Það eru loksins komnar myndir frá sýningunni inn á facebook síðuna okkar . Skoða myndir hér.
0 Comments
Viðtal: Brynja Tomer
Hæpin veðurspá, dumbungur og gegnvot grund eftir langvarandi rigningar urðu til þess að 25 ára afmælissýning deildarinnar var færð úr Guðmundarlundi inn í reiðhöll Fáks í Víðidalnum. Telja má fullvíst að sýnendur, starfsmenn og áhorfendur hafi allir verið ánægðir með þá ákvörðun, enda hitastigið 8 gráður og heilmikil slysahætta á rennvotu grasinu utan dyra. Lesa meira Glæsileg afmælissýning fór fram á laugardaginn. Besti hundur sýningarinnar varð C.I.B. ISCH RW-13 Welincha's Yasko. En hann var besti hundur tegundar í stutthærðum Schafer. Annar besti hundur sýningar varð Svarthamars Garpur, sem var besti hundur tegundar í flokki síðhærðra Schaferahunda. Færa varð sýninguna inn í Reiðhöll Fáks vegna veðurs en það kom ekki að sök og allir skemmtu sér vel og var góð stemning hjá fólki og hundum.
Dómari á sýningunni var Karl Otto Ojala frá Noregi og var mikill fengur fyrir okkur að fá hann til landsins. Með fullri virðingu fyrir öðrum Schafer dómurum sem komið hafa á klakann er hann sennilega sá allra færasti sem dæmt hefur hundana okkar. Karl Otto er með hæstu gráðu frá SV í Þýskalandi í að dæma Schaferhunda bæði á sýningum og í vinnu. Stjórn Schaferdeildarinna vill þakka öllum sem komu að framkvæmd og uppsetningu sýningarinnar innilega fyrir hjálpina. Einnig viljum við þakka styrktaraðilum sýningarinnar fyrir stuðninginn, án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Frekari úrslit verða birt fljótlega. Skráning í afmælispartý Schäferdeildarinnar í Hestamiðstöðinni í Víðidal stendur yfir. Hægt er að skrá sig fram að hádegi næsta föstudag. Glæsilegur matseðill og góð skemmtun.
Næsta helgi verður stútfull af skemmtilegheitum fyrir áhugafólk um tegundina. Dagskráin hefst laugardaginn 6. júlí með afmælissýningu deildarinnar í Guðmundarlundi. Fyrsti hundur fer í dóm hjá Karl Otto Ojala schäferdómara frá Noregi kl.10:00 stundvíslega. Sýninganúmer verða afhent á staðnum (í veitingasölutjaldi) og eru sýniendur beðnir að mæta tímanlega til að fá sýninganúmer og gera sig tilbúina þannig að allt gangi smurt fyrir sig. Veitingasala verður á staðnum og verður selt kaffi, kaldar samlokur, gos og sætindi. Allir að taka með sér reiðufé því engin posi verður á staðnum. Enginn aðgangseyrir er inn á svæðið allir velkomnir til að sjá flotta hunda og hvetja sitt fólk
Afmælispartý deildarinnar verður haldið að kvöldi sama dags í Hestamiðstöðinni í Víðidal (litla húsið fyrir neðan Reiðhöllina). Grillmeistarar koma og grilla ofan í okkur ljúfengan grillmat með öllu tilheyrandi. Engir drykkir verða í boði og er gestum velkomið að hafa með sér drykkjarföng að eigin vali til að skála fyrir árangri dagsins. Húsið opnar kl.19:00 og matur verður borinn fram kl. 20:00. Við munum svo skemmta okkur saman fram á kvöld. Miðinn kostar 4.000 krónur pr. mann og er hægt að skrá sig hér. Matseðillinn verður birtur um leið og hann berst. Sporapróf verður haldið á sunnudeginum 7. júlí kl. 12:00. Prófað verður í spori I, II og III. Dómari verður Karl Otto Ojala frá Noregi. Staðsetning auglýst síðar. Áhorfendur velkomnir. Sækja dagskrá sýningar hér. Schäferdeildin ætlar að slá upp afmælispartýi að kvöldi sýningardagsins 6. júlí n.k. Partýið verður haldið á litlum og skemmtilegum stað í Víðidal. Fenginn verður kokkur til að grilla ofan í okkur ljúfengan grillmat með öllu tilheyrandi og ætlum við að skemmta okkur saman fram eftir kvöldi. Hægt verður að skrá sig á gestalistann gegn hóflegu gjaldi. Engin drykkir verða í boði og er gestum velkomið að hafa með sér drykkjarföng að eigin vali til að skála fyrir árangri dagsins. Opnað verður fyrir skráningu þann 1. júlí. Nánar auglýst síðar.
Framlengdur frestur til skráningar í sporapróf 7. júlí er til 1. júlí
Þar sem starfsfólk á skrifstofu HRFÍ er komi í sumarfrí þarf að skrá sig svona: Lagt inn á reik hjá HRFÍ 515-26-707729 kt:680481-0249 og senda staðfestingu á greiðslu á [email protected] Koma þarf einnig fram hvaða próf er verið að skrá hundinn í spor I,II eða III, og ættbókarnafn/nafn á hundinum. Prófið kostar 4.500 kr Minnum á sýningarþjálfun á morgun 19.júni kl 20 í Hafnarfirði við Viðistaðarkirkju.
Koma með nammi/dót, poka og góða skapið. Hlökkum til að sjá ykkur. |
Viðburðardagatal7.- 8. september 2013 Láttu í þér heyraAllar almennar fyrirspurnir er varða málefni deildarinnar skulu sendast á beint á ræktunarstjórn deildarinnar. Fyrirspurnum er svarað strax eða eftir næsta stjórnarfund, allt eftir eðli málsins. Velkomin í SchäferdeildinaStjórn SchäferdeildarinnarGuðmundur Rafn Ásgeirsson, formaður ArchivesCategories |