Stjórnarfundur 18.10.2010
Mættar eru: Anna Francesca, Dótla Elín, Eva Björk.
Gengið var frá umsókn til Vinnuhundadeildar vegna vinnuprófa á vegum Schäferdeildarinnar fyrir árið 2011.
Farið var yfir tölvupósta sem deildinni hafa borist og skiptir stjórnin með sér verkum með að svara þeim póstum sem þurfti að bera undir stjórn.
Klárað var að sækja um kennitölu fyrir deildina. Það vantaði upplýsingar með síðustu umsókn.
Vel gengur að fá auglýsendur fyrir dagatal Schäferdeildarinnar sem fer í prentun á næstu vikum.
Ekkert svar hefur fengist frá FCI varðandi hvort eigi að viðurkenna longhair Schäfer á komandi ári. Ýtrekun verður send frá skrifstofu Hundaræktarfélagsins.
Sýningarþjálfun verður haldin fyrir nóvember sýningu. Tillaga um sunnudagana 7 og 14 nóvember.
Bendir ehf gefur verðlaunagripi fyrir nóvember sýninguna. Ómetanlegt að hafa svona frábæra styrktaraðila að deildinni.
Það þarf að fá fólk til að starfa í básanefnd deildarinnar sem sér um að undirbúa básinn í samvinnu við stjórnina.
Breyta þarf skiltinu með nafni deildarinnar fyrir bás næstkomandi sýningar.
Jólaglögg verður haldið 11. desember. Þar verða stigahæðstu Schäfer hundarnir heiðraðir, bæði fyrir árangur í vinnu og á sýningum og fleiri viðurkenningar veittar.
Fyrir hönd stjórnar,
Dótla Elín