Bréf frá Fjár- og hjarðhundadeild barst þann 24. maí 2011:
Til Stjórnar Schäferdeildar.
Við rákum augun í auglýsingu frá ykkur um deildarsýningu nú í júlí þar sem sænski dómarinn Fredrik Steen mun dæma. Steen hefur réttindi á allan tegundarhóp 1 og er Fjár- og hjarðhundadeild mjög áhugasöm um að fá að njóta krafta hans ef hægt er að koma því við, annað hvort með því að opna skráningu á hunda deildarinnar á laugardeginum eða að Fjár- og hjarðhundadeild haldi deildarsýningu með sama dómara á sunnudeginum x júlí (og deildi þá kostnaði af dvöl hans með ykkur). Þessar ráðstafanir yrðu auðvitað að því tilskyldu að leyfi stjórnar HRFÍ fengist með litlum fyrirvara. Gera mætti ráð fyrir um 30-40 skráningum frá deildinni, en með samþykki dómarans mætti hann dæma 90 hunda yfir daginn ef því er að skipta. Stærstu tegundirnar frá okkur yrðu australian shepherd og border collie, en gera má ráð fyrir einstaka skráningum á shetland sheepdog, rough collie og old english sheepdog.
Í Fjár- og hjarðhundadeild eru aðilar sem mjög vanir að setja upp og stjórna sýningum, svo það ætti að nýtast báðum deildum vel. Deildin myndi sjá um verðlaunagripi og slíkt vegna sinna tegunda.
Við gerum okkur grein fyrir að fyrirvarinn er stuttur, en ef Schäferdeild vill ræða þessi mál frekar, mun Lilja Dóra Halldórsdóttir s. 8983226 ([email protected]) verða tengiliður okkar vegna sýningarinnar og sjá um skipulag fyrir okkar hönd.
Með von um jákvæð svör,
Fyrir hönd stjórnar.
Guðrún Th Guðmundsdóttir.

Stjórn Schäferdeildarinnar tók bréfið fyrir á stjórnarfundi og svaraði Fjár- og hjarðhundadeild 31. maí 2011:
Til stjórnar Fjár- og Hjarðhundadeildar
Þar sem þetta er fyrsta sýning Schäferdeildarinnar síðan 1988 tók fyrri stjórn þá ákvörðun að hafa þetta lokaða sýningu, einungis fyrir Schäfer hunda. Á deildarfundi sem haldinn var 2. maí 2011 lagði ný stjórn fram þá tillögu fyrir félagsmenn um það hvort ætti að halda sýningunni lokaðri áfram, sem var síðan samþykkt einróma. Við erum einnig búin að fá persónulega styrki fyrir sýningunni og ræktendur að gefa vinnu og styrkja sýninguna með ýmsum framlögum.
Eins þar sem við gátum ekki nýtt dómarann til þess að dæma sporapróf sem stóð til að halda á sunnudeginum, var fengið flugfar tilbaka á sunnudeginum kl 16:00. Var það einnig ósk Fredriks.
En við stefnum á að halda sýningu á næsta ári 2012 og hefðum við áhuga á samstarfi við ykkur fyrir þá sýningu ef áhugi er hjá ykkur. Umsóknarfrestur til að sækja um fyrir sýningu rennur út 1. sept.
Bestu kveðjur
Stjórn Schäferdeild HRFÍ

Þegar bréfið frá Fjár- og hjarðhundadeild barst voru aðeins 2 vikur í að skráningarfresti á deildarsýninguna myndi ljúka. Stjórn Schäferdeildarinnar taldi þetta of knappan tíma til þess að breyta öllu fyrra skipulagi, svo sem að hafa samband við dómarann til þess að lengja ferðina, breyta gistingu og svo framvegis. Ef fyrirfari hefði verið meiri hefðu aðrar deildir hugsanlega geta nýtt dómarann með okkur, t.d. á sunnudeginum.
Stjórn Schäferdeildarinnar er afar stolt af deildarsýningunni og öllu skipulagi í kringum hana. Eins og sjá má í fundargerð stjórnar HRFÍ (okt. 2011) var Schäferdeildin ein af fáum deildum sem skilaði hagnaði af deildarsýningu á þessu ári.