Stjórnarfundur 17. mars 2011
Mættir: Íris, Anna, Sturla, Eva, Kata
Fundur settur kl 19:30
Rætt um hvort eðlilegt sé að öll mál fari í fundargerð. Stjórn sammála um að allt eigi að fara í fundargerð auk þess sem öll gögn deildarinnar, þ.m.t. fundargerðir og fundargerðabók, séu opinber gögn. Þó beri að gæta nafnleyndar í trúnaðarmálum, s.b. reglur siðanefndar HRFÍ og stjórnar HRFÍ.
Rætt um nýjar reglur varðandi Longhair. Deildin hefur litlar sem engar upplýsingar fengið, líkt og HRFÍ. Búið var að senda bréf til FCI sem ekki hefur fengist svar við. Ákveðið var að skoða hvaða afstöðu norðurlöndin hafi tekið í þessu máli. Höfum fengið upplýsingar um að Noregur ætli að fresta upptöku málsins. Stjórn deildarinnar tók ákvörðun um að fresta einnig þar til frekari upplýsingar hafi borist. Munum biðja HRFÍ um að taka fyrir erindi frá okkur á NKU fundi. Anna ætlar að senda bréf til ræktanda í Svíþjóð til að kanna hvað Sænski klúbburinn muni gera.
Rætt um skipulag sýningarinnar í sumar. Farið yfir email samskipti við dómarann. Þurfum að panta flug auk þess að skipuleggja veru dómarans á Íslandi. Hugmynd að bjóða dómaranum í kvöldverð með keppendum sýningarinnar. Ætlum að óska eftir fólki í stýrihóp vegna sýningarinnar. Staðsetning sýningarinnar hefur ekki verið ákveðin. Sturla ætlar að skoða svæði við Laxnes í Mosfellsdal.
Styrktaraðilar vegna sýningarinnar eru Vistor og Lífland. Munum kalla eftir styrkjum fljótlega til að hægt sé að bóka flug o.fl. sem leggja þarf út fyrir.
Farið var yfir skipulagningu á básveru í Garðheimum. Búið er að setja niður grunnmönnun báða daga, a.m.k. einn hundur allan tímann, ætlum að reyna að fá fleiri.
Stjórn er ósátt við niðurstöðu stjórnar HRFÍ varðandi niðurfellingu á skapgerðarmati. Bréf samið á fundinum og sent til stjórnar HRFÍ.
Rætt um auglýsingamál deildarinnar. Stefnan er að selja fyrirtækjum pláss á síðunni. Farið yfir uppsetningu á heimasíðunni til að skoða hvar sé best að hafa þær. Bréf samið til fyrirtækja þar sem óskað er eftir styrkjum gegn auglýsingaplássi. Umræður varðandi hugsanlegt verð á auglýsingum og hvaða fyrirtæki gætu komið til greina sem styrktaraðilar. Íris tekur að sér að semja bréf til Bendis.
Rætt um efni á heimasíðunni. Það þarf að uppfæra eldri upplýsingar, t.d. varðandi björgunarsveitahunda. Það þarf að aðgreina hverjir eru starfandi og hverjir eru hættir. Hafa smá texta með til útskýringar á starfi þeirra.
Anna tekur að sér að gera deildarfréttir fyrir Sám. Eva sendir póst á fyrirtækin eftir að við höfum fengið svar frá Bendi. Kata tekur að sér að gera lista yfir stigahæstu hunda í vinnu, svo sem spori og hlýðni. Sturla gerir frétt varðandi gönguna, Íris setur hana inn á vefinn.
Fundi slitið kl 23:30
F.h. stjórnar,
Íris Hlín Bjarnadóttir, ritari