Stjórnarfundur 12.
mars 2011
Mættir: Anna, Eva, Íris, Kata og Sturla
Fundur settur kl 13:30
Stöður nýrrar stjórnar voru ákveðnar strax eftir aðalfundinn 10. mars og eru eftirfarandi: Anna formaður, Eva varaformaður, Sturla gjaldkeri, Íris ritari og Kata meðstjórnandi. Sturla tekur við gjaldkerastöðu þegar prófkúru hefur verið breytt.
Fyrsti formlegi fundur nýrrar stjórnar var haldinn tveimur dögum seinna, laugardaginn 12. mars. Fyrsta mál á dagskrá var að kynna stjórnkerfi heimasíðunnar fyrir nýjum meðlimum til þess að allir geti nýtt síðuna til að koma efni á framfæri.
Rætt var um styrki og styrktaraðila að deildinni. Það er deildinni til góða að geta nýtt sér sem flesta styrktaraðila. Samþykkt var að deildin greiði sjálf árgjald af léninu og leiti eftir styrktaraðilum sem hafa áhuga á að setja auglýsingar á síðuna okkar. Í kjölfarið kom umræða um kosti þess að deildin eigi fjármuni og hvað deildin geti gert fyrir meðlimi deildarinnar, svo sem halda námskeið, fyrirlestur osfrv. Eva verður tengiliður stjórnar við Bendi, sem er rausnarlegur styrktaraðili Schaferdeildarinnar.
Vefpóstur deildarinnar kynntur fyrir nýjum meðlimum. Allir hafa aðgang að honum og munu fylgjast með póstum sem berast. Anna mun áfram sjá um að svara helstu póstum, það efni sem krefst frekari vinnslu verður rætt af stjórn í heild sinni og viðkomandi svarað að því loknu.
Fram kom í fundargerð stjórnar HRFÍ að ákveðið hefur verið að fella niður kröfu um skapgerðarmat sem skilyrði fyrir titlinum Íslenskur meistari hjá mörgum vinnuhundategundum, þar á meðal Schafer. Stjórn Schaferdeildarinnar er ósátt við þá ákvörðun og mun spyrjast fyrir um þetta hjá stjórn HRFÍ. Tillaga kom fram að hugsanlega sé hægt að halda skapgerðarmat á vegum deildarinnar. Anna tekur að sér að semja bréf til þeirra, sendir á stjórn deildarinnar til samþykktar áður en það fer til HRFÍ.
Stjórn mun spyrjast fyrir um stöðu varðandi annað mál við HRFÍ sem ekki hefur fengist svar við. Einn stjórnarmeðlimur, Kata, sat hjá í umræðunni vegna persónulegra tengsla við viðkomandi félagsmann.
Stórhundadagar verða í Garðheimum næstu helgi. Schaferdeildin mun vera með bás báða daga frá kl. 12-17. Stjórnarmeðlimir skiptu með sér verkum varðandi uppsetningu og undirbúning. Óskað verður eftir áhugasömum eigendum og hundum til að sitja á bás. Þurfum að safna saman myndum og gögnum sem eru til auk þess að setja saman hugmyndir að því hvernig er hægt að gera básinn betri. Stefnan er að setja saman myndaseríu sem hægt er að spila í tölvu á sýningarbásnum.
Rætt var um viðburði á vegum deildarinnar. Næsta ganga er áætluð sunnudaginn 27. mars. Stefnt er að því að hittast við Nauthólsvík, ganga þar um svæðið og setjast svo inn á Kaffi Nauthól að göngu lokinni. Hugsanlega getum við nýtt tækifærið og haldið opinn deildarfund til þess að ræða skipulagningu sýningarinnar.
Áætlað er að hafa ca einn viðburð í hverjum mánuði. Auk þess er stefnan sett á að æfa spor einu sinni í mánuði sem verður hugsanlega í samvinnu við Vinnuhundadeildina. Sturla tekur að sér að sjá um göngur og sporaæfingar.
Kata kom með góða hugmynd að fjáröflun fyrir deildina. Hún hefur reynslu af því að halda slíkan viðburð sem má segja að sé nokkurskonar sýning eða skemmtun fyrir almenning. Kata tekur að sér að senda póst á nokkur bæjarfélög.
Deildarsýningin er áætluð í sumar. Á fundinum var haft samband símleiðis við dómarann. Hann var sjálfur staddur á fundi en við skildum eftir skilaboð til hans um að hafa samband. Mikilvægt er að halda opinn deildarfund fljótlega svo hægt sé að halda áfram með undirbúning og skipulagningu. Eva verður tengiliður við dómara og mun sjá um hann á meðan á dvöl hans stendur hér á Íslandi.
Ekki hefur enn verið tilkynnt um úrslit úr haustmyndasamkeppni, sem þó liggja fyrir. Frétt um það mun birtast á vefsíðu deildarinnar innan skamms. Stefnan er að halda myndasamkeppni tvisvar á ári, sumar- og vetrarmyndir.
Stjórn vill koma á framfæri til deildarinnar að stefnt er að veita hundum og eigendum verðlaun í lok þessa árs fyrir framúrskarandi árangur á sýningu og í vinnu, eins og venjan hefur verið undanfarin ár. Hugsanlega verður það hvatning til einhverra sem hafa áhuga á að vinna með hundinn sinn. Munum minna á þetta fljótlega með frétt á deildarsíðunni.
Rætt var um endurmat á stigagjöf deildarinnar. Hundar hafa nú meiri möguleika á stigum, þeir hundar sem ná framúrskarandi árangri og komast í úrslit í grúppu eða sýningu geta nælt sér í aukastig. Verður kynnt betur fyrir deildarmeðlimum.
Verkaskipting stjórnarinnar: Eva mun sjá um styrkjamál deildarinnar. Kata tekur að sér kynningarmál og fjáraflanir. Íris heldur utan um básana. Sturla sér um sporaæfingar og göngur. Anna hefur yfirumsjón yfir heimasíðunni og vefpósti deildarinnar.
Það þarf að uppfæra lista á vefsíðunni yfir ræktendur.
Kröfur HRFÍ til ættbókarskráningar, sem eru inni á deildarsíðunni, að hluta til rangar. Búið að laga.
Krafa HRFÍ um ræktunarnefnd. Umræða um málið, verður skoðað.
HD AD listinn. Uppsetning hans er ekki nógu góð. Þurfum að finna betri lausn svo hann sé aðgengilegri.
Gagnagrunnur deildarinnar á vefsíðunni. Það krefst mikillar vinnu að viðhalda honum. Stjórn ætlar að skoða leiðir til að laga og einfalda hann þannig að ekki fari eins mikill tími í uppsetningu og viðhald.
Póstlistinn mun framvegis vera falinn í bcc þegar póstur er sendur á meðlimi deildarinnar, svo ekki sé hægt að misnota póstföngin.
Fundi slitið kl 15:45.
F.h. stjórnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, ritari