Breyting á sérákvæði um meistarareglur fyrir vinnuhunda
Á stjórnarfundi HRFÍ í febrúar s.l. var samþykkt að fella niður kröfu til skapgerðarmats hjá þeim tegundum þar sem þess er krafist til að hljóta titilinn Íslenskur meistari. Ástæða breytinganna er sögð vera vegna ónógs framboðs af skapgerðarmötum.
Stjórn Schäferdeildarinnar sendi stjórn HRFÍ bréf vegna málsins. Lesa má bréfið í heild sinni hér á eftir, auk svars frá HRFÍ þar fyrir neðan.

17. mars 2011
Til stjórnar Hundaræktarfélags Íslands
Stjórn Schäferdeildar hefur fundað vegna niðurstöðu stjórnar Hundaræktarfélags Íslands um niðurfellingu á kröfu til skapgerðarmats fyrir Schäfer hunda.
Málið var tekið fyrir á ársfundi Schäferdeildarinnar þann 10. mars síðastliðinn og var það einróma álit fundarins að nauðsynlegt væri að viðhalda kröfu til skapgerðarmats.
Skapgerðarmatið hefur verið mikilvægt verkfæri til að meta skapgerð hunda af þessari tegund. Það hefur gefið góða innsýn á hver staða stofnsins er þegar snýr að skapgerð og hafa þó nokkrir Schäfer hundar þegar hlotið athugasemd í skapgerðarmati. Við bendum á Schäferdeildin heldur vel utan um þær niðurstöður sem koma úr mötunum og er hægt að vitja þeirra á heimasíðu Schäferdeildar www.schaferdeildin.is.
Mikil óánægja ríkir yfir þeirri ákvörðun stjórnar HRFÍ að ræða ekki þetta mál meðal deilda sem þetta mál snertir. Nú hefur nýlega verið haldinn fulltrúaráðsfundur innan HRFÍ og var Schäferdeildin þar með fulltrúa á sínum vegum. Þetta mál var ekki borið upp á þeim fundi heldur.
Niðurstaða stjórnar Schäferdeildarinnar er sú að niðurfelling skapgerðarmatsins er stórt skref aftur á bak fyrir tegundina og félagið í heild sinni.
Það að skapgerðarmat sé krafa til meistara er hvatning fyrir ræktendur, Schäfer eigendur og aðra félagsmenn að sækja matið og vera upplýstari um geðslag síns hunds. Langir biðlistar hafa myndast eftir skapgerðarmati og sýnir það okkur áhuga hundeigenda að vera vakandi yfir skapgerð hunda.
Sé það mannekla starfsmanna skapgerðarmatsins sem veldur þessari stórvægilegu breytingu þá vitum við það fyrir víst að fjölmargir hafa sótt um að aðstoða við matið en ekki hlotið svar frá stýrihóp skapgerðarmatsins.
Schäferdeildin treystir sér fullkomlega til þess að undirbúa mat fyrir deildina sína og fá til liðs við sig löggilda einstaklinga til þess að starfa við matið.
Það er okkur hjartans mál að skapgerðarmat verði ekki fellt niður sem krafa til meistara hjá Schäfer hundum.
Með von um að stjórn HRFÍ endurskoði niðurstöðu sína.
Með kveðju,
Stjórn Schäferdeildarinnar
Anna Francesca Rósudóttir
Eva Björk Atladóttir
Hallgerður Kata Óðinsdóttir
Íris Hlín Bjarnadóttir
Sturla Þórðarson

4. apríl 2011
Til stjórnar Schäferdeildar HRFÍ
Á stjórnarfundi stjórnar Hundaræktarfélags Íslands 30. mars 2011 var tekið fyrir erindi ykkar varðandi kröfur um skapgerðarmat.
Ítrekað hefur verið reynt að halda úti nægu framboði af skapgerðarmötum án árangurs. Stjórn HRFÍ er sammála um að fella niður kröfur um skapgerðarmat hjá þeim tegundum þar sem þess er krafist vegna ónógs framboðs af skapgerðarmötum og finnst leiðinlegt að málin séu í þeim farvegi að fella þurfi niður kröfurnar. Stjórn HRFÍ mun ekki endurskoða niðurstöðu sína fyrr en breyting verður á framboði af skapgerðarmötum.
Með bestu kveðju,
f.h. stjórnar Hundaræktarfélags Íslands,
Valgerður Júlíusdóttir, ritari