Stjórnarfundur 20. feb. 2012
Mættir: Íris, Kata, Sturla á Skype
Bókhaldið: Sturla er ekki búinn með fjárhagsskýrsluna. Þarf að laga nokkra hluti áður. Peninga vantar frá Evu fyrir sýningaþjálfun nóv sýningar og við eigum inni 12 þús kr. frá HRFÍ. Staða reiknings miðað við að hafa fengið útistandandi skuldir er um 70 þús. kr.
Sturla ætlar að hafa samband við Söru til þess að fá fræðsluefni sem við getum sett inn á síðuna.
Longhair: Bréf samið til þess að senda á helstu klúbba. Viljum skoða reglur erlendis áður en við semjum reglur fyrir Ísland. Komumst að því að FCI hefur nýlega leyft pörun á milli síðhærðra og stutthærðra. Bréf komið í drög á gmaili. Sturla eða Kata munu þýða yfir á ensku.
Munum funda einu sinni aftur fyrir aðalfundinn. Næsti fundur verður í vikunni 5. - 9. mars.
Búið er að semja drög að umsókn um breytingu á lögum vegna björgunarsveitahunda. Ætlum að skoða betur reglur klúbba á norðurlöndunum. Sturla ætlar að þýða sænsku reglurnar. Okkur vantar að vita hvað VPG 1 og BSL 3 þýðir. Finna reglur HRFÍ um kröfur til þess að fá að keppa í vinnuhundaflokki. Umsóknin er/verður sett fram á þann hátt að fyrst kemur tillaga að breytingu á reglugerð, svo gamla reglan, tillaga okkar að nýrri reglu, rökstuðningur, viðmiðun við reglur erlendis og síðast fylgiskjöl.
Fulltrúaráðsfundur fór fram 17. feb. Enginn stjórnarmaður komst á fundinn en Kata fékk upplýsingar frá aðila sem sótti fundinn. Hún kynnti fyrir okkur fundarefni. Aðallega var fjallað um fyrirkomulag á næstu sýningu vegna nýs sýningasvæðis. Helstu breytingar eru m.a. þær að HRFÍ fær húsnæðið frítt og engir tegundabásar verða á meðan sýningin verður haldin í þessu nýja húsnæði. Stjórn Schäferdeildarinnar hafði tvö mál til þess að bera upp á fundinum og fannst stjórnarmeðlimum miður að hafa misst af þessu tækifæri. Annað af því efni var fyrirspurn um nýju 5% regluna.
Rætt lítillega um Drop box. Meðlimir sammála um að það sé eitthvað sem stjórn Schäferdeildarinnar gæti nýtt sér.
Sýningaþjálfunarpeningar. Skipulagi á fjármálum ábótavant, bæði á skráningu þess sem mættu sem og að peningar skili sér inn. Stjórn sammála um að það þurfi að halda betra yfirlit, vera með litla bók sérstaklega undir skráningar, skrá hverjir mæta, hverjir borga og einhver þarf að sjá um að rukka þá sem ekki greiða fyrir, t.d. gjaldkeri. Hægt að senda póst með reikningsnúmeri til áminningar.
Rakkalisti: Hugmynd frá deildarmeðlim. Rætt um gagnsemi slíks lista og hvort birta eigi slíkan lista á heimasíðu deildarinnar eða hafa listann aðeins til taks ef tíkareigendur óska eftir rökkum. Stjórn sammála um að fara þá eftir ræktunarreglum deildarinnar og aðeins taka fram þá einstaklinga sem standast kröfur deildarinnar.
Fengum póst frá ritnefnd Sáms. Óskað er eftir deildarfréttum fyrir vorblað Sáms, síðasti skiladagur er 18. mars. Einnig er óskað eftir myndum af nýjum meisturum. Tekin var ákvörðun um hvaða mynd muni fylgja deildarfréttunum.
Farið yfir skjal þar sem hlutverk og verkreglur stjórnar Schäferdeildarinnar eru ræddar. Stjórn sammála um að setja saman nokkra punkta til þess að birta á heimasíðu deildarinnar, varðandi það efni.
Bendir. Stjórn sammála um að þiggja áfram styrki verslunarinnar eins og okkur var boðið. Einnig var stjórn þakklát fyrir bikara og verðlaunagripi síðasta árs, en Bendir sá alfarið um þann hlut fyrir allar sýningar ársins.
Fyrirtækjapósturinn fannst eftir nokkra leit. Munum senda á nokkur fyrirtæki og bjóða þeim auglýsingarpláss á heimasíðu deildarinnar.
SV: Höfum áhuga á að sækja um en vegna anna munum við geyma það mál þar til síðar.
Uppfærslur á heimasíðunni: Næsta frétt á heimasíðunni verður að auglýsa ljósmyndakeppni Sáms. Okkur langar til að koma því á framfæri til meðlima fljótlega hvað hefur verið uppfært á heimasíðunni, svo sem að bæst hefur við tengill inn á síðustu deildarfréttir, tengill kominn inn á nýjan standard tegundarinnar þar sem búið er að bæta við longhair, nýr flipi sem heitir lög og reglur, got fædd 2005-2011 komin inn á gagnagrunn foreldra. Ræktunarflipinn: Taka fram að stjórn Schäferdeildarinnar getur beint tíkareigendum á rakka sem standast kröfur deildarinnar um undaneldi.
Erum með lista yfir örfáa hunda sem enn vantar inn í gagnagrunninn. Íris mun senda þann lista á Dótlu.
Bréf barst frá deildarmeðlim. Svar útbúið sem verður sent til viðkomandi.
Muna að senda auglýsingu á HRFÍ, til þess að auglýsa aðalfundinn.
F.h. stjórnar
Íris