Stjórnarfundur 22.03.2010 klukkan 18.30
- Fyrsti stjórnarfundur eftir ársfund
Fundur haldinn á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15.
Mættar: Arna, Anna, Dótla, Eva Björk og Eva K.
Rætt var um að reyna að sækja um deildarsýningu og hugmyndir að fjáröflun sérstaklega ræddar.
Ákveðið var lén fyrir deildina og það verður www.schaferdeildin.is.
Umræður voru um heimasíðuna og útlit og annað og teknar verði ákvarðanir í sameiningu um hvað verður inn á síðunni.
Tekin ákvörðun um að senda bréf til stjórnar HRFÍ um að hundar með HD niðurstöðu D og E verði settir í ræktunarbann. Einnig var rætt um að senda inn beiðni um að olnbogamyndun verði skylda fyrir undaneldisdýr.
Ragnhildur Gísladóttir ætlar að gera bæklinga fyrir deildina.
Talað um að safna saman myndum frá öllum fyrir síðuna og básinn.
Tekin ákvörðum um að hafa stóran kassa undir dótið sem er í básnum svo að það fari ekki á flakk og sé allt á sama stað.
Rætt um að láta gera lógó fyrir deildina.
Kynningar:
Næringarfyrirlestur, Eva B. kom með hugmyndina og ætlar að athuga þetta.
Anna kom með hugmynd að tala við íþróttadeildina og halda opna æfingu/kynningu fyrir Schäferdeildina í hundafimi.
Rætt var um að hafa göngur fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Uppástunga frá Önnu um að hafa grill í Sólheimakoti í sumar.
Skipt var niður verkum milli stjórnarmeðlima. Arna er formaður, Anna Francesca varaformaður, Dótla Elín gjaldkeri, Eva K. ritari og Eva B. meðstjórnandi.
Fundi slitið 19.30
Eva Kristinsdóttir ritar