Stjórnarfundur 21. júlí
Mættir: Íris, Eva, Sturla, Kata.
Fundur settur kl 19.
Stjórn barst bréf á dögunum sem tekið var fyrir og rætt.
Umræða varðandi endurmat á sýningunni:
- Opinn dómur tók lengri tíma en gert var ráð fyrir. Miðað var við 3-4 mín á hund (er 4 mín á sýningum HRFÍ en við tókum úrslitin eftir á, þannig að við gerðum ráð fyrir styttri tíma á hund) en líklega má búast við tvöfalt lengri tíma þegar er opinn dómur.
- Sýningin var frá kl. 10-16 og ekkert hlé var gert. Sumir sýnendur voru ósáttir við að hléið var fellt út þar sem ekki gafst neinn tími til þess að hlaupa frá.
- Það hefði verið gott að taka upp alla sýninguna eins og stefnan var en því miður var ekki nægilegt minni á myndavélinni svo aðeins er til upptaka af úrslitum.
- Dómarinn var mjög ánægður með dvölina og sýninguna.
Stjórn fékk ábendingu varðandi gamlar ljósmyndir og videoupptökur af sýningum HRFÍ. Stefnum á að sýna efnið á deildarfundi eða setja á deildarsíðuna.
Rætt um þakkarbréf eða frétt þar sem styrktaraðilum og fleirum er þakkað fyrir aðstoðina. Íris setur saman og birtir á deildarsíðunni. Sýningaúrslit verða sett inn fljótlega, Kata tekur það að sér. Eva fer með sýningagögnin niður á skrifstofu.
Stjórn hefur mikinn áhuga á að fá björgunarsveitarpróf metin sem vinnupróf hjá HRFÍ. Einnig ætlar stjórn að vinna að umsókn í Alþjóðlega Schäferklúbbinn.
Sara sem er Schäfereigandi í Svíþjóð keppir á heimsmeistaramóti þar í landi fyrir hönd Svíþjóðar. Mjög flottur árangur, ætlum að athuga með viðtal og/eða video og setja á deildarsíðuna.
Formaður stjórnar segir frá því að þónokkur eftirspurn er eftir hvolpum, fólk hringir og óskar eftir upplýsingum um væntanleg got. Einnig hafa eigendur hunda hringt og sent póst og óskað eftir upplýsingum og ráðum varðandi paranir.
Í samfélaginu er umræða um Ticks en tilfellum hefur fjölgað undanfarið. Munum setja inn auglýsingu.
Stjórn vill kanna hver ábyrgð HRFÍ er varðandi aðalstarfsfólk sýninga. Tveir mikilvægir aðilar afboðuðu með stuttum fyrirvara. Stjórn velti upp ýmsum spurningum svo sem hver beri ábyrgð og hvað getur stjórn deildarinnar gert til að koma í veg fyrir slíkt. Hugsanlega gæti viðkomandi starfsmaður fundið staðgengil fyrir sig.
Þurfum að uppfæra stigahæstu hunda/ræktendur deildarinnar. Kata sér um það.
Stjórn vann drög að skýrslu um sýninguna, einskonar endurmat, sem verður birt að hluta eða í heild sinni seinna.
Fundi slitið kl 22:00.
Fyrir hönd stjórnar,
Íris Hlín Bjarnadóttir, ritari