_Stjórnarfundur 12. okt. 2011
Mættir: Íris, Kata, Eva og Sturla á Skype
Fundur settur kl 20:30
Fjár- og hjarðhundadeild óskaði eftir að fá að taka þátt í sérsýningu Schäferdeildarinnar eða fá að nota dómarann á sunnudeginum. Stjórn Schäferdeildarinnar vill opinbera samskiptin sem fram fóru á milli deildanna. Sagt var frá beiðni Fjár- og hjarðhundadeildar í fundargerð Schäferdeildarinnar og mun tengil á bréfin verða bætt við. Íris tekur það að sér.
Mikið hefur verið uppfært á síðunni undanfarið. Gaman væri að taka saman hvað búið er að uppfæra og birta yfirlit yfir það á deildarsíðunni. Íris og Kata taka það að sér.
Stjórn deildarinnar hefur ekki sett fram sérstakar vinnureglur varðandi efni sem fer inn á síðuna. Þurfum að setja slíkt saman og koma framfæri, t.d. varðandi viðbætur á upplýsingum í gagnagrunninn. Eins og staðan er núna þá setjum við inn árangur eftir hverja sýningu hjá hundum sem urðu BHT 1 og 2 og árangur úr hvolpaflokki. Fólk þarf að senda okkur aðrar upplýsingar, hvort sem það varðar vinnu- eða sýningarárangur. Einnig þarf fólk að senda sjálft allan eldri árangur sem vantar.
Stjórn deildarinnar barst nýlega bréf frá konu sem var í vandræðum með feld hjá tíkinni sinni. Stjórnin ræddi punkta og á eftir að setja saman bréf til þess að svara henni.
Á heimasíðuna vantar frekari upplýsingar fyrir fólk t.d. varðandi ræktun og að hverju þarf að huga áður en hvolpur kemur inn á heimilið. Skoða efni sem er inn á HRFÍ og setja tengil hjá okkur yfir á efnið. Einnig mætti bæta við efni um mjaðma- og olnbogamyndatökur, svo sem hvenær er æskilegt að mynda hunda og hvers vegna. Hafa samband við dýralækna og spyrjast fyrir um efnið.
Mjaðma- og olnbogalisti er atriði sem stjórn hefur mikinn áhuga á að koma á framfæri. Uppköst eru til að listanum en stjórn hefur ýmsar hugmyndir um það hvernig best sé að haga uppsetningu á listanum. Stefnan er að „tagga“ alla hunda á listanum inn í gagnagrunnin en þá er hægt að rekja allt á bakvið, foreldra, afkvæmi oþh. Nýlegar niðurstöður vantar inn á listann.
Þar sem mikið af efni er nú komið inn á heimasíðuna og gagnagrunnur kominn fyrir alla Schäferhunda frá upphafi þá teljum við mjög mikilvægt að setja leitartakka inn á heimasíðuna. Þurfum að kynna okkur slíkt og leita eftir aðstoð við það.
Jólagleðin okkar verður laugardaginn 17. des kl 14. Þurfum að hafa samband við HRFÍ og taka frá skrifstofuna.
Að ýmsu þarf að huga fyrir jólagleðina og heiðrun hundanna. Okkur vantar farandskjöld stigahæsta hunds á sýningum til baka. Einn hundur sem heiðra átti er látinn, hafa samband við eiganda og fá leyfi til þess að heiðra viðkomandi hund. Okkur vantar verðlaun fyrir sæti sem heiðra á fyrir svo sem stigahæsta rakka, stigahæstu tík og stigahæsta ræktanda. Athuga með verðlaunaskildi. Einnig voru hundar í spori, hlýðni brons og hlýðni. Ræddar voru hugmyndir að mögulegum gjöfum og styrktaraðilum.
Stjórn Schäferdeildarinnar vill þakka sérstökum aðilum fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu deildarinnar. Við viljum þakka versluninni Bendi og Rakel ljósmyndara, þurfum að finna gjafir fyrir þessa tvo aðila.
Okkur langar til þess að eiga fána með merki deildarinnar, hægt að bera hann í Laugavegsgöngu HRFÍ og hafa á tegundabás. Fá tilboð hjá merkifyrirtækjum. Einnig viljum við láta útbúa tjald/plaggat með upplýsingum um tegundina. Íris og Kata taka að sér.
Settum niður dagsetningu á næstu deildargöngu. Hún verður laugardaginn 26. nóv.
Af og til hafa verið getgátur um það hversu mikið megi nota hunda í undaneldi. Stjórn vill kynna sér reglur um það hversu mikið má nota einstaka rakka. Það sama á við um tíkur.
Umræður um það hvenær halda eigi aðalfund. Þá skal halda í mars ár hvert. Dagsetning verður ákveðin síðar.
Stjórn hefur áhuga á að hafa samband við aðrar deildir varðandi samvinnu um sýningarþjálfun. Einnig vantar okkur aðila til þess að sjá um þjálfunina fyrir hönd deildarinnar.
Brátt líður að nóvembersýningu HRFÍ. Munum auglýsa síðasta skráningardag á sýninguna og óska eftir fólki til þess að vera á tegundarbásnum.
Stjórn ræddi fyrirhugaða umsókn er varðar breytingu á kröfum til meistara. Stjórn leggur til að björgunarsveitapróf hunda verði metin til jafns við aðra vinnu sem stunduð er á vegum HRFÍ, svo sem að B próf verði metið til jafns við sporapróf, A próf verði metið til jafns við bæði spor og hlýðni. Þurfum að kanna hvernig þessu er háttað á norðurlöndunum. Sturla kannar málið í Svíþjóð.
Nýlega varð sú breyting á hérlendis að vinnupróf koma inn sem nafnbót. Sturla mun kanna hvernig það er í Svíþjóð og öðrum norðurlöndum.
Rætt var lítillega um skapgerðarmat. Æskilegur aldur til þess að fara í skapgerðarmat er 12-18 mánaða, en ekki skilyrði. Koma því á framfæri á heimasíðu deildarinnar.
Rætt var um uppsetningu á yfirliti yfir meistarana. Það væri gaman að fá myndir af þeim hundum sem vantar, þurfum að senda bréf á ræktendur/eigendur hundanna og óska eftir myndum af þeim sem vantar.
Einnig þarf að yfirfara upplýsingar um starfandi björgunarsveitarteymi, aðgreina starfandi og þá sem eru hættir störfum.
Stjórn Schäferdeildarinnar hefur mikinn áhuga á að sækja um aðild að SV. Þurfum að kynna okkur það ferli og sækja um.
Farið var yfir hvaða gögn hafa nýlega borist deildinni svo sem nýjar myndaniðurstöður, breytingar í ættbók, nýskráð got o.s.frv.
Við eigum ennþá inneignarnótu eftir sérsýninguna í sumar. Gott væri að nota hana fyrir jólaglöggið. Nótan er í möppu hjá Evu.
Eva Björk fór fyrir hönd deildarinnar á fulltrúaráðsfund. Hún kynnti umræðuefni fundarins fyrir okkur. Þar var meðal annars rætt um fyrir hugaða Laugavegsgöngu , aðventumat og skemmtun, umsóknir um sérsýningar á næsta ári og framkvæmdastjórastöðu HRFÍ.
Fundi slitið kl 23:45
F.h. stjórnar Schäferdeildarinnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, ritari