Schäferdeild hrfí
  • Fréttir
    • Fréttir 2024
    • Fréttir 2023
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
    • 2024
    • 2025
  • Myndir

Degenerative myelopathy - DM

​Degenerative myelopathy (DM) er taugahrörnunarsjúkdómur hjá hundum sem leggst á mænu og veldur hægfara lömun sem byrjar í afturfótum. DM hefur verið þekktur sjúkdómur í þýska fjárhundinum frá 8. áratug síðustu aldar. Í fyrstu var hann talinn einskorðast við tegundina en hefur í seinni tíð greinst hjá fleiri tegundum.

Ekki er vitað með vissu hvað veldur sjúkdómnum en komið hefur í ljós að einstaklingar með stökkbreytingu í SOD-1 geni eru í aukinni hættu á að fá DM.Hundar sem erfa stökkbreytt gen frá báðum foreldrum eru í aukinni hættu á að fá sjúkdóminn en fá hann þó ekki endilega. Það er því ljóst að fleiri óþekktir þættir, erfða- og/eða umhverfisþættir þurfa að koma til til að sjúkdómurinn komi fram.

Einkennin koma yfirleitt ekki fram fyrr en á efri árum eða að meðaltali í kringum 8 ára aldur.
Fyrstu einkenni
 Erfiðleikar við að standa upp.
 Máttleysi í afturfótum.
 Skert samhæfing
 Vöðvarýrnun
 Afturloppur kreppast þannig að hundurinn dregur tærnar, við það kemur gjarnan nuddsár ofan á tám og klær slitna óeðlilega.

Hálfu til einu ári eftir að fyrstu einkenni koma fram hafa flestir hundar misst máttinn í afturhluta líkamans og eiga erfiðara með að hafa stjórn á hægðum og þvagblöðru og í framhaldinu missa þeir smám saman mátt í fremri hluta líkamans sem endar með algerri lömun sem veldur m.a. öndunar- og kyngingarerfiðleikum. Hundar með DM virðast ekki vera verkjaðir en sjúkdómurinn dregur sjúklinginn til dauða á um það bil 3 árum. Í flestum tilfellum eru hundar þó svæfðir áður en til þess kemur.

Greining
Ekki er til fullnægjandi DNA próf til að greina DM. Það er einungis hægt að kanna hvort einstaklingur beri stökkbreytingu í SOD-1 geni frá báðum
foreldrum og sé þá í aukinni hættu á að fá sjúkdóminn. Hins vegar er ekki hægt að segja til um það hvort þeir einstaklingar komi til með að fá sjúkdóminn.

Örugga greiningu er einungis hægt að fá við krufningu en dýralæknar greina sjúkdóminn með því að útiloka aðra sjúkdóma með svipuð einkenni.
Engin lækning er til við DM og yfirleitt eru lífsgæði sjúklinga orðin það takmörkuð 6-18 mánuðum eftir að fyrstu einkenni koma fram að þeir eru
svæfðir.

Heimildir
Melissa J. Lewis, Jeremy L. Shomper, Baye G. Williamson, Daniella P.
Vansteenkiste, Katherine F. Bibi, Stefanie H. Y. Lim, Joseph B. Kowal, Joan R.
Coates. Brain diffusion tensor imaging in dogs with degenerative myelopathy. 2021.
Journal of Veterinary Internal Medicine. https://doi.org/10.1111/jvim.16248

Textan skrifar ​Sesselju Guðrúnu Sigurðardóttur 
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Fréttir
    • Fréttir 2024
    • Fréttir 2023
    • Fréttir 2022
    • Fréttir 2021
    • Fréttir 2020
    • Fréttir 2019
    • Fréttir 2018
    • Fréttir 2017
    • Fréttir 2016
    • Fréttir 2015
    • Fréttir 2014
    • Fréttir 2013
    • Fréttir 2012
    • Fréttir 2011
    • Fréttir 2010
  • Deildin
  • Sýningar
  • VInnupróf
  • Ræktun
  • Hvolpar / got
  • Gagnagrunnur
    • 2014
    • 2015
    • 2016
    • 2017
    • 2018
    • 2019
    • 2020
    • 2021
    • 2022
    • 2023
    • 2024
    • 2025
  • Myndir