Meistarar tegundarinnar
Alþjóðlegir meistarar tíkur
Alþjóðlegir meistarar rakkar |
Íslenskir meistarar tíkur
Íslenskir meistarar rakkar
|
Íslenskir sýningameistarar tíkur
Íslenskir sýninga meistarar rakkar |
Um Meistaranafnbótina
Íslenskur meistari
Schäfer hundur þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að hljóta titilinn íslenskur meistari (ISCh):
a. Að hafa hlotið þrjú meistarastig á sýningum HRFÍ, hjá þremur mismunandi dómurum, þar af eitt stig eftir 24 mánaða aldur (24 mán.+1 dagur).
b. Hundur þarf að vera röntgenmyndaður m.t.t. mjaðmaloss (HD) og olnbogaloss (AD)* og niðurstöður þurfa að liggja fyrir. (*Gildir fyrir hunda fædda eftir 1. janúar 2005)
c. Hundur þarf að hafa varanlegt auðkenni (örmerki/húðflúr).
d. Hundur þarf að hafa staðist vinnueiginleikapróf sem hér segir:
I. Skapgerðarmat. (Fellt niður frá og með 01.04.2011)
II. Sporleitarpróf viðurkennt af HRFÍ eftir 9 mánaða aldur.
III. Bronsmerki í hlýðni. (Gildir fyrir hunda fædda eftir 1. janúar 2004).
e. Innfluttur hundur með IPOI próf (Schutzhund, SCHH1) jafngildir lið II og III.
f. Hundur sem hefur staðist B-próf frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu; Björgunarhundasveit Íslands eða Leitarhundum SL, jafngildir lið II.
g. Hundur sem hefur staðist A-próf frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu; Björgunarhundasveit Íslands eða Leitarhundum SL, jafngildir lið II og III.
(Sérákvæði um meistarareglur fyrir vinnuhunda, grein nr. 71. Ákvæði fyrir schäfer hund (166) í tegundarhópi 1.)
Alþjóðlegur Meistari (C.I.B.)
Til að eiga kost á að sækja um C.I.B. (Alþjóðlegur fegurðarmeistari, International Beauty Champion), þurfa hundar að vera Íslenskir meistarar og hafa hlotið fjögur alþjóðleg meistarastig (CACIB) frá þremur dómurum sem koma frá a.m.k. þremur mismunandi löndum.
Íslenskur sýningameistari (ISSCH)
Til að hundur geti orðið Íslenskur sýningameistari (ISSCH) verður hundur að fá þrjú stig til meistara á þremur ræktunarsýningum HRFÍ, engin krafa er um vinnupróf fyrir þennan titil.
(Sýningarreglur fyrir hundasýningar HRFÍ og sérdeilda þess.)

Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur. Athugasemdir sendist á [email protected].