Stjórnarfundur 29. maí 2011
Mættir: Íris, Eva, Kata, Sturla.
Fundur settur kl 19:30.
Bréf frá deildarmeðlimi rætt og svarað.
Stjórnarmeðlimur kom hugmynd varðandi það að stjórn gæti boðist til að finna sýnendur fyrir fólk sem langar til þess að skrá hundinn á deildarsýninguna en treystir sér ekki til þess að sýna sjálft.
Bréf barst frá Fjár- og Hjarðhundadeild HRFÍ sem óskaði eftir leyfi til þess að fá að taka þátt í sýningunni. Bréfið var tekið fyrir á fundinum og svarað. Stjórn sammála um að synja því í þetta skiptið en hefur áhuga á samstarfi í framtíðinni. Bréfasamskipti deildanna má sjá hér.
Hugmynd kom fram um að athuga með hinn Fredrik, þann sem dæmdi fyrstu deildarsýninguna. Einnig væri gaman að fá dómara sem getur dæmt vinnupróf, Brukshunds-dómara.
Hugmynd rædd sem kom frá deildarmeðlimi. Tekið var video af sýningunni árið 1988. Það væri gaman að geta sýnt það einhvern tímann, setja upp tjald t.d. á opnum deildarfundi eða setja það á heimasíðuna. Stjórn ætlar að reyna að komast að því hvort viðkomandi video sé ennþá til. Eva tekur að sér að skoða málið.
Sýningaþjálfun deildarinnar rætt. Það hefur verið aðeins í umræðunni hvort aðrar tegundir megi taka þátt. Þjálfunin verður auglýst sem sýningarþjálfun deildarinnar en þó verður leyfilegt að koma með aðrar tegundir.
Rætt um boð sem deildin fékk varðandi Viðeyjarferð deildarinnar. Stjórn sammála um að skoða það í ágúst. Íris sér um samskipti við rekstraraðila ferjunnar.
Umræður um deildargöngu. Það væri gaman að hafa göngu fljótlega, t.d. annan í hvítasunnu. Einnig hefur stjórn hug á að vera einhvern tímann með lausagöngu, Kata tekur það að sér.
Stjórn hefur skoðað möguleika á skyndihjálparnámskeiði fyrir deildarmeðlimi þar sem farið verður yfir skyndihjálp fyrir hunda. Hanna dýralæknir hefur séð um slíkt og kostar kvöldið um 15 þús. kr. Hugsanlega væri hægt að halda það á skrifstofu HRFÍ. Kostnaður myndi deilast á þátttakendur.
Búið er að senda út reikning til Vistor vegna styrks sem er væntanlegur. Reikningur til Bendis er einnig farinn. Sturla athugar hvort greiðslur hafi borist. Eva tekur að sér að senda póst á önnur fyrirtæki.
Umræða um facebook síðu deildarinnar. Ný síða er væntanleg. Íris og Kata taka það að sér.
Stefnan er að auglýsa deildarsíðuna og deildarsýninguna á hundaspjallinu. Íris tekur að sér að skoða möguleika á að fá sameiginlegan aðgang fyrir stjórn deildarinnar.
Umsókn til UST rædd á fundinum. Umsókn kláruð, Eva Björk tekur að sér að senda hana og spyrja Völu að nokkrum atriðum varðandi hana.
Okkur vantar styrktaraðila fyrir veitingar á sýningunni. Eigum eftir að senda á gos- og pylsuframleiðendur.
Auglýsa dómaradinnerinn, senda á póstlistann og setja á facebook síðuna.
Hugmynd sett fram varðandi videoupptöku af sýningunni, það væri gaman að eiga upptöku og geta selt meðlimum eins og gert hefur verið nokkrum sinnum áður.
HRFÍ greiðir dómaranum dagpeninga. Sturla hefur samband við HRFÍ til þess að fá frekari upplýsingar.
Fljótlega þarf að auglýsa sumarmyndakeppnina. Kata tekur að sér að fá styrktaraðila, t.d. Merkiverk.
Rætt um deildarsýninguna. Spurt er hvort þar verði vatnssalerni eða kamrar. Eva hringir í umsjónarmanninn og athugar. Umræður um hvað eigi að bjóða dómaranum upp á í hádeginu, fara í húsið eða á kaffistofu í hesthúsi þarna nálægt.
Kata tekur að sér að klára gagnagrunninn.
Drífa verður með stutt sporanámskeið fyrir deildina. Sturla ætlar að kanna með tímasetningu og sér um samskipti við Drífu. Hugsanlega verður hún með tvö námskeið, eitt fyrir byrjendur og annað fyrir lengra komna.
Bréf barst frá deildarmeðlimi með upplýsingum um afrekshunda. Höfum áhuga á að setja þessar upplýsingar á heimasíðu deildarinnar. Íris setur saman og inn á netið.
Bendir gefur bikara fyrir næstu sýningu, Eva sækir og fer með þá uppeftir.
Stjórn þarf að kanna hvort einhver gögn deildarinnar hafi orðið eftir hjá fyrri formönnum deildarinnar vegna þess að það vantar ýmislegt í möppurnar.
Deildin fékk það verkefni að manna nokkur störf á deildarsýningunni. Þurfum að auglýsa og fá sem flesta. Það væri gaman ef deildin gæti gert eitthvað saman eftir sýninguna.
Okkur vantar teljara á síðuna. Íris tekur að sér að skoða það.
Eva Björk tók saman úrdrátt úr viðtali við dómara sem dæmdi tegundina en viðtalið birtist í Sám. Væri gaman að setja það á deildarsíðuna.
Fundi slitið kl. 23:30.
f.h. stjórnar Schäferdeildarinnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, ritari