Stjórnarfundur 29. maí
mættar eru Rúna, Arna, Svava og Rut
Rætt var um næstu göngu og ákveðið var að Svava tæki hana að sér, verður ca í lok júní 26. að öllum líkindum. Svava kemur með uppástungur og við munum kjósa um leið á facebook.
Skipulagðar voru 6 sýningarþjálfanir fyrir júlí sýningu HRFÍ á þriðjudags og fimmtudagskvöldum í júlí kl 20:00. Rúna mun sjá um 5 af þeim en Arna þá fyrstu sem verður 5. júlí. Auka sýningarþjálfun verður á Sumarfögnuði deildarinnar sunnudagskvöldið 17. júlí í heiðmörk.
Rætt var um athafnir eins stjórnarmanns á heimasíðu deildarinnar og var stjórn sammála um að breyta þyrfti verklagi viðkomandi stjórnarmanns.
Samræður hafa orðið um að halda sameginlega sýningu með Fjár- og Hjarðhundadeild. Stefnum við á að fara á fund með deildinni á næstunni og ræða framhaldið. Ef ekki verður að því þá samþykkti stjórn það að skoða það að halda sýningu fyrir tegundarhóp 1 sjálf.
Rúna mun halda áfram að sjá um samskipti við Albert hjá Petmark og panta gripi fyrir sýninguna.
Mikil ánægja var með ljósmyndara frá síðustu sýningu og stefnir stjórn að því að fá einhvern í það að mynda tegundina á sýningum ársins.
Stjórn samþykkti að bæta við rakkalista á heimasíðuna vegna mikilla fyrirspurna til formanns og fyrverandi formanns. Einróma samþykki var við því að til þess að hundur komist á listann verði hann að vera myndaður og ræktunarhæfur, einnig verður hann að hafa hlotið excellent og meistaraefni á sýningum HRFÍ. Fólk verður sjálft að senda inn beiðni um að komast á listann, með meðfylgjandi mynd og upplýsingar um hundinn.
Rætt var um að taka upp hlýðnikvöldin aftur í september.
fundi slitið 20:30