_Stjórnarfundur 5. jan. 2012
Fundur hefst kl. 20:30
Mættir: Íris, Kata, Eva, Sturla
Enn vantar hunda í gagnagrunninn og eru það hundar sem við höfum engar upplýsingar um. Þurfum að finna aftur póstinn sem sendur var til HRFÍ í haust yfir þá hunda sem vantar, yfirfara listann og senda aftur.
ADHD listinn. Búið er að uppfæra niðurstöður frá upphafi og til ársins 2005. Listinn verður birtur þegar búið er að uppfæra allar niðurstöður. Eva er með niðurstöður frá 2005-2011, kemur þeim til Kötu sem heldur áfram að uppfæra.
Formaður deildarinnar fékk símtal nýlega varðandi fyrirlestur um smalaeðlispróf. Maðurinn var beðinn um að senda skriflega beiðni á stjórnina og verður honum svarað þegar fyrirspurn berst. Stjórn er ekki kunnugt um áhuga deildarmeðlima á smalaeðlisprófi en mun kanna ef ástæða þykir til. Fjár- og hjarðhundadeild hefur umsjón með slíkum prófum.
Stjórn hefur fregnir af því að Unnar hjá Dobermann Ísland ætli að taka saman efni um vinnuhundategundir til þess að viðhalda jákvæðri ímynd tegundanna. Sturla tekur að sér að taka saman efni um Schäferhunda.
Stjórn ræddi hugmynd sem kom upp en það var að halda umhverfisþjálfunargöngur og jafnvel hitting sem væri sérstaklega hugsaður fyrir hvolpa og umhverfisþjálfun fyrir þá. Einnig hefur stjórn hug á að bjóða einhvern tímann upp á taumlausa hundagöngu.
Snúinn magi (Bloat) er algengt vandamál hjá Schäfer. Ætlum að taka saman efni um það, einkenni ofl. og setja á heimasíðuna.
Farið var yfir punkta frá síðasta fundi og var flestu lokið.
Stjórn vill bæta við fræðsluefni á heimasíðuna. Stefnum á að tala við Söru sem býr erlendis og fá punkta frá henni varðandi mjaðmamyndatöku. Áttum eftir að athuga hvort Sara hefði farið á heimsmeistaramótið og birta árangur hennar ef hún tók þátt.
Önnur mál sem einnig eru í vinnslu: Eigum eftir að kanna verð á prentun fyrir fána og upplýsingaplaggati. Stjórn hefur áhuga á að kanna reglur FCI um notkun rakka í ræktun, byrjum á því að senda fyrirspurn til HRFÍ. Stjórn deildarinnar hefur hug á leggja til reglubreytingu en það er að HRFÍ meti vinnu björgunarsveitahunda til jafns við aðra vinnu innan HRFÍ. Þurfum að afla okkur frekari upplýsinga og semja bréf til HRFÍ.
Næstu verkefni er meðal annars að fá fólk til þess að sjá um sýningaþjálfun og sitja á tegundabás á næstu sýningu.
Fundi slitið kl 23:30
Fyrir hönd stjórnar,
Íris Hlín Bjarnadóttir, ritari