Deildarsýning 29.apríl 2017 Dómari var Morten Nilsen frá Svíþjóð
Besti snögghærður hundur sýningar : ISJCH Ice Tindra Krissy
Besti síðhærður hundur sýningar: Ice Tindra Jazz
Deildarsýning Schäferdeildar HRFÍ 29. apríl 2017. Dómari var Morten Nilsen frá Svíþjóð
Schäfer, snögghærður (40)
Besti hundur tegundar: Ice Tindra Krissy með Ungliða meistarastig og Íslenskt meistarastig - Besti snögghærði hundur sýningar
Annar besti hundur tegundar: Gjósku Tindur með Íslenskt meistarastig - Annar besti snögghærði hundur sýningar
Besti öldungur tegundar: ISVCh ISCh ISTrCh OB 1 Kolgrímu Blaze Hólm - Besti Öldungur sýningar
Besti ungliði tegundar: Ice Tindra Krissy - Besti ungliði sýningar
Annar besti ungliði tegundar: Ice Tindra King
Besta par tegundar: ISShCh Kolgrímu Implacable og ISShCh RW-16 Kolgrímu Irresistible - Besta par sýningar
Besti ræktunarhópur tegundar: Gjósku ræktun - Besti ræktunarhópur sýningar
Besti afkvæmahópur: NUCH AD BH SCHH3 Kkl1 Giro av Røstadgården með afkvæmum - Besti afkvæmahópur sýningar
Schäfer, síðhærður (19)
Besti hundur tegundar: Ice Tindra Jazz með Íslenskt meistarastig - Besti síðhærði hundur sýningar
Annar besti hundur tegundar: ISShCh Ice Tindra Joss - Annar besti síðhærði hundur sýningar
Besti ungliði tegundar: Gjósku Úlfur - Annar besti ungliði sýningar
Annar besti ungliði tegundar: Svarthamars Edda
Besta par tegundar: Gjósku Úlfur og NLM Gjósku Ráðhildur - Annað besta par sýningar
Besti ræktunarhópur tegundar: Ice Tindra ræktun - Annar besti ræktunarhópur sýningar

Deildarsýning Schäferdeildar HRFÍ 29. apríl 2017 Hvolpar. Dómari var Morten Nilsen frá Svíþjóð
Schäfer, snögghærður (8)
Besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða: Kolgrímu Love Is All You Need - Besti hvolpur sýningar
Annar besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða: Forynju Aston
Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða: Ölfus Dögun
Schäfer, síðhærður (3)
Besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða: Kolgrímu Love Me Tender
Annar besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða: Forynju Arlett
Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða: Katla

01.05.2017
Deildarsýning Schäferdeildarinnar 2017
Þá er glæsilegu deildarsýningunni okkar lokið, en var hún haldin laugardaginn 29. apríl sl.
Dómarinn að þessu sinni var Morten Nilsen frá Svíþjóð og til leiks voru skráðir hvorki meira né minna en 70 hundar og er það skráningarmet á sýningar deildarinnar. Sýningin gekk vel fyrir sig, margt var um manninn og létt yfir fólki. Gleðin hélt svo áfram fram eftir kvöldi í sameginlegum kvöldverð.
Fyrst mættu hvolparnir til leiks og riðu 3-6 mánaða síðhærðir á vaðið, Morten valdi Kolgrímu Love Me Tender sem besta hvolp tegundar og Forynju Arlett sem besta hvolp tegundar af gagnstæðu kyni. Í flokki 6-9 mánaða var það Katla sem var valin besti hvolpur tegundar
Þá komu 3-6 mánaða snögghærðir hvolpar og Kolgrímu Love Is All You Need var sú sem Morten valdi sem besta hvolp tegundar. Forynju Aston valdi hann sem besta hvolp tegundar af gagnstæðu kyni. Ölfus Dögun stóð svo uppi sem sigurvegari í flokki 6-9 mánaða.
Þá fóru sigurvegarar allra hvolpaflokkana og kepptu um besta hvolp sýningar, en þar stal Kolgrímu Love Is All You Need senunni og varð besti hvolpur sýningar.
Þá kom röðin að fullorðnu hundunum og var byrjað á því að dæma þá síðhærðu. Besti rakki tegundar var úr opnum flokki, Ice Tindra Jazz. Hlaut hann þar með sitt 3. meistarastig og bíður því staðfestingar á titlinum Íslenskur sýningarmeistari. Óskum við eiganda hans Iðunni Ósk Óskarsdóttur innilega til hamingju. Annar besti rakki tegundar var hinn ungi Gjósku Úlfur úr ungliðaflokki, hlaut hann þá sitt annað ungliða meistarastig og bíður hann því staðfestingar á titilinum Íslenskur ungliðameistari. Óskum við eiganda hans og ræktanda Örnu Rúnarsdóttur innilega til hamingju. Gjósku Úlfur varð svo besti ungliði tegundar og annar besti ungliði sýningar.
Besta tík tegundar kom úr meistaraflokki hún ISShCh Ice Tindra Joss, rann því meistarastigið niður til Kolgrimu Jolie og er það hennar fyrsta meistarastig. 4. besta tík tegundar úr ungliðaflokki var hin unga og efnilega Svarthamars Edda, hlaut hún þar með sitt fyrsta ungliða meistarastig og varð annar besti ungliði tegundar. Besta par tegundar voru þau Gjósku Úlfur og NLM Gjósku Ráðhildur. Besta ræktunarhóp tegundar og annan besta ræktunrhóp sýningar átti Ice Tindra ræktun.
Að loknum dómi á síðhærðu hundunum mættu þeir snöggu til leiks. Besta rakka tegundar valdi Morten úr vinnuhundaflokk hann Gjósku Tind og hlaut hann sitt annað Íslenska meistarastig. Annar besti rakki tegundar og jafnframt annar besti ungliði tegundar var Ice Tindra King, hlaut hann sitt annað ungliða meistarastig og bíður þá staðfestingar á titilinum Íslenskur ungliðameistari. Óskum við eigendum hans Katrínu J. Jóhannsdóttur og Ágústi Ö. Þórðarssyni innilega til hamingju.
Besta tík tegundar var ungliðinn Ice Tindra Krissy, hlaut hún sitt fyrsta Íslenska meistarastig og annað ungliða meistarastig. Bíður hún því staðfestingar á titilinum Íslenskur ungliðameistari, óskum við rækanda hennar og eiganda, Kristjönu Bergsteinsdóttur innilega til hamingju. Ice Tindra Krissy var einnig valin besti ungliði tegundar og besti ungliði sýningar. Besti öldungur sýningar var ISVetCh ISCh ISTrCh OB I Kolgrímu Blaze Hólm. Besta par tegundar voru systkynin ISShCh Kolgrímu Implacable og ISShCh RW-16 Kolgrímu Irresistible, voru þau einnig besta par sýningar. Besta afkvæmahóp tegundar og sýningar átti NUCH AD BH SCHH3 Kkl1 Giro av Røstadgården. Besta ræktunarhóp tegundar og einnig besta ræktunarhóp sýningar átti Gjósku ræktun.
Í lok sýningarinnar mættu besti rakki og besta tík og kepptu um besta hund sýningar. Fyrst mættu síðhærðu got systkynin Ice Tindra Jazz og ISShCh Ice Tindra Joss og var það Ice Tindra Jazz sem stóð uppi sem bestu hundur tegundar og Besti síðhærði hundur sýningar.
Þá mættu bestu hundar tegundar snögghærðir, hin unga Ice Tindra Krissy og leitarhundurinn Gjósku Tindur. Morten valdi besta hund tegundar Ice Tindra Krissy og stóð hún þar með uppi sem besti snögghærði hundur sýningar. En er hún fyrsta tíkin og fyrsti Íslands ræktaði hundurinn til að hljóta þann titil á deildarsýningu.
Viljum við koma á framfæri þakklæti til allra þeirra frábæru styrktaraðila sem styrktu sýninguna sem og því frábæra starfsfólki sem á henni starfaði.

19.04.2017
Dagskrá deildarsýningar 2017
Dagskrá deildarsýningar
Tímasetningar eru eingöngu til viðmiðunar og ber sýnandi algera ábyrgð á því að vera mættur tímanlega. Hægt er að miða við að hver hundur taki u.þ.b 4. mínútúr í dóm.
09:00 Hvolpar síðhærðir
10:00 Schäfer síðhærður
11:30 Schäfer snögghærður
15:30 Úrslit

- 3-6 mánaða, Rakkar: 1
- 3-6 mánaða, Tíkur: 1
- 6-9 mánaða, Tíkur: 1
- 3-6 mánaða, Rakkar: 2
- 3-6 mánaða, Tíkur: 4
- 6-9 mánaða, Tíkur: 2
10:00 Schäfer síðhærður
- Ungliðafl. Rakkar: 4
- Unghundafl. Rakkar: 2
- Opinn fl. Rakkar: 3
- Meistarafl. Rakkar: 2
- Besti rakki tegundar
- Ungliðafl. Tíkur: 3
- Opinn fl. Tíkur: 3
- Meistarafl. Tíkur: 2
- Besta tík tegundar
- Besti ungliði tegundar
- Besti ræktunarhópur tegundar
- Besta par tegundar
11:30 Schäfer snögghærður
- Ungliðafl. Rakkar: 5
- Unghundafl. Rakkar: 1
- Opinn fl. Rakkar: 4
- Vinnuhunda fl. Rakkar: 1
- Meistarafl. Rakkar: 5
- Besti rakki tegundar
- Ungliðafl. Tíkur: 4
- Unghundafl. Tíkur: 4
- Opinn fl. Tíkur: 12
- Vinnuhunda fl. Tíkur: 1
- Meistarafl. Tíkur: 2
- Öldungafl. Tíkur: 1
- Besti öldungur sýningar
- Besta tík tegundar
- Besti ungliði tegundar
- Besti ræktunarhópur tegundar
- Besti afkvæmahópur sýningar
- Besta par tegundar
15:30 Úrslit
- Besta par sýningar
- Besti ræktunarhópur sýningar
- Besti ungliði sýningar
- Besti hundur sýningar síðhærður Rakki/Tík
- Besti hundur sýningar snögghærður Rakki/Tík
16.04.2017
Mikið á döfinni hjá deildinni
Mikið er í gangi hjá deildinni um þessar mundir en viljum við minna fólk á að síðasti skráningardagur á deildarsýninguna okkar, sem haldin verður 29. apríl nk., er á þriðjudaginn 18. apríl. Lokað er á skrifstofunni á mánudaginn en á þriðjudaginn er opið frá 10-15. Mikið álag gæti verið á símanum vegna skráningar en það einnig hægt að kíkja til þeirra í Síðumúla 15.
Á miðvikudaginn verður svo sýningarþjálfun á vegum deildarinnar kl 18:30 í bílastæðahúsi á Lynghálsi 4, beint á móti hestavöruversluninni Líflandi. Skiptið kostar 500kr sem rennur beint til deildarinnar.
Á eftir sýningarþjálfuninni, eða kl 20:00, verður svo Aðalfundur deildarinnar haldinn á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15. 5 sæti eru laus í stjórn deildarinnar og hverjum við áhuga sama um að bjóða sig fram. Deildin gengur aðeins ef öflugt og áhugasamt fólk sinnir stjórnarstarfinu.
Síðasta sýningarþjálfun fyrir deildarsýninguna fer svo fram á miðvikudaginn 26. apríl, en ætlum við fyrst að halda stutta göngu svo að þeir sem vilja ekki koma á æfingu geta hitt okkur kl 19:30 á Lynghálsi 4. Eftir gönguna verður svo þjálfun og getur fólk svo fengið svör við spurningum um sýninguna eftir æfinguna.

11.04.2017
Deildarsýningarnefnd
Stjórn deildarinnar ákvað á seinasta stjórnarfundi að setja á deildarsýningarnefnd. Mun nefndin sjá um að hjálpa til við að klára undirbúning og uppsetningu deildarsýningarinnar sem haldin verður 29. apríl n.k.
Fá þannig fleiri sem áhuga hafa færi á því að kynnast þeirri vinnu sem svona sýning ber með sér og léttir undir með stjórn í leiðinni. Vonum við að þeir sem hafi áhuga hafi samband við okkur og skrái sig í deildarsýningarnefnd Schäferdeildarinnar hér fyrir neðan.Ég vil sitja í Deildarsýningarnefnd Schäferdeildarinnar
Submit

- * Indicates required field
Name * First
Last
Email *
Comment *
Submit