Stjórnarfundur 26. mars 2014
Mættir: Guðmundur, Rúna, Þórður, Haukur, Íris
Fundur settur kl. 20:30
Í upphafi fundar fóru fram óformlegar umræður stjórnar um ýmis mál er tengjast deildinni og störfum stjórnar. Meðal umræðuefna voru meðal annars mikilvægi þess að færa standard deildarinnar nær því sem tíðkast erlendis, mikilvægi þess að lækka kostnað í vinnupróf hjá HRFÍ, tilhögun vinnuprófa og æfingaprófa hjá HRFÍ og möguleika á að koma inn BH prófi að erlendri fyrirmynd. Rætt var um ræktunarreglur deildarinnar og möguleika á því að uppfæra og nýta þær í dag. Umræður um mismunandi áherslur dómara sem dæma tegundina á sýningum, kröfur deildarinnar til þess að auglýsa got, stigakeppni deildarinnar, kosti og galla við að halda deildarsýningu og hversu oft þyki viðeigandi ásamt því að rætt var um dóma og próf að erlendri fyrirmynd svo sem kkl 1 ræktunardóm og AD þrekpróf.
Tillaga var sett fram varðandi verkaskiptingu innan stjórnar ásamt tveimur nýjum hlutverkum í stað meðstjórnanda og varaformanns. Athugasemdir voru gerðar við útlistun hlutverka og tillaga sett fram um að skoða það nánar. Verkaskipting var engu að síður samþykkt og er skiptingin eftirfarandi: formaður: Íris, gjaldkeri : Þórður, ritari: Rúna, umsjónarmaður vinnuprófamála: Haukur, umsjónarmaður fræðslumála: Guðmundur.
Tillaga var sett fram varðandi nýtt lén fyrir deildina. Eldra lénið er ekki í eigu deildarinnar en stjórnarmenn sammála um mikilvægi þess að deildin sé skráð fyrir eigin léni. Samþykkt að skipta yfir í schaferdeild.is og samþykkt að skoða styrk fyrir árgjaldi lénsins eins og hefur tíðkast síðustu ár.
Rætt var um mikilvægi þess að ná betur til hvolpakaupenda og kynna deildina, tillaga sett fram um að útbúa kynningarbækling sem fylgir með ættbókum.
Bent var á að það á eftir að uppfæra ýmsa hluti á heimasíðunni, svo sem efni tengt sýningum.
Umræður um bikaramál deildarinnar. Bendir hefur styrkt allar sýningar síðustu 4 ár en hefur nú dregið sig í hlé. Fyrir síðustu sýningu náðust samningar við Royal Canin sem mun styrkja deildina með verðlaunagripum þetta árið. Stjórn á eftir að fá endanlegan samning í hendurnar þar sem samningsatriði verða útlistuð nánar.
Samþykkt að auglýsa göngu fljótlega og mögulegar staðsetningar ræddar.
Rætt um mikilvægi þess að hafa sýningaþjálfun og möguleikar ræddir varðandi kynningarefni sem væri sérstaklega ætlað schäfereigendum.
Fundi slitið kl. 22.
f.h. stjórnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, formaður