Schäferdeild hrfí
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir

Meistaranafnbót

Íslenskur meistari (ISCh)
Schäfer hundur þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að hljóta titilinn íslenskur meistari (ISCh):
    a. Að hafa hlotið þrjú meistarastig á sýningum HRFÍ, hjá þremur mismunandi dómurum, þar af eitt stig eftir 24 mánaða aldur (24 mán.+1 dagur).
    b. Hundur þarf að vera röntgenmyndaður m.t.t. mjaðmaloss (HD) og olnbogaloss (AD)* og niðurstöður þurfa að liggja fyrir. (*Gildir fyrir hunda fædda eftir 1. janúar 2005)
    c. Hundur þarf að hafa varanlegt auðkenni (örmerki/húðflúr).
    d. Hundur þarf að hafa staðist vinnueiginleikapróf sem hér segir:
        I. Skapgerðarmat. (Fellt niður frá og með 01.04.2011)
        II. Sporleitarpróf viðurkennt af HRFÍ eftir 9 mánaða aldur.
        III. Bronsmerki í hlýðni. (Gildir fyrir hunda fædda eftir 1. janúar 2004).
    e. Innfluttur hundur með IPOI próf (Schutzhund, SCHH1) jafngildir lið II og III.
    f. Hundur sem hefur staðist B-próf frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu; Björgunarhundasveit Íslands eða Leitarhundum SL, jafngildir lið II.
    g. Hundur sem hefur staðist A-próf frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu; Björgunarhundasveit Íslands eða Leitarhundum SL, jafngildir lið II og III.

(Sérákvæði um meistarareglur fyrir vinnuhunda, grein nr. 71. Ákvæði fyrir schäfer hund (166) í tegundarhópi 1.)


Alþjóðlegur meistari (C.I.B.) 
Til að eiga kost á að sækja um C.I.B. (Alþjóðlegur fegurðarmeistari, International Beauty Champion), þurfa hundar að vera Íslenskir meistarar og hafa hlotið fjögur alþjóðleg meistarastig (CACIB) frá þremur dómurum sem koma frá a.m.k. þremur mismunandi löndum.

Íslenskur sýningameistari (ISSCH)
Til að hundur geti orðið Íslenskur sýningameistari (ISSCH) verður hundur að fá þrjú stig til meistara á þremur ræktunarsýningum HRFÍ, engin krafa er um vinnupróf fyrir þennan titil.

Íslenskur ungliðameistari (ISJCh)
Til að hundur geti orðið Íslenskur ungliðameistari (ISJCh) þarf hundur að fá tvö ungliðastig frá tveimur mismunandi dómurum. 

Íslenskur öldungameistari (ISVetCh)
​Til að hundur geti orðið íslenskur öldungameistari (ISVetCh) þarf hundur að fá þrjú öldungastig frá þremur mismunandi dómurum.

Norðurlandameistaratitill (NordUCh)
Til að hundur geti fengið Norðurlandameistaranafnbót (NordUCh) þarf hann að hafa
hlotið meistaranafnbót hjá þremur hundaræktarfélögum á Norðurlöndum (NKU).
Eigandi
getur sótt um þennan titil á þar til gerðu eyðublaði á skrifstofu HRFÍ. Með umsókninni
skulu fylgja þau gögn sem sanna að hundurinn uppfylli þær kröfur sem gerðar eru hjá
Hundaræktarfélögunum á Norðurlöndum (FCI). Veiting á þessum titli er alfarið háð
samþykki viðkomandi Hundaræktarfélaga.


Ath. eigandi þarf að sækja um alla titla á þar til gerðu eyðublaði hjá HRFÍ hér.
(Sýningarreglur fyrir hundasýningar HRFÍ og sérdeilda þess.)  

Aðrir titlar

Íslenskur hlýðnimeistari (ISObCh)
Hundur þarf að hafa lokið 1.einkunn í Hlýðni- I, -II, -III og fá 1.einkunn a.m.k þrisvar sinnum í hlýðni Elite.
 
Hlýðni I:  OB I – hundur þarf að hafa hlotið þrisvar sinnum 1. einkunn í hlýðni I, hjá minnst tveimur dómurum
Hlýðni II: OB II – Hundur þarf að hafa hlotið þrisvar sinnum 1. einkunn í hlýðni II, hjá minnst tveimur dómurum.
Hlýðni III: OB III – Hundur þarf að hafa hlotið þrisvar sinnum 1. einkunn í hlýðni III, hjá minnst tveimur dómurum.
Hlýðni Elite:  OBelite – Hundur þarf að hafa hlotið þrisvar sinnum 1. einkunn í hlýðni Elite hjá minnst tveimur dómurum.

Íslenskur sporameistari (ISTrCh) 
hundur þarf að hafa lokið 1. einkunn í spori I,II og III
1. einkunn í spori I, II og III eru  90. stig til 100. stig

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Fréttir
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2012
    • 2013
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
  • Myndir