Stjórnarfundur mánudaginn 15. ágúst 2016 kl 20:00
mættir voru: Rúna Helgadóttir Borgfjörð, Arna Rúnarsdóttir, Unnur Rut Rósinkransdóttir og Svava Ósk.
Fundi var slitið 21:30
mættir voru: Rúna Helgadóttir Borgfjörð, Arna Rúnarsdóttir, Unnur Rut Rósinkransdóttir og Svava Ósk.
- Rætt var um að Rúna myndi halda áfram að sjá um samskipti í sambandi við bikaramál við Petmark. 4 glerplattar urðu afgangs á síðustu sýningu svo hægt verður að edurmerkja þá fyrir hvolpasýninguna. Annarskonar gripir verða pantaðir fyrir fullorðnu hundana.
- Ákveðið var að halda áfram þessari skemtilegu hefð að byrta myndir frá sýningunum. Arna býður aftur fram sína vél og verður Rut að öllum líkindum að taka myndir.
- Schäferdeildin á að útvega fólk til að vinna á sýningunni, í uppsetningu og frágangi. Ætlum við að setja upp skráningarform og óska eftir sjálfboðaliðum frá deildinni.
- Ákvörðun var tekin um að halda sýningarþjálfun tvo síðustu fimmtudaga fyrir sýninguna 25. ágúst og 1. september klukkan 20:00 á planinu fyrir utan reiðhöllina.
- Næsta ganga verður haldin 11. september, sunnudag klukkan 16:00 staðsetning verður ákveðin þegar nær dregur.
- Rætt var um að byrja aftur með æfingakvöldin. Ákveðið var að skoða að hafa þau á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00. Myndum við byrja 28. september og þau myndu kosta fyrir 4 vikur í senn 4000 krónur.
- lagt var til að við færum af stað að spá í dómurum fyrir deildarsýningu sem haldin verður næsta sumar. Þeir yrðu að vera með réttindi á alla grúppu 1 en sérhæfðir schaferdómarar.
Fundi var slitið 21:30