Næsta helgi verður stútfull af skemmtilegheitum fyrir áhugafólk um tegundina. Dagskráin hefst laugardaginn 6. júlí með afmælissýningu deildarinnar í Guðmundarlundi. Fyrsti hundur fer í dóm hjá Karl Otto Ojala schäferdómara frá Noregi kl.10:00 stundvíslega. Sýninganúmer verða afhent á staðnum (í veitingasölutjaldi) og eru sýniendur beðnir að mæta tímanlega til að fá sýninganúmer og gera sig tilbúina þannig að allt gangi smurt fyrir sig. Veitingasala verður á staðnum og verður selt kaffi, kaldar samlokur, gos og sætindi. Allir að taka með sér reiðufé því engin posi verður á staðnum. Enginn aðgangseyrir er inn á svæðið allir velkomnir til að sjá flotta hunda og hvetja sitt fólk
Afmælispartý deildarinnar verður haldið að kvöldi sama dags í Hestamiðstöðinni í Víðidal (litla húsið fyrir neðan Reiðhöllina). Grillmeistarar koma og grilla ofan í okkur ljúfengan grillmat með öllu tilheyrandi. Engir drykkir verða í boði og er gestum velkomið að hafa með sér drykkjarföng að eigin vali til að skála fyrir árangri dagsins. Húsið opnar kl.19:00 og matur verður borinn fram kl. 20:00. Við munum svo skemmta okkur saman fram á kvöld. Miðinn kostar 4.000 krónur pr. mann og er hægt að skrá sig hér. Matseðillinn verður birtur um leið og hann berst. Sporapróf verður haldið á sunnudeginum 7. júlí kl. 12:00. Prófað verður í spori I, II og III. Dómari verður Karl Otto Ojala frá Noregi. Staðsetning auglýst síðar. Áhorfendur velkomnir. Sækja dagskrá sýningar hér.
0 Comments
Your comment will be posted after it is approved.
Leave a Reply. |
Viðburðardagatal7.- 8. september 2013 Láttu í þér heyraAllar almennar fyrirspurnir er varða málefni deildarinnar skulu sendast á beint á ræktunarstjórn deildarinnar. Fyrirspurnum er svarað strax eða eftir næsta stjórnarfund, allt eftir eðli málsins. Velkomin í SchäferdeildinaStjórn SchäferdeildarinnarGuðmundur Rafn Ásgeirsson, formaður ArchivesCategories |