Stjórnarfundur
19. ágúst 2014 kl. 20
Mættir: Haukur, Íris, Rúna og Þórður
Rúna kom með umsagnir frá nóv. 2013 sem hún var búin að færa inn. Kom einnig með umsagnir frá júnísýningu. Var búin að skrifa inn frá laugardeginum en áberandi erfitt var að lesa umsagnir frá sunnudeginum og meiri vinna að færa þær inn. Rúna hafði tekið eftir einhverjum villum auk þess að umsagnir hafi vantað í bunkann og ætlar að skila þeim inn seinna.
Rætt um sýningaþjálfun. Gætum mögulega verið inni og kom fram tillaga um að athuga með aðstöðu hjá Gæludýr.is. Rúna tekur að sér að leiðbeina á sýningaþjálfuninni.
Hafa þarf samband við Royal Canin vegna verðlaunagripa fyrir sýninguna. Rúna sér um þau mál, hefur samband við HRFÍ og kemur upplýsingum áfram til Royal Canin.
Fræðslumál rædd. Stjórn hefur áhuga á að bjóða upp á fjölbreytt efni fyrir deildarmeðlimi. Meðal annars var rætt um að kynna fyrir fólki hvað felst í fóðursamningum, ræktunarnámskeið fyrir ræktendur ásamt lista fyrir tilvonandi hvolpakaupendur, um það hvað þurfi að hafa í huga þegar valinn er hvolpur eða got.
Félagsstarf deildarinnar var tekið til umræðu. Stjórn hefur áhuga á að bjóða upp á opinn deildarfund fljótlega til þess að ræða m.a. fyrirkomulag deildarsýningar og gefa fólki kost á að koma með hugmyndir að spennandi viðburðum í vetur. Samþykkt að halda deildargöngu sunnudaginn 14. sept. enda á opnum deildarfundi í húsnæði á vegum Hauks. Kaffi og meðlæti í boði deildarinnar á fundinum.
Rætt um styrk fyrir léni. Höfum síðustu ár fengið styrk en ekkert hefur verið athugað fyrir þetta ár ennþá.
Hugmynd kom fram um að athuga með samstarf við einhverja gæludýraverslun. Mögulegt væri að taka viðtal eða fá ráðleggingar varðandi fóður.
Schäferdeildin á að sjá um að manna stöður vegna sýningarinnar. Bæði vantar fólk til þess að setja upp sýninguna, starfa á sýningunni á sunnudeginum og taka hana niður seinnipart sunnudags. Tillaga sett fram um að athuga hjá HRFÍ hvað sjálfboðaliðar fá fyrir vinnuframlag sitt. Íris setur inn auglýsingu og sendir á póstlistann. Íris og Rúna skrá sig í uppsetningu á miðvikudeginum. Svara þarf Fríði fyrir 1. sept.
Viðburðir á vegum deildarinnar ræddir. Síðustu ár hefur ýmislegt verið í boði svo sem skapgerðarmat og skyndihjálparnámskeið. Í vor var sporafyrirlestur ásamt æfingu sem mögulega verður endurtekið í haust.
Fundi slitið kl. 22.
f.h. stjórnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, formaður