Aðalfundur Schäferdeildarinnar
15. mars 2012
Stjórnarmeðlimir: Íris og Kata
Fundur settur kl. 20.
Fundarstjóri kosinn; Auður Sif, sem var einnig fulltrúi stjórnar HRFÍ.
Dagskrá:
1. Ársskýrsla Schäferdeildarinnar lesin. Spurt út í nokkur atriði, svo sem fjármál og nýjar reglur deildarinnar. Eftir skýrsluna voru nýjar reglur kynntar fyrir deildarmeðlimum sem stjórn hefur samið og sent erindin á stjórn HRFÍ. Reglurnar varða breytingu á kröfum til meistara og nýjar reglur um síðhærðan schäfer og voru þær samþykktar einróma af fundargestum. Ársskýrsla og ársreikningur deildarinnar samþykkt.
2. Kosning í stjórn. Þrjú sæti laus, tvö til tveggja ára og eitt til eins árs. Út fer Eva Björk fráfarandi formaður og Sturla sagði af sér frá og með aðalfundi vegna búsetu og náms erlendis. Sturla átti eitt ár eftir, hans sæti er því laust til eins árs. Þrír aðilar buðu sig fram og voru samþykktir: Kristjana Guðrún Bergsteinsdóttir til tveggja ára, Guðlaugur Ottesen Karlsson til tveggja ára og Eva Kristinsdóttir til eins árs.
3. Önnur mál.
F.h. stjórnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, ritari