, t.d. á föstudagskvöldinu. Hægt væri að fá íslenskan dómaranema til þess að dæma og yrði þetta n.k. fjáröflun fyrir deildina.
Rætt var um fjárhagsáætlun fyrir deildarsýninguna og minnt á umsýslugjald HRFÍ fyrir hvern hund. Tillaga sett fram um að fella niður 3. hunds afslátt fyrir alla hunda eftir 3. hund, þ.e. að afsláttur sé eingöngu fyrir 3. hundinn og fullt verð fyrir þá sem koma á eftir. Ef veittur er 50% afsláttur fyrir marga hunda og umsýslugjald 670 og kr tekið fyrir hvern hund (ásamt vsk.?) þá er mjög lítið sem situr eftir af skráningargjaldinu.
Tillaga sett fram um að fá styrktaraðila deildarinnar til þess að styrkja okkur fyrir flugmiða fyrir dómarann.
Rætt um umsóknarfrest fyrir deildarsýningu. Í reglum hjá HRFÍ kemur fram að sækja þarf um leyfi í síðasta lagi 6 mánuðum fyrir sýningu. Minnt á að ef stjórn hyggur á deildarsýningu í júní þarf að sækja um fyrir 1. des. en fyrir 1. mars ef halda á sýningu í október.
Rætt var um jólakaffi deildarinnar. Stefnum á að halda það helgina 6. – 7. des. Lagt til að farið sé að huga að styrktaraðilum fyrir gjöfum.
Tillaga sett fram um að skipuleggja nokkrar göngur fram í tímann. Helgina 22. – 23. nóv. verður ganga í Grafarvogi. Fimmtudaginn 18. des verður jólaganga í Hafnarfirði. Helgina 10. – 11. jan verður nýjársganga, staðsetning óákveðin. Viðburðir sem auglýstir verða eru því þrjár göngur, jólakaffi, feb. sýning og síðasti skráningardagur, sýningaþjálfun fyrir feb. sýningu.
Íris og Rúna sóttu fulltrúaráðsfund HRFÍ fyrir hönd stjórnar. Athuga með að lesa yfir fundargerð fundarins og búa til kynningu fyrir deildarmeðlimi.
f.h. stjórnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, formaður