Stjórnarfundur 9. Mars 2016
mættir voru Arna Rúnarsdóttir, Kristjana Guðrún, Rúna Helgadóttir, Svava Ósk og Unnur Rut Rósinkransdóttir.
Að loknum aðalfundi hélt ný stjórn fyrsta fund tímabilsins. Kristjana Guðrún og Rúna Helgadóttir áttu sæti áfram í stjórn í eitt ár til viðbótar.
Kosnar inn til tveggja ára voru Unnur Rut Rósinkransdóttir og Svava Ósk. Til eins árs var Arna Rúnarsdóttir kosin inn.
Fyrsta mál á dagskrá var að skipta niður verkum stjórnar og var skiptingin svona. Formaður var Rúna Helgadóttir, Kristjana Guðrún varaformaður, Unnur Rut var kosin gjaldkjéri, Svava Ósk ritari og Arna meðstjórnandi. Ákveðið var að formaður og gjaldkeri færu með fjárumboð og hefðu aðgang að heimabanka deildarinnar eins og í fyrri stjórn.
Þá var farið léttilega yfir dagskrá ársins og ákveðið að við myndum halda nokkrar göngur yfir árið, sýningarþjálfanir fyrir allar sýningar ársins, skoða möguleikann á hlýðnikvöldum og deildarsýningu. Skipti stjórnin aðeins með sér verkum en ákveðið var að hafa dagskrá og verkaskiptingu opna.
Fundi slitið 21:00