Fulltrúaráðsfundur 05.05.2010
- 1-2 meðlimir úr stjórn hverrar ræktunardeildar mæta á þessa fundi sem haldnir eru á vegum stjórnar HRFÍ.
Dótla Elín mætti fyrir hönd Schäferdeildarinnar. Anna komst ekki vegna lokunnar á Hellisheiðinni.
F.h. Schäferdeildarinnar,
Dótla Elín
- 1-2 meðlimir úr stjórn hverrar ræktunardeildar mæta á þessa fundi sem haldnir eru á vegum stjórnar HRFÍ.
Dótla Elín mætti fyrir hönd Schäferdeildarinnar. Anna komst ekki vegna lokunnar á Hellisheiðinni.
- Farið var yfir fréttir frá stjórn og skrifstofu HRFI, þar var kynntur nýr starfsmaður skrifstofu í c.a. 77% starfi.
- Sagt var frá nýrri reglugerð um skráningu í ættbók fyrir Schäfer og Papillondeild
- Mast hélt samráðsþing og fóru 4 stjórnarmenn HRFÍ á það, Vala, Gauja, Magga og Bjössi. Þar var rætt um dýravelferð og innflutning hunda.
- Nýjir hringstjórar hafa verið útskrifaðir, Soffia Kwaszenko og Hulda M. Óladóttir
- HRFÍ hefur verið að vinna í samráði við Auði Hallgrímsdóttur að hundasvæðum í Garðabæ, en þar ser stefnt í að banna hundahald (og í fleiri bæjarflélögum) en í Garðabæ hefur veirð bannað að fara með hunda í bandi í kring um vötnin sem þar eru.
- Shih Tzu deild stendur fyrir "skítagöngu" á sunnudaginn kemur kl. 17.00 við Víkurskóla í Grafarvogi vegna mjög slæmrar umfjöllunar um hunda í síðasta Grafarvogsblaði. Öllum deildum boðið að vera með, margar hendur vinna létt verk.
- Stjórn HRFÍ ítrekaði við deildir að fara eftir starfsreglum ræktunardeilda varðandi að sækja um deildarsýningar, þær skal sækja um fyrir 1. september ár hvert. Stjórn hefur veitt undanþágu vegna afmælissýninga, en aðrar undanþágur verða ekki gerðar!
- MAST segir það ekki til umræðu að gera breytingar varðandi innflutning og einangrun, það er ekki heldur til umræðu að fella niður né stytta einangrunartímann.
- Rætt var hvað heilbrigðiseftirlit er lengi að grípa inn í vegna illrar meðferðar á dýrum.
- Rætt var um hvað það kostar mikið flugfargjald fyir hunda, allt annað verðlag hjá Icelandair og Express heldur en öllum öðrum flugfélögum um allan heim, bannað að fara með hunda inn í vél hjá þeim líka.
- Rætt var um umgengnina í Sólheimakoti, mjög ógeðslegt og sóðarlegt. Nú er komið að því að standa saman og koma húsinu í stand. Húsið er farið að leka á ýmsum stöðum og lítur ekki vel út. Annaðhvort verða deildir að taka þetta að sér að lagfæra þetta eða HRFÍ hættir að vera með kotið.
- Tilkynningar voru frá deildum.
- Rætt var um að deildir gætu mælt með ákveðnum þáttum varðandi t.d. ættbókarskráningar.
- Breyta á reglum með að skrá sig í deildina til að hafa kosningarétt. Þannig að það sé nóg fyrir félagsmann að eiga hund í deildinni til að hafa kosningarétt og að vera greiddur félagsmaður.
- Rætt var um að deildir félagsins auglýstu inn á heimasíðu sinni að benda fólki á að tilkynna til HRFÍ þegar hundurinn fellur frá svo að skráningar séu réttar.
F.h. Schäferdeildarinnar,
Dótla Elín