Schäferdeild hrfí
  • Fréttir
    • Fréttir 2025
    • Fréttir 2024
    • Fréttir 2023
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
    • 2024
    • 2025
    • 2026
  • Myndir


Mjaðmalos - Hip dysplasia - HD

Mjaðmalos (HD) er þróunargalli í mjaðmaliðum hunda og getur verið í öðrum eða báðum liðum.
Gallinn lýsir sér þannig að mjaðmaskál og lærleggur passar ekki hvort öðru og kölkun myndast i kring um liðinn. Einnig getur orðið óeðlilegt slit inn í liðnum sem áfram getur orðið til þess að þrýstingsskaðarmyndast á hlut liðarins.
Hlutar af liðbrjóskinu eyðast og beinvefur vex í staðinn í tilraun líkamans til að lagfæra skaða sem orðið hefur.
Þróun mjaðmaloss í hundum er blanda af arfgengni og umhverfisþáttum.

Mjaðmalos getur þróast sem afleiðing vegna misræmis í styrk mjúkvefja sem styður mjaðmaliðinn og líffræðilegra þátta tengdum þyngdaraukningu.
Þetta verður til þess að samsvörun milli mjaðmaskálar og lærleggs tapast.
Afleiðingin verður sú að mjaðmaskálin grynnist, lærleggshöfuð afmyndast og kölkun myndast.

Næring er sá umhverfisþáttur sem hefur mest áhrif á þróun vöðva og beina í hundum.
Vöxtur hunda og þá sérstaklega af stærri tegundum er hraður miða við mörg önnur dýr.
Hundar vaxa mjög hratt á stuttum tíma sem gerir það að verkum að bein þeirra eru mjög viðkvæm fyrir skemmdum ef næring á þessu mikilvæga tímabili er ekki rétt.

Mikilvægustu næringarþættirnir eru
  • Orka: Forðast skal offóðrun
  • D vítamín: Auka inntaka af D vítamíni er óheppileg þar sem hún eykur upptöku kalks.
  • Kalk: Of mikið kalk er einn af stærstu áhættuþáttum beinsjúkdóma í uppvexti.

Öðru hvoru koma kröftug mjaðmalos tilfelli á óvart einstaka gotum, jafnvel frá hundum sem hafa áður gefið frá sér mjaðmalos frí got.
Sjálfsagt getur umhverfisþátturinn spilað stórt hlutverk þótt hvolparnir hafi allir fengið sömu byrjun í  lífinu. 
Reynslan sýnir að það er mikilvægur genatískur þáttur með í myndinni.
Ekki eingöngu fjöldi HD-gena en einnig samspilið milli genanna hefur þýðingu.
Mjaðmalos-genin hverfa ekki þótt hægt sé að þynna þau út. Þau þéttast auðveldlega aftur og geta valdið vandamálum í seinni kynslóðum.
(Lauslega þýtt af heimasíðu www.avl.no)
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Fréttir
    • Fréttir 2025
    • Fréttir 2024
    • Fréttir 2023
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
    • 2024
    • 2025
    • 2026
  • Myndir