Stjórnarfundur 10. apríl
Mættir: Haukur, Íris, Guðmundur, Þórður.
Fundur settur 21:20
Fundargerð síðasta fundar lesin. Athugasemd var gerð við ný heiti á meðal stjórnarmanna. Samþykkt að skoða aftur ef frekari upplýsingar berast um reglur og lögmæti er tengjast titlum stjórnarmanna.
Kynnt var nýtt kerfi til þess að halda yfir verkefni stjórnar, verkaskiptingu, minnispunkta ofl en það er hluti af vefsíðu sem heitir trello.com.
Tillaga sett fram um að Schäferdeildin birti efni á heimasíðunni er varðar fræðslu af ýmsu tagi svo sem til tilvonandi hvolpakaupenda, ræktenda ásamt núverandi schäfereigenda. Þar gæti verið um að ræða ráðleggingar um allt sem tengist schäferhundum svo sem um heilbrigði, lífaldur, sjúkdóma, mikilvægi trygginga, tilgangur skapgerðarmats, fóður, hvolpanámskeið, hárlos, leiðbeiningar um það hvað eigi að skoða þegar hvolpur er valinn og hvernig á að velja þann sem hentar manni, hvolpaskapgerðarmat fyrir ræktendur, upplýsingar um það hvert er hægt að leita erlendis ef fólk hefur áhuga á að flytja inn hund. Til er heimasíða með sambærilegu fræðsluefni sem möguleiki væri á að þýða og staðfæra.
Tillaga var sett fram um að Schäferdeildin haldi vinnupróf, vinnuæfingar og skapgerðarmat fyrir deildarmeðlimi. Í framhaldi var sett fram tillaga um að halda fyrst fræðslu, t.d. fyrirlestur og síðan æfingu í kjölfarið. Möguleiki sé á að gera þetta í Sólheimakoti. Einnig var rætt um að halda óhefðbundið æfingapróf, meira til gamans gert, og dómarar gætu verið úr stjórn deildarinnar eða deildarmeðlimir. Þá væri einnig hægt að halda nokkrar hlýðnikeppnir á ári (æfingapróf) þar sem lægsta einkunn dettur út og sá sem hefur hæstu einkunn eftir árið hlýtur titil og heiðrun frá schäferdeildinni.
Umræður um námskeið og fræðslu fyrir deildarmeðlimi. Mögulega hægt að fá kennara sem getur leiðbeint fólki um keppnis hælgöngu, líkt og sjá má í hlýðniprófum erlendis. Einnig mætti leita til schäferfólks sem hefur hundaþjálfunarmenntun svo sem Ásta Dóra. Væri gaman að geta boðið deildarmeðlimum upp á myndir og myndbönd af vinnuprófum á heimasíðu deildarinnar. Deildin hefur oft boðið upp á umhverfisþjálfun í deildargöngunum sem er mikilvægt fyrir hunda, sérstaklega þá sem yngri eru til þess að venja þá við. Stjórn sammála um að Sólheimakot sé kjörinn staður til þess að bjóða upp á vinnutengda fræðslu, - skemmtun og æfingar. Einnig væri mögulegt að vera með sporafræðslu og sporaæfingar í kjölfarið.
Rætt var um þau próf sem schäferhundar erlendis eru látnir þreyta. Rætt var um mun á IPO hlýðni og brukshunds hlýðni eins og tíðkast hérlendis. Mikilvægt fyrir tegundina og deildina að færa okkur nær staðli erlendis til þess að standast samanburð. Norski schäferdómarinn sem kom á deildarsýninguna ráðlagði okkur að byrja á IPO hlýðni, IPO spori og BH prófi. Stjórn sammála um að skoða þessi atriði betur.
Rætt var um mögulegar staðsetningar fyrir deildargöngur. Bent var á staðsetningu á Hólmsheiði þar sem hægt væri að bjóða upp á sundsprett fyrir hundana í Langavatni. Aðrar tillögur voru t.d. í kringum Rauðavatn, Öskjuhlíð, miðbærinn, Heiðmörk og grilla á eftir, Skerjafjörður-Nauthólsvík, Hvaleyrarvatn. Einnig væri hægt að fara í léttar fjallgöngur svo sem Úlfarsfell, Helgafell, Keilir. Gaman væri að fara í kvöldgöngur á virkum kvöldum í sumar. Möguleiki er á að hafa könnun á meðal deildarmeðlima.
Kynnt var tillaga að breyttu útliti á heimasíðu deildarinnar. Það var samþykkt og fer í loftið þegar það er tilbúið.
Í lokin voru umræður um hvaða upplýsingum og fræðslu sé þörf á að koma til schäfereigenda. Hvað er mikilvægt að kenna og gera í upphafi, þegar fólk fær sér hund. Hvað vill hinn almenni hundaeigandi sjá á heimasíðunni, hvaða upplýsingum er helst verið að leita eftir. Tillaga sett fram um box þar sem hægt er að koma tillögum á framfæri til stjórnar, í stað þess að senda email. Stjórn getur útbúið könnun á heimasíðunni, með því er auðvelt að fá að vita hug fólks.
Næsti fundur verður haldinn eftir 4 vikur, aðra vikuna í maí.
Fundi slitið kl 23:20
F.h. stjórnar
Íris Hlín Bjarnadóttir, formaður