Á stjórnarfundum HRFÍ þann 25. apríl og 7. maí var tekið fyrir erindi Schäferdeildarinnar varðandi sérafbrigðið síðhærður schäfer og var erindið samþykkt. Eftirfarandi tilkynning barst frá HRFÍ:
Eftirfarandi fer í Reglugerð um skráningu í ættbók undir lið VI. Reglur sérdeilda varðandi undaneldisdýr:
Schäfer (short-haired og long-haired)
Mjaðma- og olnbogamyndir: Undaneldisdýr skulu mynduð og niðurstaða kunn fyrir pörun. (Fyrir mjaðmamyndir gildir frá 01.11.1999 og olnbogamyndir frá 01.09. 2010).
Greinist hundur með mjaðma-og/eða olnbogalos D eða E verða afkvæmi hans ekki skráð í ættbók.(Gildir frá 01.09.2010
Para má saman schäfer short-haired og schäfer long-haired, gildir frá 01.01.2012.
Ættbókarfæra skal hvolpana það afbrigði sem ræktandi telur þá vera við 8 vikna aldur.
Varðandi umskráningu á schäfer short-haired /schäfer long-haired:
Schäfer long-haired/schäfer short-haired þá þarf hundurinn að vera sýndur eftir 9 mánaða aldur á viðurkenndri FCI sýningu áður en hann er umskráður. Telji eigandi hundinn vera annað afbrigði en hann var skráður í upphafi í ættbók skal skrá hann á sýningu sem það afbrigði sem eigandi telur hundinn vera. Ef dómari samþykkir hundinn sem það afbrigði, er hægt að láta umskrá afbrigðið í ættbók.
Eftirfarandi verður sett í sýningareglur HRFÍ undir lið 55, sérstök ákvæði:
German Shepherd Dog (Short-haired og Long-haired)
Hvolpar eru skráðir það afbrigði sem ræktandi telur þá vera við 8 vikna aldur. Varðandi umskráningu á schäfer short-haired/schäfer long-haired, schäfer long-haired/schäfer short-haired, þá þarf hundurinn að vera sýndur eftir 9 mánaða aldur á viðurkenndri FCI sýningu áður en hann er umskráður. Telji eigandi hundinn vera annað afbrigði en hann var upphaflega skráður í ættbók, skal skrá hann á sýningu sem það afbrigði sem eigandi telur hundinn vera. Ef dómari samþykkir hundinn sem það afbrigði, er hægt að láta umskrá afbrigðið í ættbók.