Fundargerð 20. Október
Mættar voru Arna Rúnarsdóttir, Unnur Rut Rósinkransdóttir og Rúna Helgadóttir.
Byrjað var að ræða sýningarþjálfanir fyrir næstu sýningu sem haldin verður 11-13. Nóv næstkomandi. Ákveðið var að halda 3 þjálfanir næstu 3. Miðvikudagskvöld kl 20:00 í bílastæðahúsinu á Lynghálsi.
Þá ræddum við um deildarsýningu fyrir árið 2017. Vorum við búnar að skoða nokkra dómara en komumst að niðurstöðu, Svava var einnig búin að senda stuðning fyrir vali á dómara, um Morten Nielsen. Hann er specialisti í tegundinni og ræktar og sýnir hunda í Svíþjóð undir ræktunarnafninu Trönderjycken.
Ákveðin var dagsetningin 29. Apríl fyrir sýninguna. Ætlum við á næstu dögum að senda póst á dómarann, athuga hvort að hann hafi áhuga á að koma og hvort að dagsetningin henti. Helgin fyrir og eftir eru til vara ef hann kemst ekki 29.
Ákveðið var að við myndum athuga með reiðhöllina hjá Sigurbirni í Víðidal, en að hafa hallirnar í keflavík og andvara til vara.
Ákveðið var að halda fyrsta í aðventu göngu sunnudaginn 27. Nóvember, ganga um Víðidalinn og enda í kakó og kleinum í hesthúsinu hjá Örnu og Rúnu.
Ákveðið var að hafa jólaheiðrun deildarinnar fimmtudagskvöldið 8. Desember á skrifstofu HRFÍ. Ræddi stjórn um fráfall Welincha’s Yasko og að við heiðra minningu hans með sérstökum hætti. Hefur hann verið gífurlegur áhrifavaldur á ræktun á Íslandi og taldi stjórn ástæðu fyrir því að veita eiganda hans minningarsjal honum til heiðurs.
Fundi slitið kl 22:30